Lesbók Morgunblaðsins - 15.07.2000, Síða 16
Bodil Manz: Sívalningur 1997, elnkaeign.
ÞETTA bláa fellingaskreyti kannast víst margur við. Gripirnir eru frá 1785- 90. Listidnaðarsafnið
Kaupmannahöfn.
íslendingar þekkjg vel til dansks postulíns, mávastellið var til að mynda djásn
heimilanna á árum áður, geymt í glers kc ipum og aðeins dregið fram þegar góða
gesti bar að garði. Nöfn eins og Royal Copenhagen og Bing & Gröndahl meira
en vel kunn hér á landi . Fyrirtækin samei nuðust 1987, nær hundrað árum eftir að
það fyrst var á döfinni og munaði víst litlu. í tilefni | þess að 225 ár eru síðan Royal
Copenhagen varð að veruleika er einstæð sýning á dönsku postul íni á Listiðnað-
arsafninu á Bredegade. BRAGIÁSGEIRSSON var á vettvangi og hermir hér frá.
DANIR hafa verið flestum
Norðurlandaþjóðum iðnari
við að tileinka sér húsa-
gerðarlist og hönnun
stærri og rótgrónari þjóð-
arheilda á meginlandinu, -
og bæta um betur. Fyrir
það eru þeir víðfrægir,
með réttu heimsfrægir, kennimarkið Danish
Design ímynd hágæðavöru. Svo hafa þeir
lært að þróa og markaðssetja listiðnað sinn,
vita að það getur tekið ár og áratugi að full-
komna og vinna einum og sama hlut markaði
svo hann fari að skila arði. Starfandi mynd-
listarmenn og arkitektar hafa sumir hverjir
einnig lagt fyrir sig almenna hönnun, rofið
mörkuð hefðbundin og þó frekar ímynduð
skil á milli, má hér af mörgum nefna þá
myndhöggvarann Henning Koppel, sem varð
einn nafnkenndasti silfurhönnuður á Norð-
urlöndum og um leið í heiminum, arkitektinn
Arne Jacobsen sem kom víða við sögu, í senn
fjölhæfur og hugmyndaríkur, myndhöggvar-
ann, grafíklistamanninn og kvikmyndagerð-
armanninn Bjár Nárgárd, sem nýlokið hefur
y við risaverkefni fyrir Margréti drottningu;
gobelinteppi fyrir Riddarasalinn á Krist-
jánsborg, og var vel að merkja tólf ár að
ljúka verkinu og hafði nóg að gera við það
eitt. Af því segir væntanlega meira fljótlega.
Nýlega kom út digur bók um Arne Jacobs-
sen, líf hans og listferil, yfirmáta skilvirk og
upplýsandi og um leið bókverk í hæsta
gæðaflokki, í slík rit er hægt að sækja meiri
og hagnýtari lærdóm um eðli sköpunar en
nokkurn skóla.
Þetta heitir að kunna að setja sína menn á
stall og styðja við bakið á þeim, mannauði
um leið, og væri nokkuð öðruvísi umhorfs
hér á landi hefðu íslendingar borið gæfu til
að draga dám af, helst gera betur.
En hér er mál, að Konunglega danska
postulínið hefur verið framleitt í 225 ár, og í
því tilefni er nú í gangi yfirgripsmikil sýning
í Listiðnaðarsafninu á Bredgade, sem opnuð
var með mikilli viðhöfn að viðstaddri Mar-
gréti Þórhildi drottningu 28. aprfl og lýkur
13. ágúst. Hefur með nákvæmt og skipulagt
yflrlit yfir þróunina frá upphafi til nútímans
að gera, þá er önnur en óformlegri í höfuð-
stöðvum Konunglegu postulínsverksmiðj-
unnar, Royal Copenhagen, við Amagertorv á
Strikinu, nefnist Danmark til bords, eða
borðsiðir Danmerkur. Þar geta menn fylgst
með því hvernig borðbúnaður Dana hefur
tekið breytingum frá 1775, hún var opnuð á
afmælisdaginn 1. maí og lýkur 2. september.
í tilefni tímamótanna hefur fyrsta stellið,
Musselmalet, verið endurframleitt, en nafn
sitt dregur það af máluðu skeljamynstri,
ennfremur litríkt stell sem var hvað vinsæl-
ast á tuttugustu öld. Þar getur einnig að líta
uppköst nokkurra myndlistarmanna, hönn-
uða og leirlistarmanna sem spá í framtíðina,
og svo hefur verið flikkað upp á fínheitin í
sjálfri versluninni. Hér hefur ekki orðið nein
stöðnun eða snöggar umbyltingar og niður-
rif, heldur jöfn og stöðug þróun og henni
gerð góð skil í vandaðri bók er út kom í til-
efni sýningarinnar, afar einkennandi fyrir
danska bókagerð, yst sem innst. Sautján
höfundar eiga efni í bókinni, þar á meðal
fulltrúar virtra listasafna í Pétursborg, Tó-
kýó, London og Stokkhólmi.
