Morgunblaðið - 11.08.1989, Blaðsíða 16
16
mu T8U0A Jf HUOAaUTgQB QIGAJa1/'JOil'QM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. ÁGÖST 1989
i
Reuter
Bandarískir hermenn stöðva bifreið með panamiska fánanum fyrir
utan Ft. Amador-herstöðina en hana hafa herir beggja ríkjanna
rekið í sameiningu.
Panama og Bandaríkin:
Vaxandi taugastríð og
úlfuð milli ríkjanna
Panamabore. Reuter.
BANDARISKIR og panamískir hermenn höfðu í gær í haldi um
stund tvo hermenn hvorir fyrir öðrum og virðist sem taugastríðið
milli ríkisstjórnanna í Washington og Panama sé að blossa upp
aftur.
Bandarískir hermenn girtu í
gær af herstöð, sem þeir hafa rek-
ið í samvinnu við panamíska her-
inn, og handtóku tvo panamíska
hermenn. Sögðu þeir ástæðuna þá,
að Panamaher hefði handtekið tvo
bandaríska herlögreglumenn. Var
öllum mönnunum sleppt að tveim-
ur stundum liðnum.
Bandaríski herinn í Panama,
sem er 12.000 menn, hefur verið
mjög á varðbergi síðan í kosning-
unum í maí sl. en þá voru stuðn-
ingsmenn Manuels Noriega hers-
höfðingja sakaðir um að hafa haft
endaskipti á kosningaúrslitunum
með víðtækum fölsunum. Noriega
hefur þar að auki verið ákærður
í Bandaríkjunum fyrir eiturlyfja-
smygl.
Stjórnarerindrekar ýmsir segj-
ast óttast, að atburðir eins og
þeir, sem gerðust í gær, geti snú-
ist upp í bein átök milli Panama-
hers og Bandaríkjamanna, sem
ráða litlu Iandi beggja vegna Pa-
namaskurðs. Samningum sam-
kvæmt eiga þeir að afhenda Pa-
nama skurðinn árið 2000.
Evrópubandalagið:
Umsókn Austur-
ríkis áhyggjuefhi
- að mati sovéskra ráðamanna
Vínarborg. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Sovétríkjunum hafa lýst yfir áhyggjum sínum
vegna umsóknar Austurrikismanna um aðild að Evrópubandalaginu
(EB). Telja ráðamenn eystra að aðild að EB geti tæpast farið sam-
an við yfirlýsta hlutleysisstefiiu Austurríkis.
Gennadíj Schíkín, sendiherra væri sérlega mikilvægt með tilliti
Sovétríkjanna í Vínarborg, kom
athugasemdum þessum á framfæri
við Franz Vranitsky, kanslara
Austurríkis, í gær. I orðsending-
unni sagði að hlutleysi Austurríkis
Holland:
Ohress af
töskuátinu
Haag. Reuter.
FÍLLINN Quimba er óhress inn-
an um sig þessa dagana vegna
þess að hann hefiir leikið það
að hrifsa handtöskur af gestum
í Burgers-dýragarðinum í Arn-
hem og gleypa þær í heilu lagi.
„Þetta er óhollt fyrir dýrið og
óskemmtilegt fyrir fólkið, sem
missir eigur sínar,“ sagði Anton
van Hooff, forstöðumaður dýra-
garðsins á fimmtudag.
Quimba hefur étið þijár hand-
töskur það sem af er þessu ári, og
í einni þeirra var myndavél. Fyrir-
hugað er nú að setja upp skilti,
þar sem gestir verða varaðir við
töskuþjófinum.
til stöðugleika í Evrópu og að aust-
urrísk stjórnvöld gætu tæpast fylgt
áfram hlutleysisstefnunni eftir að
hafa fengið aðild að bandalaginu.
