Lesbók Morgunblaðsins - 15.07.2000, Blaðsíða 2
Gestirfrá Lundúnum á Sumartónleikum í Skálholtskirkju
Erlendu gestirnir sem fiytja munu Tónafórn Bachs í Skálholtskirkju: Carole Cerasi, Kati Debr-
etzeni, Mark Levy, Katy Bircher og James Johnstone.
FÓRNÍ
TÓNUM
ÞETTA er yndislegt. Hiti og sól. Eitthvað ann-
að en kuldinn og rigningin heima. Síðan sáum
við afskaplega fallegar myndir frá íslandi í flug-
vélinni. Þetta verður greinilega ánægjuleg
dvöl,“ segja tónlistarmennimir fímm sem flytja
munu Tónafóm Bachs á Sumartónleikum í
Skálholtskirkju um helgina, nýstignir út úr
flugvélinni frá Lundúnum. Það lætur ekki að
sér hæða, íslenska veðrið.
Fimmmenningamir eru Mark Levy gömbu-
leikari og stjómandi hópsins, Katy Bircher
flautuleikari, Kati Debretzeni fiðluleikari,
Carole Ceresi semballeikari og James John-
stone orgelleikari. Þau eru af ólíku þjóðemi en
búa öll og starfa í Lundúnum. Mark er sá eini
sem áður hefiir leikið á íslandi en hann er hér
nú í fjórða sinn.
Þau hafa starfað mikið saman í gegnum tíðina
en aldrei komið öll fram saman á sömu tónleik-
um. Öll helga þau sig meira og minna tónlist frá
barokktímanum þar sem Bach er vitaskuld í
öndvegi. „Bach er í miklu uppáhaldi hjá okkur.
Er það ekki örugglega?" spyr Mark Levy
sposkur á svip og gefur til kynna að hann sé
með flugmiða heim í nepjuna verði svarið nei-
kvætt. Eins og þess þurfi.
ÞRIÐJU tónleikar Sumarkvölds við orgelið
verða haldnir sunnudaginn 16. júlí kl. 20.
Að þessu sinni er það spænski orgelleikar-
inn José L. Gonsáles Uriol sem leikur á
Klais-orgelið í Hallgrímskirkju. Gonsáles
Uriol er þriðji í röð organista frá menn-
ingarborgum Evrópu sem heimsækja okk-
ur þetta sumar og kynna tónlist heima-
lands síns enda eru þessir tónieikar á
dagskrá Reykjavíkur - menningarborgar
Evrópu árið 2000.
Um efnisskrá sína segir Gonsáles Uriol
m.a.: „Hér eru valin saman verk sem eiga
það sameiginlegt að vera meðal þeirra
merkustu sem rituð hafa verið fyrir orgel
af spænskum tónskáldum. Strax á 16. öld
fer að bera á miklum áhuga á orgelleik á
Spáni. Fjallað var um aðferðir við að
semja fyrir orgel og þá tækni sem menn
þyrftu að búa yfir til að geta leikið á þetta
hljóðfæri. Orgel var að finna jafnt í dóm-
kirkjum sem í litlum sveitakirkjum og
mörg þeirra hljómuðu afar fallega.
Fyrsta verkið, Pavana con su glosa, er
eftir Antonio de Cabezón sem var eitt
helsta tónskáld endurreisnartímans. Eitt
af því sem einkennir spænska orgelhefð
fyrri alda er skiptingin á milli bassa og
yfírradda á einu hljómborði. Þetta gerir
orgelleikurum kleift að Ieika stefið með
annarri hendi á meðan hin veitir stuðning
í fjölrödduðum undirleik á sama hljóm-
borði. Tvö verk eftir Pablo Bruna frá
miðri 17. öld eru góð dæmi um þetta. Juan
Cabanillas, organisti við dómkirkjuna í
Valencia, var helsta tónskáld Spánverja á
17. öld og fram á þá 18. og var þekktur
víða, meðal annars í Frakklandi. Eftir
hann leik ég Pasacalles de primo tono. Þá
leik ég tvö verk eftir ókunna höfunda,
annars vegar Obra de falsa cromaticas
sem er róleg og stutt tónsmíð full spánskr-
ar dulúðar frá 17. öld og La grand batalla
„Við dáum Bach,“ ljúka þau upp einum
munni. „Sérstaklega á þessu ári þegar 250 ára
ártíðar hans er minnst um allan heim.“
Ekkert þeirra stendur þó uppi í hárinu á Kati
Debretzeni sem leikur aðeins á tvennum tón-
leikum á árinu þar sem Bach kemur ekki við
sögu.
