Fréttablaðið - 21.07.2007, Page 50

Fréttablaðið - 21.07.2007, Page 50
Við verðum að byggja álver og járnblendi- og batteríverksmiðju og virkjanir sem búa til rafmagn fyrir ál- verið og járnblendið og batteríverksmiðj- una. Þetta verðum við einfaldlega að gera til að viðhalda stöðugleika og forðast yfirvofandi atvinnuleysi. Stöðugleiki er nauðsynlegur því í honum felst að stöðugt færri ein- staklingar eignast stöðugt fleiri fyrirtæki svo óstöðug samkeppni hverfur. Stöðugleiki er einnig mik- ilvægur í stjórnmálum. Það veit ís- lenska þjóðin, enda hefur hún ekki þorað að kjósa sér nýja ríkisstjórn síðan óstöðugleikadraugurinn kvað niður verðbólgudrauginn. Og atvinnuleysið. Guð forði okkur frá því að þurfa ekki á út- lendingunum að halda, fyrirgefið, fólki af erlendu bergi, til að vinna fyrir okkur. Við þyrftum mögu- lega að byrja að tala um innflytj- endamál og allir vita að hver sem segir sína skoðun á þeim, sama hvað hann segir, verður sjálfkrafa að rasista og fúlmenni nema hann vinni hjá Alþjóðahúsinu. Við þyrftum einnig að hugsa um hverjum við hleyptum inn í landið og hlusta á sjálfa innflytjendurna. Margir þeirra furða sig nefnilega á því að við tökum opnum örmum á móti mörgum löndum þeirra sem hvergi komast annars staðar að sökum skuggalegrar fortíðar. Við þyrftum mögulega að fylgja inn- flytjendunum eftir og sjá til þess að þeir fengju mannsæmandi laun og jafnvel menntun. Það getur ekki verið gott fyrir samfélagið. Atvinnuleysið hefði líka í för með sér að tólf ára börn fengju ekki lengur vinnu í Krónunni og Bónus. Þunglynd börn og ungl- ingar myndu neyðast til þess að fara heim og gera eitthvað annað en renna skinku gegnum strika- merkjalesara, eitthvað sem er orðið jafngildi þess að flaka fisk. Þau neyddust þá til að sinna ein- hverjum óþarfa áhugamálum og eins og alþjóð veit er það gjörsam- lega gagnslaus iðja á þessum síð- ustu og hnattvæddu tímum. Það er enginn peningur í því. – ódýrari valkostur Vantar þig auka- pening? Pósthúsið leitar að duglegu og morgunhressu fólki til að bera út blöð milli 6 og 7 á morgnana. Um er að ræða holla og hressandi útiveru, annars vegar á virkum dögum og hins vegar um helgar. Njóttu þess að taka daginn snemma, hreyfðu þig og fáðu borgað fyrir það. Allar nánari upplýsingar veitir dreifingardeild Pósthússins í síma 585 8330. Einnig er hægt að sækja um á www.posthusid.is Pósthúsið ehf | Suðurhrauni 1 | 210 Garðabæ | Sími: 585 8300 | posthusid.is Pósthúsið er ungt og öflugt dreifingarfyrirtæki á sviði blaða- og vörudreifingar. Hjá Pósthúsinu starfa um sjöhundruð manns að uppbyggingu á fjölbreyttum og skemmtilegum vettvangi. H im in n o g h af / S ÍA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.