Lesbók Morgunblaðsins - 07.05.1961, Page 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
251
Bætt rithönd æskileg, segja Bretar
í ENGLANDI virðist nú vaknað-
ur talsverður áhugi fyrir því að
koma á betri skriftarkennslu og
taka upp svonefnda „ítalska
skrift“. Var stofnað félag fyrir tíu
viudjtrAMt
it n, l k»\rw, vtvy
quxtk* hrr^rn jrx J
gA Utut vt sfvrvns
Sýnishorn af skriftinni
árum til þess að berjast fyrir
þessu máli, og kallast það „The
Society for Italic Handwriting“.
Síðan hafa þúsundir manna lært
þessa rithönd. Fyrirmyndina er að
finna í handritum frá Flórenz á
14. og 15. öld. í British Museum
eru nokkur handrit með þessari
skrift. Þau eru orðin 500 ára
gömul, en þykja læsilegri heldur
en ýmis bréf nú á dögum.
Skriftin er ekki dráttskrift, en
notað>ur er þveryddur penni, sem
gerir bæði feit og fín stryk, eins
og sjá má hér á sýnishorninu, og
stafirnir eiga að vera sem allra
einfaldastir. Þess vegna er skriftin
svo læsileg. Og nú eru komnir á
markaðinn sjálfblekungar með
þveryddum penna handa þeim,
sem skrifa þessa rithönd.
í barnaskóla í Cheshire er þessi
skrift kennd einvörðungu og
skólastjórinn hefir látið svo um
mælt: „Vegna þess að börnin eru
farin að skrifa betur, hafa þau
fengið meiri áhuga fyrir skriftar-
kennslu. Þau læra meira og eru
fljótari að læra“. Það eru nokkur
meðmæli með skriftinni.-------
Hér á íslandi mun þessi rithönd
ekki tí&kast nú. En íslendingar
hafa kunnað hana áður, eins og
sjá má á Konungsannál, sem tal-
inn er ritaður um 1300. Hér er
sýnishorn af þeirri skrift. Er hún
að vísu ekki auðlesin, vegna þess
að stafagerð var þá önnur en nú
og svo er skammstafað og bund-
ið. En þetta stendur á blaðinu:
(Dáin) „Kristín dóttir Hákonar kon
ungs, út á Spáni. Ólafr Grænlend-
ingabyskup kom til íslands. Eldr
í Sólheimajökli. Myrkr mikil, svá
at fal sól.
(1263) — Vígðr Brandr byskup
til Hóla, en Gillibert byskup til
Hamars. Útkváma Brands bysk-
ups. Þrír byskupar á íslandi. Á
þessu sama ári játuðu Oddaverjar
Noregskonungum skatti fyrir aust-
an Þjórsá um Sunnlendingafjórð-
ung. Ok þann vetr um allra heil-
agra messuskeið svarði Þorvarð-
ur Þórarinsson Brandi byskupi,
föðurbróðr sínum, at fara á kon-
ungsfund at sumri, ok svá gerði
hann. Lafalin Bretakonungr sigr-
aði Englismenn“.
Brot úr Konuugsannál. Þetta handrit mun nú vera meðal þeirra, sero
heún eiga að koœa.