Lesbók Morgunblaðsins - 25.05.1991, Blaðsíða 3
TFgBáW
H®[B®[ö][N][Bl[tl®Sl®[i]SlS!
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvstj.: Haraldur Sveinsson. Ritstjór-
ar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunn-
arsson. Ritstjórnarfulltr.: Gísli Sigurðs-
son. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Sími 691100.
Forsíðan
Uppnefni
voru algeng um allt land fyrr á öldinni
og Reykjavík var ekki undantekning. í
síðustu grein sinni um Bræðraborgarstíg-
inn, segir Guðjón Friðriksson sagnfræð-
ingur frá íbúum við götuna, svo sem Þór-
bergi Þórðarsyni, sem bjó þar í kjallara,
Gwendi dúllara, sem var skemmtikraftur,
Jóni smala, Þórði kæfu og Gvendi strollu.
er af hluta úr málverki eftir kunnasta
málara Færeyinga, Sámal Joensen-Miki-
nes, sem lézt 1979. Myndin heitir „Grinda-
dráp“ og er frá 1942. Tilefni þessa og
samantektar um Mikines á bls 8-9, er að
Emil Thomsen í Þórshöfn hefur gefið út
vandaða listaverkabók um málarann og
ritar Bárður Jákupsson textann, en bókin
var prentuð hér í Odda. Þetta er mikið
og menningarlegt átak hjá Færeyingum
og verðskuldað, því Mikines hlýtur að telj-
ast í fremstu röð norrænna listamanna.
Á Torfunni
nánar tiltekið í Bankastræti 2 verður nú
Upplýsingamiðstöð ferðamála og frá því
segir í Ferðablaðinu. Þar verður haldinn
íslandsdagur og með honum vill miðstöðin
hvetja landann til ferðalaga um eigin land
og til að kynna sér nýungar.
MATTHIAS JOCHUMSSON
Til Vestur-íslendinga
-BROT-
III
Bragarbót
Sé ég hendur manna mynda
meginþráð yfir höfin hráðu,
þann er lönd og lýði bindur
lifandi orði suður og norður.
Meira tákn og miklu stærra
meginhand hefur guðinn dregið,.
sveiflað og fest með sólarafli,
sálu fyllt og guðsmáli, —
máli, sem hefur mátt að þola
meinin flest, er skyn má greina:
ís og hungur, eld og kulda,
áþján, nauðir, svartadauða.
Málið fræga söngs og sögu,
sýnu hetra guðavíni, —
mál, er fyllir svimandi sælu
sál og æð, þótt hjartanu blæði.
Það hefur voða þungar tíðir
þjóðinni verið guðleg móðir,
hennar brjóst viðhungri’ og þorsta,
hjartaskjól, þegar burt var sólin,
hennar Ijós í lágu hreysi,
langra kvelda jólaeldur,
fréttaþráður af fjarrum þjóðum,
frægðargaldur liðinna alda.
Sturla kvað yfir styijarhjarli,
Snorri sjálfur á feigðarþorra.
Ljóð frá auði lyfti Lofti,
Lilja spratt í villikyljum.
Arason mót exi sneri
andans sterka vígabrandi,
Hallgrímur kvað í heljar nauðum
heilaga glóð í freðnar þjóðir. —
Hvað er tungan? — Ætli enginn
orðin tóm séu lífsins forði. —
Hún er list, sem logar af hreysti,
lifandi sál í greyptu stáli,
andans form í mjúkum myndum,
minnissaga farinna daga,
flaumar lífs, í farveg komnir
fleygrar aldar, er striki halda.
Tungan geymir í tímans straumi
trú og vonir landsins sona,
dauðastunur og dýpstu raunir,
darraðarljóð frá elztu þjóðum,
heiftareim og ástartíríma,
örlagahljóm og refsidóma,
land og stund í lifandi myndum
ljóði vígðum — geymir í sjóði.
Matthías Jochumsson, 1835-1920, var prestur i Odda á Rangárvöllum og á Akureyri. Hann var
bæði trúarskáld og eitt helzta skáld rómantísku stefnunnar á Islandi.
