Morgunblaðið - 16.03.2003, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 16.03.2003, Blaðsíða 34
SKOÐUN 34 SUNNUDAGUR 16. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ VIÐ nyrðri enda Tjarnarinnar í Reykjavík, á uppfyllingunni að vest- anverðu, kúrir lágreist og hógvær bygging. Þetta er ráðhús Reykjavík- ur. Síðustu rúmlega átta ár hefur þetta hús verið aðsetur borgarstýru allra Reykvíkinga, Ingibjargar Sól- rúnar Gísladóttur og áður en hún kom þar til starfa voru þar í húsmennsku þrjár kynslóðir embættismanna af út- völdum sjálfstæðisættum. Liðnir og gengnir borgarstjórar í Reykjavík: Páll Einarsson, Ólafur Lárusson, Knud Zimsen, Pétur Halldórsson, Bjarni Benediktsson, Gunnar Thor- oddsen, Auður Auðuns, Geir Hall- grímsson, Birgir Ísl. Gunnarsson, Egill Skúli Ingibergsson, Davíð Oddsson, Markús Örn Antonsson og Árni Sigfússon voru reyndar líka borgarstjórar allra Reykvíkinga – þeim bara láðist að taka það fram, lík- lega hafa þeir talið þetta of sjálfsagð- an hlut. Reiðarslag Sjálfstæðisflokksins Eitt mesta reiðarslag síðari tíma í íslenzkri pólitík gekk yfir blessaðan Sjálfstæðisflokkinn allnokkru fyrir byggðakosningarnar 1994, er ljóst varð að Reykjavík myndi tapast í kosningum fyrir sameiginlegu lista- framboði allra annarra flokka í borg- inni undir forystu Ingibjargar Sól- rúnar Gísladóttur alþingiskonu og sagnfræðings. Skýringar þessara fyrirséðu mála- loka voru reyndar fjölmargar og sum- ar æði langsóttar. Þegar Davíð Oddsson kaus að hverfa til æðri metorða hjá þjóð sinni nokkrum árum áður, hafði safnazt í borgarstjórnarflokk hans einkar geð- fellt og átakalítið lið, sem kosið hafði að hlýða gagnrýnislítið forystu hans um 8–10 ára skeið. Hópurinn kom sér ekki saman um nýjan borgarstjóra, en Davíð Oddsson skrapp og sótti far- sælan og litlítinn mann hjá Ríkisút- varpinu og hafði sá árum saman verið forseti borgarstjórnarinnar. Markús Örn náði ekki að markaðs- setja þá ímynd um borgarstjórann, sem tengdi fortíð við framtíð, nándin við hið glæsta tímaskeið Davíðs Odds- sonar var of mikil, vaxandi erfiðleikar í samfélaginu, borgarfulltrúar hans of pasturslitlir til að mynda sannfærandi og litríka breiðfylkingu útávið, enda voru þeir flestir handvaldir til setu sinnar af fyrrverandi borgarstjóra. Þegar nær dró hinum vonlitlu kosn- ingum fór markaðssetning D-listans öll í hinum mestu handaskolum – gripið var til þess ráðs að skipta um borgarstjóraefni rétt fyrir kosning- arnar og misheppnaðist það, líkt og flest hjá flokknum í þessari pólitísku baráttu. En allt öðruvísi var umhorfs í her- búðum óvinarins, R-listans. Þar ríkti eindrægnin ein og líflegur áhugi og allir virtust fylkja sér sannferðuglega um foringjann. Jarðvegur Ingibjargar Sólrúnar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er fædd 31. desember ótiltekið ár, í steingeitarmerkinu og um hana segir í fornum stjörnuspáfræðum: „Þetta er hið dimma og dula merki jarðar- innar. Í því er hin hulda alheimssaga, einvera og djúpar hugsanir. Þetta fólk er glaðlynt og skemmtilegt og ríkulegt, en svo fær það aftur á móti dapurleikaköst og finnst þá allt ganga sér í mót. Kvenfólkið er