Lesbók Morgunblaðsins - 23.01.1972, Qupperneq 8
Veiðileysufjörður séður ofan af hálsiniun. Bærinn Veiðileysa stendur við botn íjarðarins. Hann
er nú í eyði.
ið um síldarævintýrið mikla,
þetta flöktandi og óútreiknan-
lega silfur hafsins, sem alltaf
var verið að elta. Og þá
þurfti verksmiðjur og bryggj-
ur, söltunarplön og mannabú-
staði.
Nú er þetta minnismerki frá
1934 farið að láta á sjá; tönn
tímans hefur verið einstaklega
óvægin í Djúpuvík. Hálft í sjó,
hálft á landi stendur Suður-
landið og grotnar niður; rauð-
brúnn litur riðsins er allsstað-
ar ráðandi. Sömuleiðis hafa
bryggjurnar fúnað, staurarnir
veslast upp og sligast undan
yfirbyggingunni. Húsin standa
uppi, stór og mikii hús, sum-
staðar neglt fyrir gluggana.
Þau eru í senn draugaleg og
dularfull, hvað skyldi vera
þar innan dyra? Reykháfur
verksmiðjunnar gnæfir yfir öll
þessi mannvirki, sem enginn
heldur við, en þaðan líður eng-
inn reykur uppí loftið. Engin
mengun heldur. Hér heyr-
ist hvorki hljóð né stuna. Og
ekki nokkur maður á stjái. Ef
betur væri að gáð, eiga þó
fjórar eða fimm fjölskyldur að
búa á Djúpuvík, líklega í húsa
kynnum verksmiðjunnar. 1
önnur hús er naumast að
venda. Þeir lifa af gráslepp-
unni, var mér sagt í
öðru byggðarlagi. Og börnin
fara í skóla norður i Trékyll-
isvík.
Norðan við Reykjarfjörðinn
kom einn f jallgarðurinn enn og
sýndist ná útí hafsauga. Komu
brekkur og snarbrattar skrið-
ur, komu gil og enn hærri hjall
ar en áður. Eða niðri í fjöru;
bíllinn látinn silast áfram í
fyrsta eða öðrum. Vegurinn
er vísast ekki mjög breiður
en það kemur ekki að sök;
aldrei mættum við bíl, ekki
svo mikið sem ein kýrskepna
var á þessum vegi. Það líður
á daginn, lognið ennþá á himni
og jörðu og öðru hverju er mað
ur að hugsa til baka: Veiði-
leysufjörður, Kaldbaksvík,
Balar, Kaldrananeshreppur,
Bjarnarfjörður, síðan hálsinn
og Steingrímsfjörður. Og
Hólmavík. Það var nú bara
eins og að hugsa til New York.
Skyldi enn vera óraleið í Tré-
kyllisvík? Nú er Djúpavík
beint á móti, handan við fjörð-
inn. Annars er ekki byggt ból
að sjá. Unz komið er lengra og
vegurinn hátt upp í hlíðinni,
fannir í giljum. Verður þar
ekki bær, sem kemur alsendis
á óvart; dálítill bær í snotrum
hvammi sosum hálfa leið nið-
ur að sjónum. Túnið örlítið,
eða réttara sagt alls ekki neitt,
vallendiskragi umhverfis hús-
in. Og vegurinn niður að bæn-
um svo brattur að maður skil-
ur bílinn eftir uppi og labbar,
þvi ekki virðist alveg víst, að
venjulegt farartæki drífi upp
brekkuna. Við göngum ósjálf-
rátt hljóðlega niður brekkuna
HÚN LÉT
LÍFIÐ
FYRIR
ÁST SÍNA
HIN þrítuga, franska
kennslukona, Gabrielle
Russier, varð ástfangin af
sautján ára gömlum nem-
anda sínum, Christian Rossi.
Um langt skeið háði hún
baráttu við ástríðu sína, en
hjartað hlustar sjaldan á
rödd skynseminnar. Uni
tíma lifðu kennslukonan og
nemandi hennar hamingju-
söm saman, en hræsnarar
drógu Gabrielle Russier fyr-
ir rétt, þar sem hún var
dæmd fyrir mök við ólög-
ráða ungling, og áfram-
haldandi ofsóknir ráku hana
að lokum í dauðann.
Ofsóknir. Orðjð bergmálaði
um allt Frakkland og farset-
inn, Georges Pompidou gaf út
opinberlega tilkynningu: Skilji
þetta hver sem má. Mig tekur
það mjög sárt að heyra það.
En þá var það um seinan.
Hin 33ja ára gamla kennslu-
kona, Gabrielle Russier hafðl
framið sjálfsmorð. Slúðurburð-
urinn hafði dregið hana til
dauða. Ofsóknir hræsnis-
fullra siðapostula. Ofsóknir,
sem eiga sér enga hliðstæðu
síðan á miðöldum.
Drungalegan síðsumarmorg-
un skrúfaði GabrieHe Russier
frá gasinu í eldhúsi sínu. Lífið
var orðið henni óbærilegt. Það
líf, sem fyrir aðeins fáum mán-
uðum hafði verið svo fagurt og
og heim að bænum, líkt
og maður vildi forðast a@
vekja fólkið — eða bæinn.
Hvað segir kortið: Naustvík.
Gluggatjöldin gefa til
kynna, að hér sé búið. En það
sést ekki maður. Samt er reyn-
andi að drepa á dyr. Einu
sinni, tvisvar, þrisvar og hurð-
inni er lokið upp.
„Steinunn Guðmundsdóttir"
segir gamla konan, þegar hún
kynnir sig. Ung telpa kemur
einnig á stjá, dótturdóttir
gömlu konunnar; hún er þarna
í sumarvist.
Það kom í Ijós, að
Steinunn hafði búið í 52 ár í
Naustvík, en bóndi henn-
ar, Guðmundur Árnason, var
nú blindur orðinn; hann kom
ekki út. Þau eru hætt búskap
í Naustvík sökum aldurs, en
láta það verða sitt fyrsta verk
að vorinu að komast þangað og
eru þar sumarlangt. Yfir vet-
urinn eru þau í Reykjavík.
,,Ég hef elzt síðan ég byrjaði
á þessu flandri", sagði Stein-
unn. Þau komu norður í maí í
vor; þá var allt á kafi í snjó
og skafl í túninu framí júlí.
Þau höfðu verið leiguliðar
alla tíð og komizt mest uppí
130 ær og 2 kýr.
Franili. í næsla hlaði.
Christian Kossi. Seytján ára gamall var Iiann svo bráðþroska,
bæði Ukamlega og andlega, að nieiin héldu hann 23—25 ára. Hamuii
varð alvarlega ástfang-inn af kennslukonunni sinni, seni var 13
áruin eidri og það átti eftlr að draga dilk á eftir sér.
Við Kaldhaksldeif. Vegurinn er mjög seinfarinii en hvergi
varasainur.
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
23. jartúar 1972