LBJ LAJ IBJ LBJ
Rambó í Reykjavík
Líklega hefur fáa Reyk-
víkinga órað fyrir því fyr-
ir nokkrum árum að höf-
uðborgin yrði innan
stundar að eins konar
Sódómu. En staðreynd-
irnar tala hins vegar sínu
máli og leyna sér ekki.
Nú er svo komið að enginn getur lengur
verið óhultur um líf sitt og eigur og hefur
ofbeldisgrýlan bankað á dyr flestra borg-
arbúa í einni eða annarri mynd með mis-
skelfilegum hætti. Allir vita að þessi óheilla-
þróun hefur orðið á undraskömmum tíma.
Því hefur mjög verið haldið að fólki að
höfuðborginni sé fimavel stýrt af valin-
kunnu sæmdarfólki og má það satt vera ef
miðað er eingöngu við það hversu vel hefur
verið búið í haginn fyrir bíla og hús. Hins
vegar virðist það hafa gleymst með öllu að
í borginni býr fólk.
Margir hafa lagt höfuðið í bleyti til að
leita skýringa þess að þetta litla samfélag,
sem Reykjavík vissulega er, skuli snúast svo
gegn sjálfu sér sem raun ber vitni. Bent
hefur verið á ótalmargt sem aflaga hefur
farið og líklega allt réttilega. Meginskýring-
in hlýtur samt að vera sú að heimsmynd
borgarbúa hefur gerbreyst, einkum þeirra
sem erfa eiga landið og miðin og erlendu
skuldimar. Einhver utanaðkomandi áhrif
hafa leitt til þess að ungt fólk telur sig búa
í heimi þar sem tveir valkostir marka því
bás; að drepa eða vera drepinn ella. Sá sem
lokar á eftir sér útidyrunum síðla dags og
gengur út í óvissuna leggur leið sína á nokk-
urs konar vígvöll þar sem enginn veit hver
örlög honum eru búin.
Nú er það víst öllum ljóst að þessi heims-
mynd, svo fögur sem hún er, er okkur að-
send. Hún birtist okkur í formi kvikmynda
og myndbanda sem nú hafa lagt undir sig
stóran hluta af frítíma barna og unglinga.
Hvað mætir svo forvitnum augum ungviðs-
ins sem starir á þetta efni oft og klukku-
stundum saman dag hvem? Ég held að ég
þurfi ekki að svara þeirri spurningu.
Ég hef stundum verið að velta því fyrir
mér hvaða stéttir og þjóðfélagshópar koma
mest við sögu í þessum afþreyingarmiðlum
sem án efa leggja drög að hinni breyttu
lífssýn sem haldið hefur innreið sína. Liggur
ekki í augum uppi að þeir sem mata börnin
okkar reyna að forðast að setja eitur í fæð-
una ? Nei, ekki aldeilis.
Langstærsti hópur fólks, sem lýst er í
kvikmyndum þeim og myndböndum sem hér
eru á markaðnum, er bófar og morðingjar,
fólk sem gert hefur þjófnaði, nauðganir, lim-
lestingar og manndráp að eins konar list-
grein. Þetta fólk kemur úr öllum stéttum
samfélagsins en þetta sameiginlega áhuga-
mál gerir það að einum hópi.
Næststærsti hópurinn á eftir glæpahysk-
inu er þeir sem gæta eiga laga og rétta.
Þar kemur lögreglufólk mest við sögu. En
viti menn - sú mynd, sem dregin er upp
af löggæslunni í samfélaginu, er síður en
svo kræsileg; lögreglufólk kvikmyndanna
eru oftast ruddamenni sem einskis svffast
í samskiptum sínum við þá sem þeir eiga
að vernda - er raunar litlu skárri en glæpon-
arnir sem það á í höggi við. ívið huggu-
legri mynd fæst stundum af einni grein lög-
gæslunnar sem eru eru einkaspæjarar. Þeir
eru oftar en ekki heldur klárari í kollinum
en löggæslufólk í opinberri þjónustu og
stundum talsverð kyntröll en hins vegar
sjaldan minni ruddar í mannlegum sam-
skiptum. Efst í metorðastiga löggæslunnar
tróna svo lögfræðingar og dómarar. Þar er
stundum að finna heiðarlegt fólk þótt vita-
skuld beri miklu meira á þeim sem gerspillt-
ir eru og þjóna engu öðru en eigin hag.
