Morgunblaðið - 16.03.2003, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 16.03.2003, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MARS 2003 25 úr endurminningunum ásamt rithöf- undinum breska Ronald Harwood. „Það skipti nokkru máli að viðkom- andi væri svolítið kunnur og talaði ensku. Við stóðum fyrir leikprufum í Lundúnum þar sem 1.400 manns spreyttu sig á Píanistanum, okkur til mikillar undrunar, þ.á m. kínverskar og svartar konur ... Þegar leikpruf- urnar skiluðu engu rann fyrst upp fyrir okkur að það yrði hægara sagt en gert að finna þann rétta. Þegar ég fór að leita utan Englands og skoðaði m.a. myndir Brodys rann það strax upp fyrir mér að hann væri Píanist- inn.“ Tökur á myndinni fóru fram árið 2001 í Þýskalandi, mestmegnis inni- tökur í kvikmyndaveri í Berlín, og Varsjá, þar sem útitökur fóru fram í Praga-hluta borgarinnar. Spurðu sála Í bróðurparti sögunnar af Píanist- anum þrautseiga neyðist hann til þess að vera áhorfandi að allri eyði- leggingunni á borginni sinni, áhorf- andi að öllu stríðinu. Hér telja sumir sig merkja enn eitt dæmið um gegn- umgangandi þema í myndum Pol- anskis, að aðalpersónan sé í hlutverki áhorfandans, rétt eins og kvik- myndagerðarmaður að festa á filmu merkilega atburði, sem hann fær engu um ráðið hvernig æxlast. Þegar Polanski er spurður að því hvort hann hafi að hluta laðast að frásögn Szpilmans og því óvænta hlutkesti sem hann hefði haft í stríðinu á þess- um forsendum fær hann sig ekki til að neita því en getur ekki heldur ját- að. „Það er út af svona spurningum sem ég geng til sálfræðings,“ segir hann og kímir. Það er óhætt að segja að Píanist- inn hafi hlotið hlýjar viðtökur. Mynd- in kom sá og sigraði á kvikmyndahá- tíðinni í Cannes þar sem Polanski var hælt sérstaklega fyrir að hafa tekist að draga allt í senn upp mannlega, áhrifaríka og hlutlæga mynd af ein- hverju mestu hörmungarskeiði í mannkynssögunni. Síðan þá hefur hún sópað að sér fjölda verðlauna um heim allan, tók öllu helstu César- verðlaunin frönsku, fékk verðlaun gagnrýnenda í Boston, var valin besta evrópska myndin á spænsku Goya-kvikmyndaverðlaunum, fékk verðlaun Landssamtaka bandarískra gagnrýnenda sem besta mynd, fyrir leikstjórn, handrit og frammistöðu Brodys í aðalhlutverkinu. Nú síðast var Píanistinn valinn besta myndin á bresku BAFTA kvikmyndaverð- launaathöfninni þar sem Polanski hlaut einnig sérstök heiðursverðlaun kennd við David Lean, fyrir leik- stjórn. Píanistinn er tilnefnd til 7 Óskarsverðlauna, þ.á m. sem besta mynd, fyrir leikstjórn, handrit, aðal- hlutverk, kvikmyndatöku, búninga og klippingu. Píslarganga Polanskis er á enda að sinni og þótt draugar fortíðar láti öðru hverju enn á sér kræla virðist sem bjartara sé framundan og þessi pólski snillingur sé enn á ný kominn í fremstu röð kvikmyndagerðarmanna eftir tvo heldur magra áratugi. Viðtal við Adrien Brody er á næstu opnu. Sýningar á Píanistanum hófust á föstudag. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Píanistinn hefur þegar hlotið fjölda vegtylla. Hér er Polanski fylgt út úr Lum- iére-höllinni í Cannes eftir að hafa veitt viðtöku Gullpálmanum eftirsótta. Polanski var búinn að leita lengi að rétta leikaranum þegar hann fann Brody. „Ég sá það strax að hann væri Píanistinn.“ Opnum klukkan tólf Smáratorg, Spöngin, Kringla, Mosó, Selfoss og Akureyri HOLTAGARÐAR, ekkert brudl- E R A N /L a n d lis t SUNNUDAGSTILBOÐ Hamborgarhryggur Bónus frá Síld og fisk 599kr.kg Mjólkurkex pakkinn 89kr. OPIÐ TIL SEX DUO PAMPERS bleiur 1499kr.pakki pakkinn 199kr. PORK roast 699kr.kg Beinlaus kryddaður grísahnakki BAJON skinka frá KJARNAFÆÐI 599kr.kg ekkert brudl- BANGKOK New World Hotel Saigon ***** Ferðakynning á skrifstofu okkar í Austurstræti 17, 3. h., í dag kl. 17-18 og síðustu pantanir! Austurstræti 17, 3. hæð, 101 Reykjavík, sími 56 20 400, fax 562 6564,netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.is Skemmtilegast í Austurlöndum - sértilboð 16. apr. 17 d., þar af 9 frídagar! Tvær skemmtilegustu borgirnar: Bangkok-nýja Radisson hótelið - okkar hótel ársins - 5*gæði, e.k. SPA - glæsilegt heilsuhótel í einstakri heimsborg 4 d. Vietnam - Saigon VIETNAM Með dvöl á glæsilegu „New World“ 5* hóteli í mið borginni, þar sem ótrúlegar framfarir hafa átt sér stað og borgarbragur er einstakur. 4 dagar, kynnisferð um borgina og út á sögufrægt land. Í lokin vikudvöl á glæsilegu 4-5* strandhóteli: „Jomtien Palm Beach- New Wing“ í Thailandi. Einstakt tækifæri til að kynnast spennandi stöðum í fram- andi veröld á einstökum kjörum. STENDUR UPPÚR UM PÁSKANA MEÐ BESTA VEÐRIÐ. Miðað við Evrópu borgar þú aðeins gistinguna en færð flugið frítt! Fararstjórar: Ingólfur Guðbrandsson og Pétur Karlsson. Heillandi „PARÍS AUSTURLANDA“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.