viðkvæmt mjög og betur fallið til stjórnar en karlmennirnir. Í peningasökum er það hyggið og sparsamt og stjórnar vel heimili. Framúrskarandi væri það til þess fallið að stjórna vinnuhjúum hjá opinberum stofnunum. Aðalgallar þess eru sjálfselska og vantraust á sjálfu sér, einnig er það oft málgefið og finnast erfiðleikar sínir meiri en annarra. Ekki er það fljótt til reiði, en verður grimmt og ákaflynt, sé rétt- indum þess undir fótum troðið. Og heldur góðu jafnvægi og hefur stjórn á sjálfu sér. Fæðingarsteinar eru hvítur onyx og tunglsteinn. Stjórn- andi pláneta er Satúrnus.“ Ingibjörg Sólrún er vaxin úr jarð- vegi kvennalistans. Kvennalistinn var beinn arftaki og nútímalegt framhald hinnar gömlu, íslenzku kvenfrelsis- baráttu, sem hófst hérlendis á 19. öld. En þetta vildu þessar elskur hjá kvennalistanum nú aldrei samþykkja – þar var hinn óskiljanlegi band- prjónafemínismi alfa og ómega. Kvennalistinn hafði lengstum heið- arlegt yfirbragð og til frammistöðu þar völdust fágaðar og menntar kon- ur, sumar með fjallkonusvip, aðrar öllu griðkonulegri og hreyfingin spannaði allt hið kvenlega litróf. Hin þokukenndu fræði femínismans náðu þó engan veginn verulegri höfðun nema í mjög þröngan hóp. Ímynd kvennalistans heitins mót- aðist helzt vegna frammistöðu ein- staklinga innan hans: Sigríður Dúna, skýr og skilmerkileg og gædd þessari fáguðu irrítasjón. Guðrún Agnars- dóttir, prýdd einlægri umbótavið- leitni, næstum einum um of – og skarpri greiningarhæfni. Kristín Halldórsdóttir ávann sér hylli fyrir sjarmerandi og drungalega mælsku. Og Ingibjörg Sólrún, búin fágætum málflutningshæfileikum. Það má segja, að þeir eiginleikar, sem bezt hafa nýtzt borgarstýru allra Reykvíkinga séu afvopnandi skýr- leiki, strákslegur kvenþokki og góð hrynjandi styrkrar raddar og hafa þessi atriði fært henni tiltrú langt inní raðir annarra flokka, einnig Sjálf- stæðisflokksins. Auk þessa náði kvennalistinn að verða einskonar sál- fræðilegt framhald þess þjóðfélags- lega fyrirbrigðis, sem kalla mætti Vil- mundarvæðingu og hafði innbyggðan siðferðislegan undirtón. Ingibjörg Sólrún hafði líka umfram flesta meðreiðarsveina sína og skjald- meyjar mikla þekkingu á íslenzkri stjórnmálasögu. Og hún vissi, að til að skilja nútíðina er gott að þekkja for- tíðina. Lokaritgerð hennar til B.A.- prófs í sagnfræði fjallaði um vinstri andstöðuna í Alþýðuflokki árin 1926– 1930, árin, sem uppgjörin hófust milli Alþýðuflokksmanna og kommúnista, sem síðar leiddu til stofnunar Komm- únistaflokks Íslands, síðar Sósíalista- flokksins, enn síðar Alþýðubanda- lagsins og nú heita þessi samtök því uppbyggilega nafni Samfylkingin. Ritgerð Ingibjargar er samin af mik- illi þekkingu á stjórnmálasögu þessa tímabils, fágætri snerpu og innsæi. Það sýndi sig fljótlega undir for- ystu borgarstýru allra Reykvíkinga, að ósamlyndi og skæklatog meirihlut- ans varð nánast aldrei opinbert vandamál. Það má þakka siðferðisleg- um styrk hennar að hafa lag á því að bægja frá fjölmiðlum hrokabelgingi eigin stuðningsmanna og sjaldan komu uppá yfirborðið þessi 8 ár veru- leg sóttbirgði um sundurlyndisfjand- ann, sem allsstaðar ríður