Lesbók Morgunblaðsins - 25.05.1991, Page 10
Nýr Mitsubishi Pajero:
Lystivagn og há-
tækni torfærubíll
Pajero jeppinn er íslendingnm orðinn
gamalkunnur og hefur ekki tekið miklum
sýnilegum breytingum siðan hann kom
fyrst fram. Því hafa margir beðið þess
með nokkurri eftirvæntingu að Mitsubis-
hi kynnti nýja gerð þessa vinsæla jeppa,
og nú er hann kominn fram. Morgunblað-
ið var við kynningu bílsins í Þýskalandi
og þar var reynsluekið þeim gerðum sem
verða hér á markaði, en sá nýi er væntan-
legur á Islandsvegi í ágústlok eða sept-
ember, samkvæmt upplýsingum frá
Heklu hf., sem hefur umboð fyrir Mitsub-
ishi Motors hér á landi. Utlit jeppans
hefur ekki tekið byltingarkenndum
breytingum, verið lagað að kalli tímans
með mýkri línum, en allmiklar, jafnvel
byltingarkenndar, breytingar eru samt á
bílnum, bara ekki allar sýnilegar.
Glöggir menn sjá eflaust strax, að Pajero
er nokkuð öðruvísi til endanna, frá hlið séð,
en eldri gerðin. Mikið rétt, bil mílli hjóla
hefur verið aukið, bæði langs og þvers. Spor-
vídd er 65 mm meiri og öxulhaf er 70 mm
meira á styttri gerðinni og 30 mm lengra á
langa bílnum. Af þessu leiðir að minna slút-
ir yfír, þar sem heildarlengd er óbrevtt.
Þetta er mikill kostur í snjó og ekki síður í
brölti.
Innandyra blasa engar byltingar við fyrr
en betur er að gáð. Klæðningin er hefðbund-
in, notaleg, og stjórntæki ágætlega stað-
sett. Pláss er fimamikið, nægt fótarými
bæði í fram- og aftursætum, höfuðrými
ærið sem og á aðra kanta. Sætin eru af-
bragð. Útsýni er gott í allar áttir, speglar
stórir og ná vel hringinn aftur fyrir bílinn,
rafdrifnir og þægilegt að stilla þá.
Mælar sjást allir vel og milli þeirra er
gott ljósaborð sem sýnir tengingu
drifrásarinnar.
Hurðirnar eru stórar og opnast vel. Aftur-
hurð opnast niður fyrir gólf og er þægilegt
að komast að farangursrýminu.' Innan á
Hinn nýji Mitsubishi Pajero V6 3000, línur eru
orðnar mýkri, loftmótstaðan hefur við það minnk-
að um 15%.
hurðinni er verkfærakista með nauðsynleg-
ustu tólum.
Afburða hljóðlátur
Lengri gerðinni var ekið á vegum, þeirri
styttri í torfæram. Sá langi með þriggja lítra
V6 vélinni, hinn með 2,5 lítra Turbo Diesel
vél.
Þegar V6 vélin er komin í gang heyrist
varla í henni og í inngjöf heyrast fjarlægar
lágværar dunur, orkuhljóð sem ekki trflar
eða veldur óþægindum. Viðbr'ágð úr kyrr-
stöðu er þokkalegt fyrir tveggja tonna þung-
an bíl, en hann er þó ekki snarpur. Þegár
bætt er í á hraða tekur hann sæmilega við
sér, sígur jafnt og þétt upp á við, en betra
er að skipta niður ef menn vilja auka hrað-
ann snarlega.
Á hraðbraut er Pajero V6 3000 óhætt
að segja eins og fólksbíll, afburða hljóðlát-
ur, heyrist nánast ekkert vel upp fyrir
hundraðið. Hann lætur óaðfinnanlega að
stjórn við þessar aðstæður og er á allan
hátt hinn liprasti.
Á hlykkjóttum sveitavegum koma fyrstu
annmarkar bílsins í ljós. Beygjuhringurinn
er það stór, 12,6 metrar, að hann er hálf
stirður þegar þarf að snúa við eða athafna
sig í miklum þrengslum. Þá verkaði það illa
á undirritaðan að stýrið tekur ekki strax
við sér þegar því er snúið, eins og bíllinn
fylgi ekki fyrr en sekúndubroti síðar, finnst
ekki á hraðbraut, en þegar þræða þarf mjó-
stigu er það til ama. Þetta er samt nokkuð
sem hægt er að venjast og ekki víst að all-
ir setji fyrir sig.
I bæjarakstri er Pajero ljúfur og lipur,
þó með þeim takmörkunum sem beygju-
hringurinn setur honum.
Menn eiga því að venjast þegar svo há-
byggðir bílar sem Pajero eru keyrðir í
beygju, þá halli þeir sér, jafnvel skuggalega
mikið, út í beygjuna. Þetta er ekki vanda-
mál á hinum nýja Pajero. Hann gefur kost
á að stilla stífni demparanna á þijá vegu.
Finnst ekki mikill munur á upp/niður hreyf-
ingunni, en verulegur munur á mýkstu og
stífustu stillingu hvað varðar velting, eink-
um í beygjum.
Stutti bíllinn var prófaður í torfæram.
