Morgunblaðið - 16.03.2003, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 16.03.2003, Blaðsíða 28
LISTIR 28 SUNNUDAGUR 16. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ VINKONA mín semer við nám íBandaríkjunumsagði mér frá því í vikunni að hún hefði skropp- ið til Las Vegas með nýleg- um kærasta sínum. „En gaman,“ sagði ég, „giftuð þið ykkur?“ hélt ég áfram og fannst ég fyndin. „Nei,“ sagði hún og bætti því við að enginn sem hún hefði sagt frá umræddri Vegas- ferð hefði ekki spurt hvort þau hefðu gift sig. Allt í einu fannst mér ég ekki lengur fyndin. Glatað að vera með svona notaðan húmor. Ég hef aldrei komið til Las Vegas, ekki frekar en aðrir þeir sem djókuðu svona einsleitt við vinkonu mína, en við erum greinilega mjög svo lituð af þeirri ímynd sem dregin er upp af borginni í fjölmiðlum og kvikmyndum. Þar veðjar fólk, fer á kabarettsýningar, gistir á hótelum sem eru jafn stór og miðbær Reykja- víkur, borðar á gondóla und- ir eftirlíkingu af Eiffel- turninum og giftir sig svo hjá Elvis Presley (og borgar aukalega ef Priscilla á að vera brúðarmær). Önnur vinkona mín, sem er líka við nám í Bandaríkj- unum, sagði mér frá því í vikunni að hún væri á leið í bíltúr gegnum suðurríkin með vinkonu sinni úr skól- anum. „Við ætlum að vera með risastór sólgleraugu og slæðu um hausinn! Alveg eins og Thelma og Louise,“ sagði hún og röddin titraði af spenningi. Ég er ekki frá því að ég hafi orðið græn af öfund. Ég er heldur ekki frá því að mjög margar stelpur hafi dreymt um að feta í fót- spor þessara súperfrjálsu vinkvenna (mínus glæpina kannski) og skella sér í óvissubíltúr um eyðimerkur og undarlega smábæi suð- urríkjanna, – hitta Brad Pitt á förnum vegi og svona. Enn önnur vinkona mín, sem er líka við nám í Bandaríkjunum, sagði mér frá því í vikunni að hún færi ekki fet í vorfríinu sínu. Hún ætlar sér að vera „heima“, enda býr hún í New York og sökum anna í náminu hefur hún ekki gefið sér tíma til að skoða borgina sem skyldi. Hún ákvað því að eiga alvöru New York- viku þar sem hún myndi fá að upplifa borgina eins og hún birtist svo oft í kvik- myndum og sjónvarpi: Skautar í Rockefeller cent- er, ótæpileg Cosmopolitan- drykkja í góðra pæja hópi, blint stefnumót með náunga sem virtist ekki svo afleitur af auglýsingunni í einka- máladálki New York Times að dæma og svo náttúrlega að berja erki-New-York- búann Woody Allen augum á vikulegu klarinettu-giggi hans. Hún sló þessu tvennu síðastnefnda reyndar saman og var svo gaman hjá henni og einkamáladálksnáung- anum að hún djókaði með það að hún skryppi kannski bara til Vegas með honum um næstu helgi til að gera það sem allir vita að brjáluð ástfangin pör gera þar … Stundum kemur all- svakalega í ljós (hvort sem manni líkar betur eða verr) hvað kvikmyndir eru stór hluti af reynsluheimi manns. Þetta gerist gjarnan á ferðalögum, einkum þegar staðir eru heimsóttir í fyrsta sinn og það staðir sem mað- ur „þekkir“ vel úr kvik- myndum. Fræg kennileiti virðast gamalkunnug, maður verður kannski svolítið hissa á því hvað þau eru í raun og veru stór, eða lítil. Eins er algengt að kannast við and- rúmsloftið og stemninguna, eða kannski öllu heldur gera ráð fyrir að stemningin sé eins og maður heldur að hún eigi að vera. Vinkona mín var til dæmis búin að gera sér mjög háar og róm- antískar hugmyndir um Par- ís áður en hún heimsótti borgina í fyrsta sinn nú ný- verið. Hún hefur séð marga ástina kvikna og magnast á hellulögðum götum Par- ísarborgar og hlakkaði til að fá að upplifa slíka ástríðu- þrungna rómantík í eigin persónu. En … í stað þess að rekast á Oliver Martinez á tröppum Notre Dame sem byði henni góðan dag og heillaðist svo af feimnislegu brosi hennar að hann drægi hana með sér á pínulítið kaffihús með rauðköflóttum dúkum og harmonikkuleik- ara var hún næstum troðin undir af hópi sveittra túrista sem slengdu myndavélunum í allar áttir þannig að hún var heppin að fá ekki glóð- arauga. „París var vonbrigði fyrir mig,“ sagði hún að ferðinni lokinni, „þar var engin rómantík og ég fann engan djassklúbb.