Fréttablaðið - 21.07.2007, Síða 30

Fréttablaðið - 21.07.2007, Síða 30
hús&heimili VÍNPOKINN eftir Josh Jakus er gerð- ur úr ullarfilti. Pokinn er saumaður á hlið- unum með gati sem verður að handfangi þegar vínflösku hefur verið komið fyrir í pok- anum. Jakus býr til fleiri nytsama hluti úr sama efni. Til dæmis bakka í líki eggjabakka og veski. www.joshjakus.com OFURHETJAN VAN GOGH Í versluninni Kisunni á Lauga- vegi er hægt að fá skemmtilegar en heldur óvenjulegar ofurhetjur. Meðal annars þennan flotta Vinc- ent Van Gogh sem hægt er að setja í mismunandi stellingar auk þess sem skipta má um haus á honum. Þá fylgja honum ýmsir aukahlutir eins og penslar og málverk. hönnun Forsíðumynd: Anton Brink tók þessa mynd af Díönu Bjarnadóttur á heimili sínu. Útgáfufélag: 365 - prentmiðlar, Skaftahlíð 25, 105 Reykjavík, sími: 550-5000 Ritstjórar: Kristín Eva Þórhallsdóttir kristineva@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is. Auglýsingar: Ámundi Ámundason og Ásta Bjartmarsdóttir s. 5175724 Útlitshönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is. ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir Ökunám í fjarnámi !!!! Ekill ökuskóli er eini ökuskólinn á landinu sem býður upp á ökunám í fjarnámi. Þú getur unnið námskeiðin í tölvunni heima þegar þér hentar. Skoðaðu þennan frábæra kost á ekill.is Námskeið sem hægt er að taka nú þegar eru fyrra námskeið til almennra ökuréttinda (Ö1) og bifhjólanámskeið. Fleiri námskeið eru væntanleg á næstu mánuðum Ö2 námskeið / Aukin ökuréttindi / Fyrir lesblinda ofl. Ekill ökuskóli. Sími 461-7800 www.ekill.is ekill@ekill.is Þegar Díana og maður hennar, Árni Þór, fluttu heim til Íslands frá Hollandi keyptu þau íbúð hérlendis án þess að hafa skoðað hana. Vinkona Díönu sendi henni grunnteikningar af íbúðinni, sem þá var verið að byggja, og lýsti staðsetningunni og umhverfinu. Þetta var nóg til að Díana og Árni keyptu íbúðina óséða. „Við náðum að stoppa ferlið áður en búið var að setja gólfefni, skápa og innréttingar í íbúðina þannig að við fengum að hanna hana að innan eftir eigin höfði,“ segir Díana en hönnun er eitt af hennar aðaláhugamálum. Meðal þess sem Díana breytti var að hafa enga eiginlega skápa í íbúðinni. „Mér er illa við skápa og vildi þess vegna fara aðra leið,“ segir Díana. „Við erum til dæmis með fataherbergi í svefnherberginu í stað skáps en það er draumur hvers kvennmans. Svo erum við einnig með herðatré í vírum í stað fata- skáps í anddyrinu.“ Á heimilinu kennir ýmissa grasa og hefur parinu tekist einkar vel að blanda saman gömlum munum og nýjum. „Mér finnst gaman að blanda saman per- sónulegum munum tengdum þeim sem mér þykir vænt um við þá tísku sem er í gangi núna,“ segir Díana. „Góðir hlutir gerast líka hægt þannig að við höfum verið að safna húsgögnum og klára íbúðina jafnt og þétt.“ Á veggjum íbúðarinnar hanga nokkur málverk sem Díana hefur málað sjálf. Löngunin til að mála kvikn- aði í Hollandi þrátt fyrir að innblásturinn væri af ís- lenskum toga. „Það er svo mikið flatlendi í Hollandi að ég fór að sakna íslensku fjallanna,“ segir Díana. „Þá kviknaði löngunin að byrja að mála fjöllin. Þess vegna fékk ég mér striga og olíuliti og þetta hefur verið áhugamál hjá mér síðan.“ tryggvi@frettabladid.is Gamalt og persónu- legt í bland við nýtt Á heimili Díönu Bjarnadóttur og Árna Þórs Snorrasonar má finna fallega antíkmuni í bland við nýstárlega hönnun. Veggina prýða málverk Díönu en löngunin að mála kviknaði af söknuði eftir íslensku fjöllunum.. Díana Bjarnadóttir segir góða hluti gerast hægt og að henni liggi ekkert á að sanka að sér húsgögnum. Þessi skápurvar í skrifstofuhús- næði Árna Þórs en þegar endurnýja átti húsgögnin þar var honum boðið að hirða skápinn. Í ljós kom að skápurinn er fágæt antík úr einstökum við. Í stað fataskáps í anddyri Díönu eru herðatré sem hanga í vírum úr loftinu. Skemmti- leg og lifandi lausn og eins og Díana orðar það sjálf er „aldrei drasl í þess- um fataskáp“. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Borðstofuborðið er frönsk eik frá 18. öld. Fremst á myndinni er gamall hollenskur stóll sem var fyrsta húsgagnið sem Díana og Árni Þór keyptu. Hina stólana fékk Díana er hún var 17 ára frá ömmu sinni. 21. JÚLÍ 2007 LAUGARDAGUR2

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.