húsum í þessu fámenna samfélagi. Og henni tókst líka að mestu að halda í skefjum lítt bælanlegri lífskjaragræðgi og valdafíkn jafnaldra hennar í hippa- kynslóðinni og fyndnu kynslóðanna, óþreyjustressi hinna framagjörnu vinstri uppa, sem hreiðruðu makinda- lega um sig í valdastöðum höfuðborg- arinnar. Til til þess arna þurfti hún vissulega á að halda öllum þeim sið- ferðisstyrk, sem býr í blóði hennar og genum. Borgarstýrutíðin Þegar borgarstýra allra Reykvík- inga settist á hinn nýja valdastól voru fyrir í ráðhúsinu þrjár kynslóðir æði daufgerðra og lífsleiðra embættis- menna af prýðilegum sjálfstæðisætt- um. Ýmsir þessara aðilja sýndu hinni aðsópsmiklu borgarstýru andstæð- inganna allnokkra kergju í byrjun og efuðust um ýmislegt ráðslag hennar. Ef þeir sáu ekki fljótlega að sér, voru þeir lóðsaðir útúr kerfinu með ýmsum hætti, lítillækkaðir í starfi, starfssvið- um breytt eða þokkalegir starfsloka- samningar gerðir við einstaka þeirra. Hin mjúka kvennalistahönd beindi fljótt athygli sinni að ýmsum mjúkum málum: Stórsókn hófst í leikskóla- geiranum og skólar þutu upp, arki- tektastéttinni til mikillar ánægju. Stórfelldar skipulagsbreytingar hafa verið framkvæmdar í stjórnkerfi borgarinnar þessi árin, fjölmargar þeirra til mikillar hagræðingar og konum fengin ábyrgð og atbeini í rík- um mæli. Og var tími til kominn. En sjálf borgarstýra allra Reykvík- inga var gerð nánast ósnertanleg fyr- ir hinn „litla“ borgarbúa. Heilmikið batterí var búið til kringum topp pýramídans; þar sátu á fleti fyrir steigurlátar vinkonur borgarstýrunn- ar, sem beindu fólki til þeirra emb- ættismanna, sem erindin heyrðu und- ir og spöruðu toppstykkinu heilmikinn tíma, sem nýttist henni vel BORGARSTÝRA ALLRA REYK- VÍKINGA – IN MEMORIAM Eftir Braga Kristjónsson „Hvort marggreind- ir hæfileikar Ingibjargar Sólrúnar og kostir nýtast í hinum nýju skotgröfum Sam- fylkingarinnar innan um kraumandi afbrýði allra bryndísanna og öss- uranna kemur í ljós á næstu vikum.“ TILEFNI þessara skrifa er grein Árna Gunnarssonar, framkvæmda- stjóra Heilsustofnunar NLFÍ í Hveragerði í helgarblaði Morgun- blaðsins 12. janúar 2003. Árni tekur dæmi frá Bandaríkjunum máli sínu til stuðnings, en þaðan er ég nýflutt- ur eftir næstum 13 ára dvöl. Eftir að sérfræðinámi á stóru hátæknisjúkra- húsi lauk hóf ég störf á læknastöð og minna sjúkrahúsi sem um margt svipar til íslenskra sjúkrahúsa. Þar vann ég sem almennur lyflæknir við forvarnir og lækningar, innan spítala sem utan, sem sérfræðingur í gigt- lækningum og einnig við kennslu og rannsóknir. Ég kynntist því banda- rísku heilbrigðiskerfi vel en lít hér nú margt gestsauga og sé því miður van- kanta þar sem ég sá enga áður. Bandarískt heilbriðiskerfi er ekki gallalaust, en þó getum við margt gott af því lært. Er íslenskt heilbrigðiskerfi gott? Flestir sem rita um íslenska heil- brigðiskerfið, nefna að það sé eitt það besta í heiminum. Þessi fullyrðing er oftast sett fram án rökstuðnings. Líklega er lesendum ætlað að líða vel af því einu að trúa því að þeir búi við svona góða heilbrigðisþjónustu. Ung- barnadauði er að vísu blessunarlega lágur hér á landi og