“ Ég á aðra vinkonu sem lifir sig oft mjög innilega inn í kvikmyndir. Einu sinni var hún næstum því orðin ástfangin í evrópskri lest bara af því að hún var nýbú- in að sjá Before Sunrise. „Hann var svo sem enginn Ethan Hawke en samt, þetta var alveg eins og í myndinni!“ sagði hún með stjörnur í augum eftir þá ferð. Sama stelpa elskar líka Pretty Woman en sem betur fer lifði hún sig ekki jafn bókstaflega inn í hana þegar hún heimsótti Los Angeles í fyrra. Hún lét sér nægja að fara á söguslóðir mynd- arinnar, keypti tónlistina úr henni af götusala á Holly- wood Boulevard (þar sem Vivian var með „skrifstofu“ sína) og spilaði hana í bíln- um á meðan hún keyrði sömu leið og Vivian og Edw- ard niður á hótelið í Beverly Hills. Lét síðan henda sér út úr fínu búðunum á Rodeo Drive. Fílaði sig í botn. Stundum er daglega lífið líka þannig að við stöndum okkur að því að hugsa „vá, þetta er alveg eins og í bíó- mynd“. Og hvort sem það bendir til þess að lífið geti verið svona ólíkindalegt eða hins að kvikmyndir séu orðnar svona samgrónar reynsluheimi okkar er ljóst að þegar við segjum „eins og bíómynd“ er yfirleitt svo- lítið gaman. Birna Anna á sunnudegi Eins og í bíómynd bab@mbl.is Morgunblaðið/Jóra N IRVANA er ofmetnasta rokksveit sögunnar og lagasmiður hennar, Kurt Cobain, er ofmetnasti laga- smiður sem dægurmenn- ingin hefur getið af sér. Þetta segi ég ekki af rætni, eða þá til að stríða þeim þúsundum gítarleik- ara sem taka sveitina sér til fyirmyndar í ein- földu bílskúrsrokki. Nei, ég vil meina að þetta sé einföld staðreynd sem hægt er að styðja með rokkmenningarlegum dæmum. Áhrif sveitarinnar, sem lék melódískt gruggrokk, verða þó seint ofmetin. Ásamt Bítlunum og Sex Pistols er þetta ein áhrifa- mesta rokksveit sögunnar og eins og hjá þeim ná áhrifin út fyrir þau tónlistarlegu. En hver er tónlistarlega arfleifðin svo? Þrjár stórar og ójafnar plötur, hver á sinn hátt. Fyrsta breiðskífan, Bleach (’89) er sæmi- legasta stikkprufa af því gruggi sem fyrirfannst undir yfirborði Seattle á þeim tíma sem borgin beið þess að springa út sem rokkhöfuðborg heimsins (en átti sömuleiðis ekkert í snilldarverk eins og Superfuzz Big- muff (’88) með Mudhoney eða Buzz Factory (’89) með Screaming Trees). Önnur breið- skífan, ein umtalaðasta og áhrifamesta rokk- plata allra tíma, kom svo út árið 1991. Nev- ermind setti nýja staðla fyrir útvarpsvænt rokk, eitthvað sem mestan part hefur verið til bölvunar. Offspring, Linkin Park, Limp Bizk- it ... listi steingeldra og útvatnaðra rokk- sveita er endalaus. Eftir Nevermind eru pönk og nýbylgja í hugum sumra eitthvað allt ann- að en „pönk“ og „nýbylgja“ og upprunaleg merking þeirra hugtaka – listræn nýsköpun og „mér er skítsama“ viðhorf til rokks og róls – hefur sumpart dofnað. Neðanjarðarrokkið heldur þó að sjálfsögðu áfram – en leifar þess sem var fljóta fyrir ofan í afskræmdri mynd. En ef það hefði ekki verið Nirvana sem stuðlaði að geldingu harðrar rokktónlistar þá hefðu það verið einhverjir aðrir. Vindarnir voru þegar farnir að blása í þessa átt. Sonic Youth gáfu út Goo árið á undan hjá risanum Geffen (og vel að merkja er sú plata frábær) og Pearl Jam voru komnir fram með sína Ten. Nirvana voru bara svo „óheppnir“ að gefa út Nevermind. Þeir voru röng sveit, með svona la la plötu á hárréttum tíma. Kurt gamli Cobain var því gerðurað kyndilbera gruggsins – ogkyndilinn drattaðist