Fréttablaðið - 21.07.2007, Page 14

Fréttablaðið - 21.07.2007, Page 14
L júfur, traust- ur, heiðar- legur og dug- legur eru meðal orða sem koma oft fyrir þegar vinir og vanda- menn Sigurðar Kristj- áns Oddssonar þjóð- garðsvarðar á Þing- völlum eru beðnir að lýsa honum. Sigurður hefur staðið í eldlínunni í deilum um barrtré sem stendur til að fella í þinghelgi þjóðgarðs- ins. Sigurður verður seint sakaður um að bera ekki virðingu fyrir náttúrunni því hann er mikill náttúruunnandi sem hefur gaman af útivist. Ræktar skóg í frítíma og hefur jafnframt mikinn áhuga á sögu. Því hentar starfið sem þjóðgarðsvörður honum einstaklega vel sem og hann starfinu. Sigurður fæddist á Hafursá í Vallahreppi en ólst upp á Akureyri þar sem fjölskyldan bjó í Helgamagra- stræti. Tilheyrði hann, ásamt bróður sínum Guðmundi, því brekkusniglum þegar kom að kappleikjum og stríði. Að loknum grunn- skóla lærði Sigurður skipa- og trésmíði á Akureyri og starfaði sem smiður fram yfir tvítugt er hann hélt til Stokkhólms og lærði tæknifræði. Að námi loknu hóf Sigurður störf sem tæknifræð- ingur hjá Vegagerð- inni. Því næst tók hann við starfi bygginga- fulltrúa Hafnarfjarðar. Hann var einn af stofnendum og eigendum Tækniþjón- ustunnar verkfræði- stofu þar sem hann starfaði í 25 ár eða til ársins 1995 er hann tók við starfi þjóðgarðs- varðar og hefur gegnt því starfi síðan. „Hann fór fyrst og fremst í þetta starf á Þingvöll- um því náttúran þar heillaði hann,“ segir nákominn ættingi. Sigurður er kvæntur Herdísi Tómasdóttur og eiga þau þrjú börn. Tómas Már, verkfræð- ingur og forstjóri Fjarðaáls, er elstur. Kristín Vilborg, leirlistakona og kennari, er í miðjunni og yngst er Sigríður Björg listmálari sem starfar að mestu í Glasgow. Þau hjónin hafa í 25 ár verið í gönguklúbbi og fara árlega í göngu um hálendið. „Þau hafa gengið um þvert og endi- langt Ísland,“ sagði einn viðmælandinn. Á veturna þykir þeim gaman að skíða og fara gjarnan norður til Akureyrar á heimaslóðir Sigurðar og renna sér í Hlíðarfjalli. Önnur áhugamál Sigurðar eru meðal annars tónlist en hann hlustar mest á klassíska tónlist og stundum djass. Einnig hefur hann gaman af sænskri þjóðlagatónlist sem hann kynntist á námsárum sínum í Svíþjóð. Á uppvaxtarárun- um á Akureyri var Sigurður ötull í skátastarfi ásamt því að vera félagi í Flugbjörgunarsveit- inni. Það var einmitt í gegnum vinkonu úr skátunum sem hann kynntist Herdísi fyrir rúmum fjörutíu árum síðan. Sigurður og Herdís eiga sumarbústað og stunda þar skógrækt af kappi. Þar er Sigurður einnig með smíðahús og ver hann miklum tíma í að byggja og bæta bústaðinn. „Hann er hættuleg fyrirmynd að því leyti að hann stoppar aldrei. Hann hefur alltaf eitthvað fyrir stafni. Er alltaf að smíða eitthvað og bæta og breyta,“ segir einn viðmæl- andinn kíminn. Til margra ára hefur Sigurður verið félagi í Rótarýklúbbi Seltjarnarness þar sem hann er mjög vel liðinn að sögn félaga hans úr klúbbnum. Fyrir hönd klúbbsins hefur hann meðal annars tekið þátt í viðhaldi Albertsbúðar í Gróttu, síðustu minjum útgerðar á Seltjarnarnesi. Fyrr á þessu ári fór Rótarý- klúbburinn í skemmtiferð til Færeyja þar sem Sigurður hlaut Paul Harris-viðurkenningu klúbbsins. Hann þykir einstaklega barngóð- ur maður. „Barna- börnin dýrka hann,“ segir fjölskyldumeðlimur. Sem uppalandi var hann hreinn og beinn og vissi hvernig hann vildi hafa hlutina. Jafnvel örlítið strangur en þó ávallt sanngjarn. „Ef hann var búinn að ákveða hlutina þá gilti það.“ Stundar skógrækt og smíðar af kappi Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.