Þriðji hópurinn, sem mest ber á, er fórn-
arlömbin, þeir sem drepnir eru, barðir,
skornir, stungnir, brenndir, sagaðir og ég
veit ekki hvað. Þessi hópur er auðvitað
grundvöllur þess að hinir tveir hóparnir
geti stundað iðju sína. Sú þróun hefur aug-
ljóslega orðið á meðferð þessa hóps afþrey-
ingarmyndanna að hann sætir sífellt hroða-
legra ofbeldi. Það virðist í rauninni þykja
hjóm eitt ef ekki er um hreinan kvalalosta
að ræða. Þannig eru kvikmyndaverin komin
í harða samkeppni um ógeð og sýna í því
aldeilis ótrúlega hugkvæmni. Best þykir
greiniega til takast á þeim bæjum ef sýndar
eru persónur sem ekkert eru annað en gang-
andi drápsvélar í líkingu við þokkapiltinn
Rambó, þann sem drap á báða bóga allt
kvikt að mestu að tilefnislausu. Þetta snilld-
armenni mælti varla orð á vörum alla mynd-
ina enda hefði allt slíkt mjög tafið hann f
þeirri einu list sem hann kunni til hlítar.
Nu hef ég lýst þeim þremur hópum manna
sem mest ber á í myndefni því sem skapa
á börnum okkar grundvöll til að kynnast
lífinu og takast á við það. Auðvitað koma
fleiri hópar og starfsstéttir til, s.s. læknar.
Sú var tíðin að læknar komu mjög við sögu
í kvikmyndum. Þar björgðuð þeir mannslíf-
um á snilldarlegan hátt á milli þess sem
þeir sinntu hugföngnum hjúkrunarkonum.
Nú sjást læknar einkum veita fórnarlömbum
morðingjanna nábjargirnar eða kryfja lík
þeirra og hjúkrunarkonur eru hvergi og er
Ijóst að þessa stétt hefur mjög sett niður á
hvíta tjaldinu.
Niðurstaða mín er þessi: Sú heimsmynd,
sem haidið er að ungu fólki, er svo svakaleg
að henni verður vart með orðum lýst. Grund-
völlur hennar er gegndarlaust ofbeldi í ótrú-
lega fjölbreyttum myndum. Varla sést það
sem mestu máli skiptir í lífinu; góðgjarnt
fólk, viturt og víðsýnt - nema helst sem
hráefni fyrir morðingja.
Nú munu sennilega margir þeirra, sem
þessi örð mín lesa, hugsa með sér: Þetta
er auðvitað rétt hjá Þórði eins og við er að
búast (afsakið). En hvað er hægt að gera?
Vitaskuld er eitthvað hægt að gera. Það
sem ekki er hægt er að sætta sig við að
sitja við allsnægtaborðið og láta byrla sér
ólyfjan. Uppgjöf er enn sem fyrr versti kost-
urinn.
Það vár hægt að setja kvóta á fisk. Hví
þá ekki á óhroðann sem börn okkar eru alin
á - þótt augljóst sé að fiskur er miklu dýr-
mætari en börn.
Það var hægt að búa til þjóðarsátt til að
bjarga ríkissjóði. Væri þá ekki eins hægt
að stofna til þjóðarsáttar gegn ofbeldis-
myndum - þótt allir viti að afkoma ríkis-
sjóðs er miklu alvarlegri mál en velferð
barna.
Svo var hægt að setja bráðabirgðalög til
að koma í veg fyrir að fólk fengi umsamin
laun greidd. Hvernig væri að setja bráða-
birgðalög til að bjarga bömum úr klóm sið-
spillandi afla - þótt það liggi í augum uppi
að flestir telji það miklu brýnna að lækka
laun en efla hag bama.
Ég er þess fullviss að til mjög margra
ráða má grípa til að koma í veg fyrir að
ungt fólk nærist á óhugnaði sem vafalaust
mun setja mark sitt á líf þess æ síðan.
Fólki, sem tönnlast á hugtakinu frelsi í tírna
og ótíma, má benda á að það væri vissulega
mikið frelsi ef tækist að draga úr þeim of-
beldisófögnuði sem gerir lílf margs fólks í
borginni að martröð.
ÞÓRÐUR HELGASON
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 25. MAÍ1991 3