Þær vora tilbúnar af mannahöndum, enda
algjörlega óleyfilegt að aka utan vega á
almenningum í Þýskalandi. í malargryfjum
vora illfærar snarbrattar brekkur, pyttir og
holur, lausamalarbingir og fleira „góðgæti"
til að reyna bílinn. Það er skemmst frá að
segja, að hann stóð sig mun betur en vonir
Kraftmikill Applause
með sítengxlu aldrifi
Daihatsu Applause hefur átt vaxandi vin-
sældum að fagna frá því hann kom fyrst
á markað fyrir um tveimur árum. Trygg-
ir kaupendur Daihal.su hafa smám saman
fikrað sig upp í þennan stærsta bíl Dai-
hatsu verksmiðjanna sem nú er boðinn
með fjögurra strokka, 16 ventla og 91
hestafls vél með sjálfskiptingu eða hand-
skiptingu. Með 1991 árgerðinni var farið
að bjóða hann með sítengdu aldrifi og
það er sú gerðin sem við kynnumst nokk-
uð hér á eftir. Applause með framdrifi
kostar frá 929 þúsund krónur stað-
greiddur á götuna en með aldrifinu kost-
ar hann á götuna kr. 1.245 þúsund stað-
greiddur.
Við fyrstu kynni af Applause fyrir nokkr-
um misseram fékk hann þann dóm að hann
væri fremur lítið aðlaðandi útlits og sviplít-
ill bíll. Það hefur í raun lítið breyst en þó
má segja að bíllinn venjist vel og reyndar
hefur örlítið verið hresst upp á útlitið með
tvílit í stuðara og nýjar gerðir af felgum
era á aldrifsgerðinni.
Hlaðbakur og stallbakur
En það sem Applause var einkum hrósað
fyrir var skemmtileg lausn á honum sem
hlaðbak með útliti stallbaks, þ.e. afturhurð-
in opnast frá stuðarabrún og upp fyrir aftur-
rúðu, opnast vel og farangursrýmið er rúmg-
ott. Þetta er að sjálfsögðu áfram fyrir hendi
í Applause með sítengda aldrifinu.
Ápplause 16Z með aldrifí er með 1,6 lítra,
fjögurra strokka, 16 ventla og 105 hestafla
vél með rafeindainsprautun. Hámarkshrað-
inn er gefinn upp 180 km á klukkustund.
Appiause er 4,26 m langur, 1,66 m breið-
ur, 1,39 m á hæð og hjólhafið er 2,47 metr-
ar. Málin era hin sömu og á bílnum með
framdrifinu nema hvað sá er 1,37 metrar á
hæð eða heldur lægri en aldrifsbíllinn. Bens-
íntankurinn tekur 48 lítra. Þá er bíllinn
búinn rafstýrðum hurðalæsingum og rúðu-
vindum. Aldrifsbíllinn er með 5 gíra hand-
skiptingu og er sjálfskipting ekki fáanleg
en hann er búinn vökvastýri.
Applause er þokkalega búinn að innan,
með veltistýri, vel bólstruðum sætum, og
ágætu rými í fram- sem aftursætum. Hins
vegar er lofthæðin tæplega næg í framsæt-
um og nokkurn tíma tók að fínna rétta og
þægilega stellingu til aksturs og fá sætin
því ekki nógu góða einkunn. Útsýni er hins
vegar ágætt og sömuleiðis tökin á stýrinu
og staðsetningin á gírstönginni.
Skemmtilegt mælaborð
Mælaborð er skemmtilegt útlits, búið öll-
um venjulegum og nauðsynlegum mælum,
og gefur skipting mæiaborðsins í eins konar
efri og neðri hæð því skemmtilegan svip.
Fjöðrun er af MacPherson gerð, gormar og
sjálfstæð á hveiju hjóli og á hún tvímæla-
laust stóran þátt í góðum aksturseiginleik-
um Applause. Sítengda aldrifið í Applause
er búið mismunadrifí með seigjukúplingu
sem jafnar átakið milli fram- og afturhjóla.
Sætin eru vel bólstruð.
Á það að tryggja besta veggrip hveiju sinni,
í beyjum, í hálku eða við hinar ýmsu ólíku
aðstæður.
Applause er lipur og kraftmikill bíll. Hin
105 hestafla vél 'knýr bílinn léttilega úr
kyrrstöðu með snöggu viðbragði og hann
er snúningalipur í umferðinni á höfuðborg-
arsvæðinu. Skiptingin er lipur og sem fyrr
Mælaborðið er skemmtilegt útlits.
Farangursrýmið er allgott.
segir liggur stöngin vel við bílstjóra. Vinnsl-
an er góð í lægri gírunum en ekki skyldu
menn hika við að skipta ört niður við snögg-
an framúrakstur og má jafnvel telja þriðja
gírinn æskilegastan á mjög víðu hraða- og
snúningssviði.
Á malarvegi, þótt krókóttur og holóttur
sé, liggur Applause mjög vel og er óhætt
að aka honum nokkuð létt við þær aðstæð-
ur en vissulega skyldu menn gæta þess að
ofbjóða honum ekki. Þarna nýtur sín aldrif-
ið í samspili við góða fjöðrunina. Applause
er líka hljóðlátur og heyrist hvorki mikið
frá vél eða vegi.
Einn kostur af mörgum
Applause með sítengdu aldrifi kostar
staðgreiddur 1.245 þúsund krónur kominn