Talsmaður Vranitskys sagði í
gær að athugasemdir Sovétstjórn-
arinnar breyttu engu um umsókn
Austurríkismanna. ítrekaði hann
fyrri ummæli kanslarans þess efn-
is að ekki þyrfti að hverfa frá yfir-
lýstu hlutléysi á vettvangi utanrík-
ismála þótt Austurríkismenn gerð-
ust aðilar að bandalaginu. Hefði
sovéskum ráðamönnum verið gerð
grein fyrir þessari afstöðu aust-
urrísku ríkisstjómarinnar er Vran-
itsky sótti Kremlveija heim í októ-
ber á síðasta ári
Austurríkismenn lögðu fram
umsókn um aðild að EB í síðasta
mánuði og lögðust Belgar þá gegn
því að þeir fengju inngöngu með
þeim rökum að hlutleysisstefnan
færi ekki saman við það yfirlýsta
markmið bandalagsríkjanna 12 að
efla og auka samvinnu sína á
stjórnmálasviðinu. Belgar hafa
fallið frá þessari afstöðu en jafn-
framt lagt til að hafnar verði við-
ræður við Sovétmenn um hlutleysi
Austurríkis verði landsmönnum
veitt að aðild að EB.
260.000 mamis hafa flú-
ið ofsóknir í Búlgaríu
Ankara. Reuter.
SAMTÖK íslamskra ríkja eru nú að kanna hvað þau geti gert til
hjálpar fólki af tyrkneskum ættum í Búlgaríu en síðan í maí hafa
260.000 manns flúið þaðan undan ofsóknum yfirvalda.
I gær var von á sendinefnd frá
samtökunum til Istanbul í Tyrk-
landi en tyrknesk stjórnvöld höfðu
þá eggjað þau lögeggjan og sagt,
að nú sem aldrei fyrr reyndi á styrk
samtakanna og samstöðu íslamskra
ríkja. Tyrkneskumælandi fólk í
Búlgaríu var 1,5 milljónir talsins
en stjórnvöld þar hafa reynt að af-
má uppruna þess með því að banna
tyrknesk nöfn og tyrkneska tungu.
Hafa eins og fyrr segir 260.000
manns flúið landið og er hér um
að ræða einhveija mestu þjóðflutn-
inga í Evrópu á síðari tímum.
Rússneskir innflytjendur og starfsmenn í verksmiðju í Tallinn ákváðu í fyrradag að halda áfram verkfalli
í mótmælaskyni við nýja kosningalöggjöf en í gær tilkynntu stjórnvöld bann við „truflunum á efiiahags-
starfseminni".
Eistland:
Moskvu. Reuter.
YFIRVÖLD í Eistlandi bönnuðu í gær verkföll rússneskra innflytj-
enda þótt svo virtist sem þau væru þá að renna út í sandinn. Rússarn-
ir vildu með verkföllunum mótmæla nýrri kosningalöggjöf og er
búist við, að bannið verði til að auka enn á ósamkomulag þeirra og
Eista sjálfra.
Verkföllin hófust á miðvikudag
í mótmælaskyni við ný lög frá eist-
neska þinginu en samkvæmt þeim
er kosningaréttur í landinu bundinn
við tveggja ára búsetu en kjörgengi
við fimm ár. Margir rússnesku inn-
flytjendanna ná ekki þessum mörk-
um enda hefur fólksstraumurinn til
Eistlands verið mestur á allra
síðustu árum. í síðasta mánuði,
þegar lögin komu til umræðu á
þingi, lögðu 40.000 rússneskir inn-
flytjendur niður vinnu til að mót-
mæla þeim en að þessu sinni aðeins
20.000. Þrátt fyrir það ollu þau
verulegum truflunum á sam-
göngum og vinnu í mörgum verk-
smiðjum.
og fullu sjálfstæði í efnahagsmálum
en nú eru allar meiriháttar ákvarð-
anir teknar í ráðuneytum í Moskvu.
Sovétmenn innlimuðu ríkin árið
1940 og gerðu það í skjóli leyni-
legra ákvæða í griðasáttmálanum
við nasista, sem var undirritaður
23. ágúst árið 1939. Hálfrar aldar
afmæli þessa alræmda samnings
er því að nálgast og er búist við
mjög fjölmennum mótmælum af því
tilefni. Meðal annars er ætlunin að
mynda óslitna mannkeðju milli höf-
uðborga rikjanna, frá Tallinn í
norðri um Riga og þaðan til Vilnius.