Hinar rótgrónu deildir tuttugustu aldar
núlista í listiðnaðarsafninu hafa orðið að
víkja fyrir sýningunni, og man ég trauðla
eftir slíkum umsvifum áður. Er hér gengið
hreint til verks um skilvirkt yfirlit og eins og
vænta mátti er um afburðafallega og vel upp
setta sýningu að ræða. í homherbergi innst
f suðurálmunni er upplýsandi myndband um
vinnsluferli postulíns og þar sitja að auk
konur við að mála á ýmsa óbrennda hluti svo
þetta er allt mjög gagnvirkandi og spenn-
andi fyrir áhugasama. Man sömuleiðis eftir
jafn áhrifaríkri og eft.irminnilegri fram-
kvæmd á staðnum, nema það væri sýningin á
Alfa Romeo bifreiðinni og sögu hennar fyrir
nokkrum árum sem ég greindi frá. Þá var
reistur skáli út frá aðalinnganginum og engu
til sparað sem ætti að gefa auga leið, bílaiðn-
aðurinn í blóma...
íslendingar þekkja sennilega meira til
danska postulínsins en nokkurs annars í
danskri list og hönnun, er hér bláa máva-
stellinu fyrir að þakka sem hefur ratað í
frægar bókmenntir, þó meir sem yfirstéttar-
tákn en fyrir upphafna formræna fegurð. Yf-
irsést þá stundum að stásslegt postulín nota-
gildis er ekki einungis skraut og hégómi,
heldur hlutleysir í þeim mæli innhaldið, að
það minnist við bragðlaukana í sinni hrein-
ustu og ómenguðustu mynd. í þá veru geta
fyrri kynslóðir hlegið að þeim ófáguðu villi-
mönnum nútímans sem drekka ódáinsveigar
eins og kaffi og kakaó úr plast- og pappamál-
um en í báðum tilfellum rýrna bragðgæðin.
Alltént umtalsverður munur að neyta eðal-
veiga með stíl, í réttum umbúðum og réttu
umhverfi.
Postulínið á sér langa og merkilega sögu,
og eins og margt gott og nytsamt kemur það
frá Kína, fundið upp eftir miðbik fyrstu stór-
aldar, harðpostulínið var þannig uppruna-
lega í framleiðslu á tímum Tang-ættarinnar
sem lifði sitt skeið frá 618-917. Postulínið
var notað sem gjaldmiðill í Kína um aldir,
uppskriftin leyndarmál sem ekki var falt fyr-
ir gull og eðalsteina enda gekk það undir
nafninu hvíta gullið í Evrópu. Einnig er til
mjúkt postulín og beinpostulin, en það
síðastnefnda hafa allir fyrir framan sig er
þeir snæða, kjósi þeir þá ekki að nota pappa-
diska og plasthnífapör, einnig notað í smá-
styttur, baðker, handlaugar og klósettskál-
ar. Þetta eru hinar þrjár megingerðir
postulíns, sem er ein mikilvægasta uppgötv-
un sem borist hefur frá austrinu ásamt púðr-
inu, að ógleymdu silkinu. Og eins og það íðil-
mjúka efni mun hið dýra leyndarmál um
efnasamsetningu postulínsins að hluta til
hafa borist eftir verslunarleiðinni miklu frá
austrinu til Evrópu, sem einmitt ber nafn
silkisins, Silkivegurinn. Áður höfðu portú-
galskir og seinna hollenskir og enskir sæfar-
endur flutt postulín til Evrópu frá þeim alda-
hvörfum er allt var í suðupotti í álfunni og
endurfæðingin að knýja dyra. Eða frá því að
Vasco da Gama uppgötvaði sjóleiðina um
Góðrarvonarhöfða 1497, og gerði fyrir vikið
Portúgal að stórveldi. Og í takt við endur-
fæðinguna þrengdu sæfarendurnir sér stöð-
Leið his nafnkennda Arnolds Krog, lá frá arki-
tektúr, innanhúsarkitektúr til mótunar postu-
líns. Hannadi þennan vasa 1887, en skreyti er
verk F.A Hallln 1888. Bröhan -safnið Berlín.
ugt austar um Indlandshaf og einn góðan
veðurdag 1511 náðu þeir til Malacca, sem
var í góðu og grónu verslunarsambandi við
Kína, og næstu árin náðu þeir til landsins
sjálfs og þræddu strendur þess allt upp til
Sjanghai. Fljótlega varð hið undurfagra kín-
verska postulín að fágæti og gersemum í
Evrópu, einkum við hirðir fursta barrokk-
tímabilsins, sem sumir tóku að safna því af
ástríðu.
Það var fyrst við fund kaólíns við Limoges
í Frakklandi á seinni hluta átjándu aldar,
eins mikilvægasta efnis í samsetningu postu-
líns, að mönnum lánaðist að búa til ekta
harðpostulín. Kaólín er hvít leirkennd berg-
tegund sem myndast við efnaveðrun álríkra
steinda svo sem silfurbergs (feldspats) og
glimmers. Breytir ekki lit við brennslu,
hreint og hvítt kaolín svonefnt, china clay, er
einnig notað við pappírsgerð. Áður höfðu
menn orðið að láta sér nægja ýmsar tegund-
ir líkinga án kaólíns og hin fyrsta sem komst
á blað var hið svonefnda Medici-postulin,
sem leit dagsins ljós úr brennsluofninum við
hirð stórfurstans Francesco I af Medici í
Toskana 1575. Sjálf hátignin ásamt leirkera-
smið nokkrum frá Úrbínu, Flaminio Fantana
að nafni, og óþekktum aðstoðarmanni,
brenndi fyrsta postulínsgripinn. Á eftir
fylgdu ýmsar fullkomnari í Frans, er frá
1673 voru framleiddar í St-Cloud, frá 1711 í
Lille og 1738 í Vicennes. Árið 1777 var starf-
semin í Vicennes flutt til Servés, fékk jafn-
1 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 15. JÚLÍ 2000