Fréttablaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 64
Nokkur umræða hefur verið und-anfarið um álagningu á léttvíni og bjór. Þeir sem kaupa sér slíkan vökva úr búð hér á landi eru neyddir til þess að greiða til ríkisins óheyri- lega hátt hlutfall af söluverði vör- unnar, allt upp í 90%, og eru rök- semdirnar fyrir þessu einkum sagð- ar þær að með því að hafa verðið nógu hátt verði komið í veg fyrir að fólk fari illa út úr viðureigninni við Bakkus. umræða er full af þversögn- um. Fyrir það fyrsta blasir við að stefnan virðist ekki skila tilætluð- um árangri, því þrátt fyrir hið him- inháa áfengisverð hefur drykkjan beinlínis aukist. Reyndar þætti mér vænt um að vita, í þágu vísindanna, hvort í útreikningum um aukna áfengisneyslu sé gert ráð fyrir því að á síðustu árum hefur ferðamönn- um fjölgað gríðarlega hingað til lands. Eins og menn vita eru þeir hreint ekki alltaf edrú frekar en inn- fæddir. blasir við að eftir- spurnin eftir guðaveigunum er slík að bæði Íslendingar sem og aðkomu- menn virðast reiðubúnir að greiða fyrir þær uppsett verð, jafnvel þótt það sé það hæsta sem þekkist á byggðu bóli, og gildir þá einu hvort kaupendur fussi yfir verðinu eða hristi hausinn. Aurinn er framreidd- ur. Sjaldan hef ég í minni hundstíð komið til kvöldfagnaðar hér á landi án þess að þar sé allt fljótandi í áfengi. Hver einasta helgi í 101 Reykjavík er reglubundinn vitnis- burður um það hversu átakanlega bitlaust það er sem vopn í viður- eigninni við óhóflega áfengisneyslu að hafa verðið á víninu svona hátt. Ef fólk vill vín, fær það sér vín. sem hátt áfengisverð gerir er að gera alkóhólista gjald- þrota. Mér finnst það í öllu falli ákaflega ósannfærandi, án þess að ég leggi til grundvallar neinar rann- sóknir á því, að ætla sem svo að manneskja sem er háð áfengi muni hætta að drekka vegna þess að það sé svo dýrt. Ég myndi ætla að það væri beinlínis skilgreiningaratriði á sjúkdómnum að alkóhólistar setji vínið framar heimilisbókhaldinu. ekki væri nema bara af þessum sökum er ríkisokrið á áfengi bein- línis ómannúðlegt. Færa má fyrir því rök að ríkið maki krókinn á áfengisvandræðum þegnanna og auki þar með eymd þeirra. Hvernig vandi þessa fólks er leystur með því að hafa vínið dýrt er vandséð, og dæmið verður enn vandséðara í til- viki þeirra alkóhólista sem eiga skít- nóg af pening, en þeir eru líka til. sem ekki á í vand- ræðum er vitaskuld ekki síður umhugsunarverð. Tvö rauðvínsglös á dag eru beinlínis holl. Á bar kostar slíkt heilbrigði 1.600 krónur á dag. Það eru hvorki meira né minna en 584.000 krónur á ári. Það er álíka mikið og ársafborgun af nokkuð þokkalegri bifreið. Spurningin um bíl eða vín hefur þannig fengið nýja merkingu. Ekki er bara spurt hvort menn ætli að keyra eða drekka, heldur er önnur spurning beinlínis orðin viðeigandi í ljósi verðlagsins: Hvort er betra að kaupa sér, bíl eða rauðvín? Vínverð ÚTSALA 5. júlí - 29. júlí
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.