Lesbók Morgunblaðsins - 30.06.1990, Page 9
Daglegt líf varð van Gogh endalaust myndefni. Þetta málverk er frá 1882 og
heitir „Kíkishappdrættið
Innan úr van Gogh listasafhinu í Amsterdam. Búizt er við miklum ferðamanna■
fjölda þangað í tilefni 100. ártíðar van Goghs.
Stíllinn átti eftir að breytnst, en hér sést hluti úr einni af frægustu myndum van
Goghs, sem hann nefndi „Kartöfluæturnar.“
Krókurinn beygðist snemma: 8 ára gamall teiknaði Vineent þessa brú.
Foreldrar listamannsins, Anna Cornelia Carbentus, 1819-1907 og séra Theodorus
van Gogh, 1822-1885.
borgaralega klæddir og skera sig á engan
hátt úr skara áhorfenda. Fulltrúar trygginga-
fyrirtækjanna voru fullvissaðir um að um
algjört tjón gæti ekki orðið að ræða, þ.e. að
félögin yrðu að greiða tæpa sex milljarða
gyllina. Loftferðaeftirlitið telur að hættan á
að flugvél steypist ofan á listasafnið sé í
„hæsta máta ólíkleg".- Byggingin sem hýsir
safnið er úr steini. Eldhætta er engin, eða
svo til engin. Listaverkin voru flutt fá í einu
inn í sýningarsalina og á meðan á flutningn-
um stóð var ströng öryggisgæsla viðhöfð og
brunaverðir voru í viðbragðsstöðu. Upplýs-
ingarnar um varúðar-ráðstafanirnar höfðu
áhrif: Þeir fyrstu sem gerðust aðilar að trygg-
ingasamlaginu voru tvö íýrirtæki, sem voru
kunn á listaverka-markaðinum: Merrett Mar-
ine Underwriters (váttyggjendur), sem sam-
þykkti yfirtöku 5%ábyrgðarinnar, og Moes &
Caviert í Amsterdam 3%. Eftir tæpa 10 daga
voru samþykktar tryggingar orðnar 2 millj-
ónir gyllina. Sá aðili, sem var liprastur, var
hollenska ríkið. Lofað var 150 milljónum
gyllina, öllum erlendum lánveitendum, ef
myndirnar löskuðust lítillega í flutningi eða
í sýningarsölunum. Einkafyrirtækin tryggja
fyrir algöru tjóni, þ.e. að myndirnar eyðilegg-
ist gjörsamlega. Verk í eigu hollenskra lista-
safna verða ekki tryggð, 42 teikningar og
120 málverk. Meðal erlendra eigenda, sem
lánað hafa verk á sýninguna, eru: Listahöllin
í Ziirich, Listahöllin í Bremen, dOrsay lista-
safnið í París, National Gallery í London,
Metropolitan-safnið í Boston, Yale-háskólinn
í New Haven og Puskin-safnið í Moskvu.
Meðal einkasafnara er t.d. gríski útgerðar-
maðurinn Stavros Niarchos.
Með tryggingagjöldum, flutningi verkanna
og kostnaði við sýningar og allri skipulagn-
ingu verður heildarkostnaðurinn um 25 millj-
ónir gyllina. Það eru utn 800 milljónir íslen-
enzkra króna. Helmingur kostnaðarins verð-
ur greiddur með inngangseyri, sýningar-
skráasölu og sölu útgáfuréttinda á skrárn og
listum og eftirmyndum. Það er í fyrsta skipti
í Evrópu, að panta má inngangsmiða fyrir
fram. Miðinn kostar i Þýskalandi 35 þýsk
mörk, eða 1070 ísl. krónur. Sýningarskrá í
tveimur bindum hefur verið gefin út á nokkr-
um tungumálum.
Auk sýninganna sjálfra er minning lista-
mannsins heiðruð á ýmsan hátt. Van Gogh-
safnið hefur gefið út að nýju bréf listamanns-
ins á hollensku, einnig samúðarbréf sem lista-
menn kunnugir van Gogh sendu Theo van
Gogh, bróður hans, og eiginkonu, eftir frá-
fall listamannsins.
Nútíma listamenn, svo sem Francis Bacon,
Gérard Garouste, Willem de Kooning, Jiri
Kolar, Jannis Kounelles, Roy Lichtenstein
og Antoni Tapies hafa gert grafíkmyndir sem
helgaðar eru van Gogh. Þessar mýndir hafa
verið prentaðar hjá Art Unlimited í Amsterd-
am og dreift, en salan verður til ágóða fyrir
minningarsjóð van Goghs. Stedelijk-safnið í
Amsterdam mun jafnhliða stórsýningunum
sýna ljósmyndir og myndir sem snerta iífsfer-
il listamannsins. Þjóðmenningarsafnið i Leid-
en sýnir japanskar tréskurðarmyndir, sem
höfðu áhrif á listsköpun van Goghs á sínum
tíma. Frans Hals-safnið í Haarlem sýnir
ásamt National Gallery í Washington verk
eftir Frans Hals (15.81-1666). En eins og
kunnugt er taldi van Gogh að Frans Hals
væri sinn lærimeistari í málaralist, en eins
og kunnugt naut van Gogh engrar skóla-
menntunar í myndlist.
Folkwang-safnið í Essen undirbýr í nánum
tengslum við van Gogh-safnið í Amsterdam
sýningu verka van Goghs, sem ætlað er að
sýna áhrif hans á evrópska framúrstefnulist
- hópa sem kenndir_ eru við Blaue Reiter,
Briicke og Fauves. A þeirri sýningu verða
35-40 verk eftir van Gogh, hún verður opnuð
10. ágúst og stendur til 4. nóvember í Essen
og verður síðan flutt til Amsterdam.
Samanlekt úr Art - das Kunstmagazin.
lESBÓK MORGUNBLAÐSíNS 30. JÚNÍ1990 9