Tónafórnin var eitt af hinstu verkum Bachs,
tileinkað hinum tónelska Friðrik Prússakon-
ungi. „Þetta er líka sígild fórn, yndislegasta
gjöf sem nokkur unnandi tónlistar getur hugs-
að sér, ögrandi, hvetjandi og hrein unun að
njóta,“ segir Mark sem halda mun erindi um
verkið kl. 14 í dag. „Erindi mitt er eins konar
inngangur að flutningnum. Auðvitað mun fólk
njóta tónlistarinnar burtséð frá því en fyrir þá
sem ekki þekkja sögu verksins gæti erindið
sett verkið í samhengi og aukið á upplifunina."
Þó Tónafórnin sé samin með hið krýnda höf-
de marengo frá 18./19. öld. Batalla eða or-
ustan er vel þekkt form í spænskum orgel-
tónsmíðum. Eins og nafnið gefur til kynna
er þetta fjörugt verk, sem leitast við að
lýsa orustu og þeim hljóðum sem þar heyr-
ast. Tónleikunum lýkur á tveimur verkum
frá 20. öldinni: Variaciones sobre un tema
Vasco eftir Jesús Guridi og Tokkötu eftir
Bernando Juliá.“
José L. Gonzáles Uriol lauk prófi í
orgelleik með láði frá Tónlistarháskólan-
um i Madríd. Auk þess stundaði hann nám
í hljómsveitarstjórn, sótti námskeið í sem-
balleik og túlkun á spænskri barokktónlist.
Síðar hélt Gonzáles Uriol orgelnámi sfnu
áfram í Haarlem, Hollandi. Þá naut hann
einnig leiðsagnar hins þekkta Gustavs
Leonhardts i semballeik og túlkun á
barokktónlist.
uð í huga segir Mark Bach fyrst og síðast hafa
samið verkið sér til ánægju. „Segja má að hann
hafi í vissum skilningi sleppt fram af sér beisl-
inu við smíðina, látið á ýmsar nýstárlegar hug-
myndir reyna. Slíkar tónsmíðar eru oft lítið fyr-
ir hlustendur en það á aldeilis ekki við um
Tónafómina. Þetta fjölbreytta tónverk er sann-
kölluð veisla fyrir hlustandann.“
íslandsdvölin leggst, sem fyn- segir, vel í hina
erlendu gesti. Samt óttast þeir að ekki gefist
nægur tími til skoðunarferða því Tónafómin sé
erfitt og tímafrekt verk í æfingu., Annars emm
við vön að fara hratt um grundir,“ segir James
Johnstone og Katy Bircher varpar fram hug-
mynd. „Við getum kannski skoðað okkur um á
daginn og æft á nóttunni? Dimmir nokkurn
tíma héma?“
Tónleikar hópsins verða í dag kl. 17 og á
morgun kl. 15.
Gonzáles Uriol kemur fram jafnt sem or-
gelleikari og semballeikari bæði austan
hafs og vestan. Hann hefur haldið tónleika
víða í Evrópu, Japan, Bandaríkjunum, Suð-
ur-Ameríku og fyrrverandi löndum Sovét-
ríkjanna.
Gonzáles Uriol er nú eftirsóttur kennari
og hefur hann haldið námskeið víða.
Gonzáles hefur einkum sérhæft sig í
spænskri miðaldatónlist. Hann er nú pró-
fessor í orgel- og semballeik við Tónlistar-
háskólann í Zaragoza. Þá skipuleggur
Gonzáles Uriol þekktar tónlistarhátíðir,
svo sem í Daroca á Spáni. Árið 1992 var
honum veitt virt spænsk viðurkenning fyr-
ir störf sín í þágu tónlistar í landinu.
Sumarkvöld við orgelið verður með tón-
leika öll sunnudagskvöld fram til 3. sept-
ember. Aðgangseyrir er 1.000 krónur.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Árbæjarsafn: Saga Reykjavíkur - frá
býli til borgar.
Arnastofnun, Ámagarði: Hátíðarsýn-
ing handrita, opin alla daga í sumar,
milli klukkan 13 og 17 til 31. ág.
Ásmundarsafn: Verk í eigu safnsins.
Sýning á verkum Ásmundar Sveinsson-
ar. Til 1. nóv.
Byggðasafn Ilafnarfjarðar:
Vaxmyndasýning. Til 30. sep.
Galleri(©hlemmur.is: Ragnar Gests-
son. Til 16. júlí.
Gallerí one o one: Egill Sæbjörnsson.
Til 8. ág.
Gallerí Reykjavik: Pétur Behrens. Til
18. júlí,
Gallerf Sævars Karls: Erna G. Sigurð-
ardóttir. Til 20. júlí.
