Lesbók Morgunblaðsins - 06.10.1957, Qupperneq 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
507
ing, hrein og lífgandi, en frönsku
byltingunni fylgdu manndráp, tor-
tíming og ógnarveldi.
Hið eina sem megnar að stöðva
mannkynið á þeirri óheillabraut,
sem það er nú á, er að það láti guð
ráða. Sú hugarfarsbreyting, sem til
þess þarf, verður að byrja á heim-
ilunum og síðan þroskast í skólun-
um. Sú þjóð, sem leitar fyrst guðs-
ríkis og réttlætis hans, á hamingju-
sama framtíð í vændum.
(Útdráttur úr grein eftir Emil
Hinderborg).
GLER
— harðara en stál
BANDARÍSKUR vísindamaður,
dr. S. Donald Stookey, hefir fund-
ið upp gler, sem nefnt er „pyro-
ceram“ og hefir marga merkilega
eiginleika. Það er harðara en stál
og tinna, léttara en aluminíum og
hefir meira burðarmagn en ryð-
frítt stál. Það tekur minni breyt-
ingum við hita og kulda heldur en
brenndur leir, þolir alls konar sýr-
ur og hefir ýmsa aðra merkilega
kosti, sem þykja afar mikilsverðir
á þessari öld kjarnasprengja og
ráketta. Þess vegna er aðferðinni
við framleiðslu þess haldið strang-
lega leyndri, og er hún eitt af hern-
aðarleyndarmálum Bandaríkjanna.
Það eitt er vitað, að glerið er brætt
tvisvar sinnum og bætt í það ein-
hverjum efnum og notaðir útbláir
geislar til þess að gera það svo
sterkt, að það þolir 40.000 punda
þunga á hvern ferþumlung, án
þess að brotna. Auk þess getur það
verið hreint og tært sem krystall.
En ótal tegundir er hægt að fram-
leiða af því, eftir því til hvers á að
nota það.
s
s
s
s
s
s
s
)
s
s
s
s
s
í
s
s
s
s
s
s
s
s
i
s
s
s
s
s
s
(
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
(
s
s
s
s
s
s
)
Uppeldi og frœðsla
BARNAUPPELDIÐ, sem er svo
mikið undirstöðuatriði frá sjón-
armiði hinnar siðferðislegu þró-
unar folksins, hefir ætíð dregið
dám af stjórnmálalegum og
þjóðfélagslegum umbrotum. Það
má vel vera, að á ákveðnum
tímabilum fortíðarinnar hafi
uppeldi verið betra en það er nú
á dögum. Menntun barna var
auðsjáanlega ekki eins almenn,
en vandamálið er ekki jafn mik-
ið folgið í útbreiðslu og í gæð-
um. Illt uppeldi, eða það, sem
hvílir á fölsuðum undirstöðuat-
riðum og er mjög útbreitt, hefir
auðvitað skaðvænlegar afleið-
ingar í för með sér. Kenningin
um allsherjar menntun er ágæt,
en á undan tímanum, meðan
mönnum kemur ekki saman um,
hvers konar eðli og eiginleikum
fræðslan skuli gædd, né heldur
um hitt, hvernig eigi að undir-
búa jarðveginn. Að gefa barninu
eins konar vitsmunalega niður-
suðu, láta því fræðsluhrafl í té, •
án þess áður hafi verið lögð
traust siðferðileg undirstaða sem
fræðslan hvílir á — það er að
byggja á sandi. Og því hærri
sem byggingin er, því fullkomn-
ara verður hrunið.
Þannig er þó fræðslunni allt
1
s
s
s
s
s
of víða hagað, og er það að lík- j
indum því að kenna, hversu ^
hörmulega uppeldi og fræðslu er s
ruglað saman. Uppeldi er fólgið )
í því að laga og fegra siðferðis- |
þáttinn í skapgerð barnsins, að s
kenna því hinar fáu óbreytanlegu i
undirstöðureglur, sem viður- •
kenndar eru um víða veröld. Það s
er fólgið í því að glæða í litla S
anganum frá blautu barnsbeini j
tilfinninguna fyrir mannlegri ^
göfgi. Á hinn bóginn er fræðslan S
fólgin í því að hugfesta barninu )
nokkuð af þekkingu þeirri, sem ^
mönnum hefir tekizt að safna s
saman á hverju sviði. Uppeldið j
leiðbeinir barninu við störf, •
blæs því í brjóst hversu það (
skuli hegða sér í öllum viðskift- s
um sinum við aðra menn, og £
hjálpar því til að stjórna sjálfu ^
sér. Fræðslan lætur því í té efn- s
in til vitsmunalegra starfa og )
skýrir því frá raunverulegu |
ástandi menningar vorrar. Upp- s
eldið veitir barninu hina óbreytan )
legu undirstöðu lífs síns. Fræðsi- :
an gerir því unnt að laga sig s
eftir breytingum umhverfisins og s
að tengja þessar breytingar við £
atburði í fortíð og framtíð.
(Stefnumark mannkyns) /
Talið er að þetta gler muni vera
ágætt í belgi flugvéla, sem fara
svo hratt að flest önnur efni
mundu bráðna vegna hitans sem
verður af mótstöðuafli loftsins. Nú
þegar er farið að nota það í brodda
á flugskeytum og eldflaugum, er
fara með mestum hraða. Það hefir
og serstakan einangrunar hæfileika
gagnvart rafmagni, og vegna þess
mun nú unnt að fullkomna mjög
þau rannsóknatæki, sem höfð eru
í eidflaugum og rákettum sem
sendar eru upp í háloftin. Jafnvel
er nú farið að tala um að senda
rákettur út fyrir gufuhvolf jarðar
og fá merkjasendingar frá þeim
um hvernig hagar til í ómælis-
geimnum. En það byggist á þess-
ari nýu uppgötvun.
Einn kost enn hefir þetta merki-
lega gler og er hann mjög mikils
virði, að framleiðsla þess er tiltölu-
lega mjög ódýr. Þess vegna er bú-
ist við því að innan skamms verði
farið að nota sumar tegundir þess
í hluti til daglegra þarfa, svo sem
í pípur og teinunga til styrktar
sementssteypu. Og ef til vill verð-
ur þess ekki langt að bíða, að jafn-
vel hamrar og sleggjur verði úr
gleri.