Fréttablaðið - 21.07.2007, Page 21

Fréttablaðið - 21.07.2007, Page 21
aftur til Austur-Þýskalands. Það hefði verið auðvelda leiðin en aldrei sú rétta. Sem betur fer varði heimþráin til Þýskalands ekki nema í nokkrar vikur. En það má svo sem segja að við höfðum verið vöruð við. Okkur hafði verið sagt að taka því rólega fyrst og vera ekki að flýta okkur neitt, þannig að ég tók þá ákvörðun að láta námið bíða um sinn. Ég hafði bara ekki þrjá tíma í sólarhringnum til að eyða í lestarferðir. Seinna fór ég að vísu í leikmyndahönnun og þar fann ég nám sem mér fannst virki- lega forvitnilegt og á örugglega eftir að klára það. Mér fannst sá heimur mjög spennandi og allar þessar pælingar á bak við leik- myndirnar.“ En Kristín hefur aldrei litið á þessa þróun á lífinu sem fórn – að hún sé að fórna sínum tækifærum fyrir feril Óla? „Nei, ég hef aldrei gert það og hef alltaf notið þessa alls í botn. En oft heldur fólk það – að ég sé að fórna mér á altari Óla og ég hljóti nú bráðum að fara að drífa í því að gera eitthvað fyrir sjálfa mig. En það er svo misjafnt hvað fólk þarf og á hvaða tíma. Þetta eru árin sem börnin eru lítil, við höfum tækifæri til að búa á Spáni og njóta þess lífs í botn, sinna börnunum og höfum tíma hvort fyrir annað. Síðar kemur svo tíminn þar sem það sama verður ekki upp á teningnum og ég get til dæmis ekki hugsað mér þegar við flytjum heim að vera heimavinn- andi.“ Að flytja heim. Hljómar slíkt und- arlega í eyrum Kristínar? Sér í lagi að flytjast frá Spáni – landinu þar sem börnin koma heim í hádeg- inu og taka síestu til þrjú og fjöl- skylduvænt umhverfið leyfir for- eldrunum að taka börnin með á veitingastaði og dvelja til mið- nættis án þess að nokkur fetti fing- ur út í það. „Hingað til hef ég verið kvíðin fyrir því að koma heim. Að ég hreinlega kunni ekki að búa hérna. Ég var svo mikið barn þegar ég fór út og finnst ég búin að missa af svo miklu, þótt við dveljum að vísu á landinu hvert sumar. Það er mun meiri hraði í þjóðfélaginu og miklir peningar og lífsgæðakapp- hlaupið er strembnara. Óli er að minnsta kosti með endalausar hug- myndir og pælingar um hvað hann ætli að gera þegar heim er komið. Mér þætti betra að vera búin að setja það niður fyrir mér hvað ég mun gera en Óla finnst hann vera að missa af einhverju skemmti- legu hér á Íslandi. Það kemur þá bara í ljós og það má alltaf flytja út aftur – það er það stórkostlega við frelsið.“ Helga Soffía, sem setið hefur þol- inmóð og hlustað á móður sína síð- asta klukkutímann, er orðin þrí- tyngd. Þýskuna skilur hún vel og hún er altalandi á spænsku og íslenku. Kristín Soffía segir að þau systkini séu mjög ólík. Helga Soff- ía var í austur-þýskum leikskóla þar sem allt var í röð og reglu og pínulítil voru þau látin hátta sjálf ofan í lítil rúm sem lágu í röð og brjóta fötin saman. Einar var ekki nema eins og hálfs árs þegar þau fluttu til Spánar og er því mun mót- aðri af spænska umhverfinu. Helga Soffía læðir því að að bróðir henn- ar nenni sko engu – leggist bara og bíði eftir því að hún og móðir henn- ar klæði hann úr sokkunum. Í dag ganga þau bæði í kaþólskan skóla í bænum Ciudad Real á Spáni. Morgnar byrja á maríubænum og nunnur vappa í kring og Kristín Soffía segist vera afar glöð að krakkarnir fái að kynnast þessari menningu og bara sem flestu í líf- inu. En hver er galdurinn – að geta búið svo fjarri fjölskyldu sinni, með eiginmanni og börnum í yfir 10 ár og ekkert farið í hund og kött? „Ég hef oft sagt í hálfkæringi að við værum örugglega löngu skil- in værum við á Íslandi. Hér er svo mikill hraði og áreiti að mér finnst það stundum hreinlega hræðandi. Það er líka svo auðvelt að búa í samfélagi þar sem allt er á þönum og komast í raun aldrei að því hvort þú og maki þinn eigið skap saman. Alltaf hægt að dreifa athyglinni annars staðar. En úti, þar sem hvergi er hægt að flýja neitt og þú situr uppi með þennan eina félags- skap – þar kemstu fljótt að því hvort þetta gangi eður ei.“ P IP A R • S ÍA • 7 12 10 Nánari upplýsingar á www.landsvirkjun.is og í síma 515 9000 „Hvað er með Ásum?“ Ævintýraferð í goðheima fyrir alla fjölskylduna. Goðastyttur Hallsteins Sigurðssonar við texta Árna Björnssonar, þjóðháttafræðings. Laxárstöðvar í Aðaldal Orka í iðrum jarðar! Heimsækið gestastofuna í Kröflu, sjáið myndir frá Kröflueldum. Kynnist jarðvarma og orkuvinnslu. Kröflustöð í Mývatnssveit Kraftverk Listaverk sem sjaldan hafa komið fyrir almenn- ingssjónir – mörg hver með áhugaverða sögu sem tengist Landsvirkjun og orkumálum. Kjarval, Ásgrímur, Gunnlaugur Blöndal og fleiri. Ljósafossstöð við Sog Kynnist Kárahnjúkavirkjun! Upplýsingar um Kárahnjúkaframkvæmdirnar ásamt ferðamennsku og útivist norðan Vatnajökuls. Góður viðkomustaður áður en haldið er upp á Fljótsdalsheiði. Végarður í Fljótsdal. Opið 9–17 alla daga. Líf í Þjórsárdal Ómissandi viðkomustaður á leiðinni inn á Sprengisand og í Veiðivötn. Sultartangastöð ofan Þjórsárdals Heimsókn í Húnaþing Kynnið ykkur orkumál og starfsemi Blöndustöðvar í starfsmannahúsi stöðvarinnar. Blöndustöð, Húnaþingi Kynnist okkur af eigin raun Heimsækið Landsvirkjun í sumar. Stöðvarnar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar. Komdu í heimsókn í sumar! Landsvirkjun býður landsmönnum að heimsækja sex stöðvar í sumar þar sem bæði er hægt að kynna sér staðreyndir um umhverfisvæna íslenska orku og skoða fjölbreyttar sýningar um menningu, list og sögu. Íslensk orkumál og virkjanir – alþjóðleg fyrirmynd í umhverfismálum

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.