Garður, Ártún 3, Selfossi: Jiirgen Wit-
te sýnir í GUK. Til 24. sep.
Gerðarsafn: Safn Péturs Arasonar og
Rögnu Róbertsdóttur. Til 8. ág.
Hafnarborg: K. Ushio. Til 28. júlí. ís-
land með augum Fransmanna. Til 7. ág.
Hallgrímskirkja: Ný verk Karólínu
Lárusdóttur. Til 1. sep.
i8, Ingólfsstræti 8: Ljósmyndaverk El-
inu Brotherus. Sýningin er opin fim. til
sun. frá 14-18. Til 7. ág.
Kjarvalsstaðir: Austursalur: Jóhannes
S. Kjarval. Myndir úr Kjarvalssafni.
Listasafn Ak.: Dyggðirnar sjö. Til 27.
ág-
Listasafn ASI: Kristín Geirsdóttir og
Ása Ólafsdóttir. Til 30. ág.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið alla
daganemamánudagakl. 14-17.
Listasafn íslands: Sumarsýning úr eigu
safnsins. Til 27. ág.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhúsinu:
Gestur Þorgrímsson og Rax Rinnekan-
gas. Sýningin er opin alla daga kl. 11-
18, fimmtudaga kl. 11—19. Til 27. ág.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Valin
verk eftir Sigurjón Ólafsson.
Listasalurinn Man, Skólavörðustíg:
Guðbjörg Lind Jónsdóttir og Valgarð
Gunnarsson. Sýningin er opin á versl-
unartíma. Til 16. júlí.
Listaskálinn í Hveragerði: Jóhanna
Bogadóttir. Til 10. sep.
Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg: Ragna
sýnir 16 ný olíumálverk. Til 20. júlí.
Ljósaklif: Keizo Ushio. Til 23. júlí.
Mokkakaffi: Ljósmyndasýning Gunn-
laugs Ámasonar. Til 11. ág.
Norska húsið, Stykkishólmi: Hlíf Ás-
grímsdóttir. Sýningin er opin alla daga
frákl. 11-17. Till.ág.
Nýlistasafnið: Gústav Geir Bollason,
Peeter Maria Laurits og Herkki Erich
Merila. Til 6. ág.
Perlan: Magnús Th. Magnússon. Til 31.
júlí.
Safnahús Reykjavíkur: Ljósmyndasýn-
ing Marisu Navarrou Arason og Rober-
to Legnani. Til 31. júlí.
Safnasafnið, Svalbarðsströnd: Ragnar
Bjarnason, Haraldur Sigurðsson,
Valdimar Bjarnfreðsson, Svava Skúla-
dóttir, Egill Ólafur Guðmundsson og
Guðjón R. Sigurðss. Til 29. ág.
Sjóminjasafn íslands, Vesturgötu 8,
Hafnarf.: Málverkasýning Jóns Gunn-
arssonar. Sýningin verður opin alla
daga frá kl. 13-17. Til 1. sep.
Skaftfell, Seyðisfírði: Olaf Christopher
Jensen. Til 17. sep.
Slunkaríki, ísafirði: Hallgrímur Helga-
son. Til 23. júlí.
Straumur: Alan James. Til 15. júlí.
Stöðlakot: Bubbi, Guðbjörn Gunnars-
son á sýningarsvæðinu útivið. Til 17. ág.
Þjóðarbókhlaða: Ástu Sigurðardóttur
minnst með sýningu á verkum hennar.
Til 31. ág.
Upplýsingamiðstöð myndlistar: Lista
yfir fyrirhugaðar og yfirstandandi
myndlistarsýningar í öllum helstu sýn-
ingarsölum má finna á slóðinni
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur
Skálholtskirkja: Tónlist Johannesar
Sebastians Bachs á 250 ára ártíð hans.
Sunnudagur
Akureyrarkirkja: Ydun Duo. Kl. 17.
Hveragerðiskirkja: Unglingakórinn
Muselfenkelcher frá Grevenmacher í
Luxemborg. Kl. 20.30.
Mánudagur
Kópavogskirkja: Unglingakórinn Mu-
selfenkelcher frá Grevenmacher í Lúx-
emborg. Kl. 20.30.
LEIKLIST
Loftkastalinn: Thriller lau.l5.,fös.21.
Iðnó: Björninn,fim.20.
SPÆNSK ORGELVEISLA
í HALLGRÍMSKIRKJU
MorgunblaSið/Árni Sæberg
José L. Gonsáles Uriol leikur á Klais-orgelið í Hallgrímskirkju
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 15. JÚLÍ 2000