Fréttablaðið - 21.07.2007, Síða 24

Fréttablaðið - 21.07.2007, Síða 24
Barnshafandi konur ættu alltaf að nota bílbelti. Meðgöngubíl- belti veita ekki aukna vernd. Loftpúðar vernda alla öku- menn og farþega, þar með talið verðandi mæður. Volvo er einn fárra framleiðanda, ef ekki sá eini, sem hannað hefur sérstaka óléttudúkku til að nota í öryggisrannsóknum. Dúkkan er kölluð Linda og er hún hönnuð til að gefa sem réttustu mynd af áhrifum áreksturs á konu og fóst- ur á síðari stigum meðgöngu. Þær niðurstöður sem fengist hafa með hjálp Lindu sýna svart á hvítu mikilvægi bílbelta og mikil- vægi þess að nota þau rétt. Hafa skal sætið þannig stillt að barns- hafandi ökumaður sé eins langt frá stýrinu og mælaborðinu og mögulegt er en þó verður hann að eiga auðvelt með að ná í stjórn- stigin í gólfi. Toga skal mjaðmabeltið yfir lærin og skorða það vel allra neðst við mjöðmina þannig að það styðji við bæði mjaðmagrindar- beinin. Svo skal toga beltið þétt upp að líkamanum. Gæta skal þess að mjaðmabeltið haldist kyrrt en dragist ekki upp á mag- ann. Axlarbeltið á að liggja yfir bringuna milli brjóstanna þétt upp við ökumann. Aldrei má setja axlarbeltið undir handlegginn eða aftur fyrir bak, það getur skaðað bæði ökumann og barn. Að gefnu tilefni skal það tekið fram að svokölluð beltisstýring, eða meðgöngubílbelti, eru ekki öryggisbúnaður. Hlutverk þeirra er að veita þægindi, ekki vernd. Samkvæmt rannsóknum heldur neðri hluti meðgöngubílbeltis ekki við árekstur. Búnaðurinn er einfaldlega ekki nógu sterkur til þess. Loftpúðar veita öfluga vernd fyrir óléttar konur. Þess skal þó gæta að hafa sætið alltaf eins aft- arlega og mögulegt er, eða sem lengst frá púðanum, til að gæta fyllsta öryggis. Þeir sem vilja kynna sér öryggi vanfærra kvenna og barna í bílum geta skoðað niðurstöður Volvo á www.volvocars.co.uk/childsafety. Öryggi barnshafandi kvenna í umferðinni Opel Antara er kominn til landsins. Opel hefur sent frá sér nýjan jeppling, Opel Antara. Jepplingur er með 2,0 lítra dísilvél sem skilar 150 hestöflum og 320 Nm togi. Opel Antara er ætlað að vera þægilegur ferðabíll. Hann er frekar hár miðað við jepplinga, farangursgeymslan er 420 lítra en henni er hægt að breyta í 1.420 lítra með því að fella niður aftursætin. Opel Antara ætti einnig að ráða vel við flestar gerðir hjól- og felli- hýsa því dráttargeta bílsins er 1.700 kg. Fyrstu bílarnir eru komnir í hús hjá Ingvari Helgasyni og eru þeir í cosmo-útfærslu. Bíllinn kostar 3.890.000 krónur. Jepplingurinn Opel Antara kominn A ug lý si ng as ím i – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.