hann meðóviljugur, því miður hvorki meðlöngun eða listræna getu til að valda honum. Plötunni sjálfri, Nevermind, er svo haldið saman af frábærri upptökustjórn Butch Vig (sem ber húðir Garbage í dag. Cobain sjálfur var hins vegar lítt hrifinn af vinnu Vig) og inniheldur nokkur ágætlega grípandi rokklög. En stendur hún undir lof- inu sem á hana hefur verið ausið eins og t.a.m. Sgt. Pepper Bítlanna, Pet Sounds Beach Boys eða Never Mind the Bollocks Sex Pistols? Engan veginn. Lagið sem kom þessu öllu af stað, „Smells Like Teen Spirit“, er þá meira tilkomumikið en gott og þolir illa endurtekna spilun. Tveimur árum síðar kemur svo In Utero út, hálfgildings tilraun til að afla á ný virð- ingar undirheima, enda Kurt meinilla við alla frægðina (sem vekur upp spurningu sem menn ættu að íhuga oftar: Af hverju ekki að segja þá upp samningum og draga sig í hlé? Cobain framdi svo sjálfsmorð í apríl ’94, 27 ára gamall og saddur lífdaga). In Utero er ósannfærandi smíð eins og fyr- irrennararnir. Alls ekki slæm plata en stend- ur einfaldlega ekki undir snilldarstimplinum. Og þar liggur grugghundurinn grafinn. Önnur öfl en náðargáfa í tónlist gerðu Nirv- ana að því sem þeir voru og því sem þeir eru í dag en Kurt og félagar virðast eilífur inn- blástur rokkþyrstra bílskúrsstráklinga. Þessi öfl eru hlutir eins og fjölmiðlar, sviðs- framkoma og einhver ókennilegur og óræður sjarmi. Þetta skóp Nirvana, ekki tónlistarleg innstæða. Bítlarnir áttu til hvort tveggja, Sex Pistols keyrðu mikið á ímyndinni, þótt það dyljist engum að fyrsta og eina plata þeirra rokki feitt. En Nirvana – kannski er það tím- anna tákn – voru fyrst og fremst táknmyndir, tilbúningur fjölmiðla og þrá unglinga þess tíma eftir andhetju, eitthvað sem aumingja Kurt virtist hafa í sér í ríkum mæli. Þegar lit- ið er til baka er í raun furðulegt hversu mikið er látið með ekki betri hljómsveit. Þ að er rétt að staldra aðeins við SexPistols í þessu sambandi, til aðvarpa skærara ljósi á þessar stað-reyndir. Sú sveit var langt í frábesta pönksveitin sem það ágæta form gaf af sér (Buzzcocks, Clash, Ramones t.d. höfðu allar mun meiri tónlistarlegri vigt en Sid Vicious og félagar). En hún er sann- arlega sú þekktasta og sú sveit sem almenn- ingur tengir hvað skjótast við pönkið. Merkilegt líka að sú plata sem hvað mest hefur verið látið með þegar Nirvana er til umræðu er upptaka frá því þegar sveitin lék órafmagnað fyrir MTV sjónvarpsstöðina (MTV Unplugged in New York (’94), gefin út eftir dauða Cobains). Þau lög sem vöktu hvað mesta athygli þar voru ekki einu sinni sveit- arinnar. Ábreiður yfir „Where Did You Sleep Last Night?“ eftir Leadbelly og „The Man Who Sold the World“ eftir Bowie. Um síðustu jól kom svo út safnplatan Nirv- ana þar sem litið er yfir ferilinn. Fengur safnsins liggur í áður óútgefnu lagi, „You Know You’re Right“ sem var eitt af því síð- asta sem Cobain setti á band. Ástríðufullir Nirvana-pælarar hafa séð í laginu vísbend- ingar um hvert Cobain var að stefna í list sinni og sjá þar hylla undir eitthvað stór- fenglegt. En í raun er hér höfuðið bitið af skömminni. Eftir drungalegan inngang ein- hendir Cobain sér í enn eitt andlausa „Je je je je-ið“ og innsiglar með því það sem hefur ver- ið rætt í þessum pistli. Þetta er öll dýrðin: Vankað je je je. Á mannamáli er ég semsagt að segja þetta: Nirvana var og verður fremur leiðinleg hljómsveit og ef menn vilja heyra almenni- legt grugg er best að leita annað. Nirvana skiptir einfaldlega ekki máli – a.m.k. þegar rætt er um fagurfræði rokktónlistar. Nirvana skiptir ekki máli AF LISTUM Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Nirvana: Lyktar eins og oflof.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.