langlífi mikið, en það segir ekki endilega um allt um gæði og skilvirkni heilbrigðiskerfis- ins. Stundum eru til stuðnings nefnd dæmi um að hér á landi séu gerðar margar flóknar skurðaðgerðir og að hér séu til fín rannsóknatæki, en þó að þessi dæmi séu rétt, eru þau ekki endilega sönnun þess að kerfið sjálft sé gott eða að það nýtist almenningi vel. Við yfirborðskennda skoðun get- ur íslenskt heilbrigðiskerfi virst ágætt, en þegar nánar er skoðað er það e.t.v. ekki eins gott og við vildum að það væri. Aðgengi Til að heilbrigðiskerfið gagnist fólki vel, þarf að vera auðvelt að finna góðan lækni. Það mun oft vera löng bið eftir tímum hjá læknum, bæði heimilislæknum og sérfræðingum og þekki ég dæmi þess úr eigin fjöl- skyldu. Móðir mín þurfti að finna sér nýjan heimilislækni eftir að læknir hennar lét af störfum. Hún bað mig að greiða götu sína og hafði ég sam- band við lækni sem gott orð fór af. Læknirinn tók erindinu vel, kvaðst geta annast móður mína og bað hana að hringja til að panta tíma. Þegar hún hringdi, nokkrum dögum síðar var henni tjáð að ekki væri bókað á þennan lækni í bili, en henni boðið að hringja eftir viku. Þetta var í maí 2002. Móðir mín hringdi reglulega um hríð en er ekki enn búin að fá tíma og hefur sjálfsagt gefið upp alla von um að fá hann nokkurntíma. Kerfið er ekki gott ef fólk kemst hvergi að og er jafnvel án heimilislæknis. Biðlistar Afköst heilbrigðiskerfisins eru oft mæld í biðlistum. Það er rangur mælikvarði. Biðlistar eiga ekki að vera til og eru einungis merki um að kerfið hafi brugðist og sinni ekki því sem til er ætlast. Lengd biðlistanna er því einungis mælikvarði á hversu mikinn vanda þarf að leysa þar til hægt er að snúa sér að því að byggja upp betri þjónustu sem nýtist sjúk- lingum til lækninga og forvarna. Sjúkrahúsvist Yfirfullar sjúkrahúsdeildir eru einnig merki um illa skipulagða starf- semi. Enn viðgengst sá ósiður, jafn- vel á bestu sjúkrahúsum landsins, að leggja sjúklinga í rúm á göngum sjúkrahúsdeilda. Slíkt ætti ekki að þekkjast á vorum velsældartímum. Veikt fólk á heimtingu á því að fá rúm á sjúkrastofu, þar sem ummönnun tekur tillit til líkamlegra og andlegra þarfa þeirra, sem og þeirrar friðhelgi sem hver einstaklingur hefur kröfu á. Að híma bak við tjald á fjölförnum gangi er ekki líklegt til að bæta heilsu nokkurs manns. Sjúkrahúsvist er kostnaðarsöm og ætti því að vera sem styst. Æskilegt er að sá læknir sem best þekkir sjúk- linginn taki þátt í þeirri meðferð sem fram fer innan sjúkrahúsa. Auka þarf því þátttöku heimilislækna í sjúkra- hússtarfi. Sjúkrahúslegan er aðeins liður í þeirri meðferð sem oft hefst á stofu læknis og heldur þar áfram að lokinni sjúkrahúsvist. Til að stytta sjúkrahúsleguna þarf að auka heima- hjúkrun og meðferð sjúklinga í heimahúsum. Þar sem ég starfaði í Bandaríkjunum er mun auðveldara en hér að gefa fólki kost á hjúkrun, sjúkraþjálfun, innrennslislyfagjöf, líknarmeðferð o.fl. í heimahúsum og endurhæfingarstöðvum, enda vita tryggingarfélög þar að þessi meðferð er oftast ódýrari utan sjúkrahúsa en innan og eru því fús til að greiða fyrir hana. Lyf Lyf eru dýr á Íslandi sem víða