Eistland og hin Eystrasaltslönd-
in, Lettland og Litháen, beijast
hart fyrir auknum þjóðréttindum
Klofiiingur og vonleysi í
röðum pólskra kommúnista
Varsjá. Reuter.
ALVARLEGUR klofningur er kominn upp í pólska kommúnista-
flokknum og vonleysi hefur gripið um sig í röðum félaganna.
Skoðanakannair sýna að þriðjungur félaganna— en þeim hefúr
farið ört fækkandi að undanfömu— telur engar líkur á því að
flokkurinn geti farið með sigur af hólmi fari öldungis fijálsar
kosningar fara fram í landinu árið 1993. Nýkjörinn áróðursmeist-
ari miðstjómarinnar telur að flokkurinn verði að breytast í gmnd-
vallaratriðum ætli hann sér að halda lífi.
Stjórnarmyndunartilraunir
Czeslaws Kiszczasks, hins ny-
Iq'öma forsætisráðherra landins,
hafa enn engan árangur borið en
hann hefur hvatt til þess að mynd-
uð verði þjóðstjórn Kommúnista-
flokksins, Samstöðu, hreyfingar
stjómarandstæðinga, Bænda-
flokksins og pólska Demókrata-
flokksins en tveir síðastnefndu
flokkarnir hafa fylgt kommúnist-
um að málum allt frá lokum síðari
heimsstyijaldarinnar.
Lech Walesa, leiðtogi Sam-
stöðu, Iagði á mánudag til að
mynduð yrði samsteypustjóm
smáflokkanna tveggja og Sam-
stöðu. Hafa .flokkarnir lýst sig
reiðubúna til viðræðna við fulltrúa
Samstöðu og er búist við að þær
geti hafist í næstu viku. Nái til-
laga Walesa fram að ganga verð-
ur það í fyrsta skipti sem komm-
únistar em utan stjómar í komm-
únistaríkjunum austan Jámtjalds-
ins.
Þegar þetta er ritað er fátt sem
bendir til þess að Kiszczak takist
að mynda stjórn. Þótt hann sé
talinn til umbótasinna hafa menn
ekki gleymt að hann hafði fram-
kvæmd heríaga með höndum er
kommúnistar létu til skarar skríða
gegn Samstöðu og talsmenn
Bændaflokksins hafa sagt að fé-
lagar í honum muni seint sætta
sig við stjóm undir forystu hers-
höfðingjans. Við þetta bætist að
klofningur er kominn upp í
Kommúnistaflokknum og hafa
róttækir umbótasinnar haft á orði
að stofna verði nýjan flokk. Félag-
amir virðast alltjent hafa misst
móðinn. Kannanir sýna að þriðj-
ungur flokksmanna telur engar
líkur á því að unnt verði að leggja
fram sannfærandi áætlun um við-
reisn efnahagslífsins fari fijálsar
kosningar fram í landinu og telur
sigurlíkur flokksins álíka litlar.
35.000 manns hafa sagt sig úr
flokknum á fyrstu sex mánuðum
þessa árs, samkvæmt opinberum
heimildum, og skráðir félagar eru
rúmar tvær milljónir en voru 3,1
milljón árið 1980. Einn þingmaður
kommúnista sagði nýlega í viðtali
við flokksmálgagnið Polityka:
„Hroki, svik og heimska haldast
enn í hendur. Flokkurinn er í engu
sambandi við þjóðina. Verði ekki
gerð breyting þar á eigum við
enga möguleika í næstu kosning-
um. Marek Krol, nýkjörinn áróð-
ursmeistari miðstjómar flokksins
er sama sinnis: „Við erum að
upplifa _ endalok alræðis eins
flokks. í þetta skiptið dugir and-
litslyfting skammt. Verði mein-
semdin ekki skorin burt blasa
endalokin við“. ■
Stjómvöld banna verkföll
rússneskra innflytj enda