ann- ars staðar. Læknar leitast við að gefa sjúklingum sínum bestu lyf sem völ er á en ekki endilega þau dýrustu. Lyf eru einnig dýr í Bandaríkjunum en þar er oftast hægt að finna ódýrari samheitalyf sem eru bæði sjúkling- um og tryggingarfélögum ódýrari. Ýmis góð lyf fást ekki á Íslandi vegna þess eins að þau eru svo ódýr að ekki þykir taka því að markaðssetja þau. Að vísu má oft fá þau með sérstakri undanþágu, aukalegu vafstri og skriffinnsku, en það á ekki að vera erfiðara fyrir lækna að nota ódýr lyf sem eru jafngóð eða betri þeim sem dýrari eru. Lyf skal einnig afgreiða og gefa á sem hagkvæmastan hátt. Sum krabbameinslyf og gigtarlyf, sem hér tíðkast að gefa eingöngu inn- an sjúkrahúsa má gefa á ódýrari hátt á læknastofum. Markmið heilbrigðiskerfisins; sparnaður eða heilbrigði Íslenskt heilbrigðiskerfi virðist vera rekið með það fyrir augum að það megi ekki kosta of mikið. Sparn- aður er virðingarverður, en gallinn er sá að ef einblínt er á sparnað, tapast megintilgangur heilbrigðisþjónust- unnar sem er að fyrirbyggja sjúk- dóma og lækna veikt fólk. Ef aðal- áherslan er á sparnað er best að starfsemin sé sem minnst í sniðum og sem lítilfjörlegust. Glöggt dæmi um þessa röngu sýn í verki eru lokanir sjúkrahúsdeilda. Sparnaði er náð á kostnað þjónustunnar. Reksturinn kostar þá minna en gallinn er sá að enginn læknast á lokaðri deild. Samvinna stétta Ólíkt því sem ég á að venjast í Bandaríkjunum er hér fremur lítil og oft stirð samvinna er milli heilbrigð- isstétta. Það virðist ríkja togstreita milli lækna, hjúkrunarfræðinga og annarra stétta um peninga, völd og áhrif og meira mætti vera um að fólk úr mismunandi heilbrigðisstéttum ynni saman innan sjúkrahúsa sem ut- an. Af mínum stuttu kynnum af læknastofum á Íslandi virðist mér undantekning ef hjúkrunarfæðingar vinna þar við hlið lækna. Ég hef per- sónulega reynslu af slíkri samvinnu á læknastofum í Bandaríkjunum og veit að með henni má ná betri þjón- ustu og meiri afköstum en tíðkast hér á landi. Forvarnir Oft er nefnt að hér sé lögð mikil áhersla á forvarnir. Í vissum tilvikum á þetta við rök að styðjast. Mæðra- og unngbarnavernd er víða til fyrir- myndar og stunduð er skipulögð leit að sumum tegundum krabbameina. Víða annars staðar í íslenska heil- brigðiskerfinu er þessu ábótavant. Forvarnir eiga ekki að vera bundnar við bólusetningar og krabbameins- skimun, heldur með kerfisbundinni leit og meðferð algengra sjúkdóma í fólki á öllum aldri. Eitt dæmi um lak- an árangur í forvörnum er greining og meðferð beinþynningar. Þessum sjúkdómi, sem veldur þjáningum, styttir aldur og er dýr einstaklingum og þjóðfélaginu er ekki nægilegur gaumur gefinn hér á landi. Þó er beinþynning mestu fyrirbyggjanleg. Þar sem ég starfaði í Bandaríkjunum eru forvarnir sjúkdóma, þ.m.t. bein- þynningar, óaðskiljanlegur hluti starfs hvers heimilislæknis og hluti af þeirri hópvinnu heilbrigðisstétta sem fram fer á læknastofum. „Aðal- áherslan þarf að vera á þjónustu við þá sem þurfa á forvörnum eða lækningu að halda.“ ÍSLENSKT HEILBRIGÐIS- KERFI LITIÐ GESTSAUGA Eftir Jón Atla Árnason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.