Lesbók Morgunblaðsins - 15.01.1950, Síða 2
14
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
eigenda, er þarf að leggja rafsegul-
þráðinn eftir á Grænlandi, íslandi
og Færeyum, má Shaffner eiga
von á að fá með þeim kostum, er
seinna skulu til teknir“.
Til ábyrgðar því að fyrirtæki
þetta gengi skjótt, skyldi Shaffner
sýna og sanna eftir 3 ár að hann
hafi í það lagt að minsta kosti
100.000 ríkisdali. Hafi hann þá eigi
varið svo miklu fje í það, átti hann
að fá dönsku stjórninni í hendur
til varðveislu það fje er á þá upp-
hæð skorti, „og skal það fje end-
urgreitt ef þráðurinn er kominn í
lag á 10 ára fresti, annars skal
danska stjórnin eiga fje þetta“.
Ekki varð nú samt úr því, þrátt
fyrir einkaleyfið, að menn aðhyllt-
ust hugmynd Shaffners. Annað
sæsímafjelag var stofnað og á ár-
unum 1857—58 lagði það sæsíma
beint frá Newfoundland til ír-
lands. Hann var vígður með því
að símsend var ræða, sem Viktoria
Englandsdrotning helt í tilefni af
þessum merkisatburði. Var þá al-
mennur fögnuður bæði í Bretlandi
og Bandaríkjunum.
í New York var mikið um dýrð-
ir, mannfjöldi á götum úti ör af
gleði og flugeldum skotið. Var á-
kafinn svo mikill að flugeldarnir
kveiktu í ráðhúsi borgarinnar og
brann þa$ til kaldra kola.
En gleðin varð skammvinn. Spár
Shaffners rættust. Sæsíminn bilaði
óðar. Hann hafði kostað 400.000
sterlingspund og þeim peningum
hafði bókstaflcga verið íleygt i
sjóinn.
Shaíl'iicr fer á stúfana.
Þegar þannig var komið fó%
Shaffner aftur að hugsa sjer til
hreyfings. Sumarið 1859 leigði hann
sjer lítið skip og sigldi á því frá
Labrador til Grænlands og mældi
dýpi á þeiin slóðum. Vildi nú svo
til að þetta sumar var engnm is
við Grænland og gat Shaffner
siglt þar fram og aftur hindrana-
laust og jafnvel langt norður með
austurströndinni. Af þessu dró
hann þá ályktun, að sögurnar um
hafís við Grænland væri eintóm-
ar skröksögur.
Hann helt nú áfram ferð sinni
til íslands, Færeya og Englands og
mældi dýpi á þeirri siglingaleið.
Og þegar til Englands kom var
hann mjög kampakátur og helt fyr
irlestra um leiðangur sinn og fyr-
irhugaða sæsímalínu á þessum
slóðum. Mörgum fanst hann taka
djúpt í árinni er hann lýsti ísleys-
inu við Grænland, en þó fór svo
að hann vann marga háttsetta
menn á sitt mál og fekk firmað
Croskey & Magnus til þess að
ganga í fjelag við sig.
Honum varð einnig svo vel á-
gengt, að enska stjórnin lofaði að
leggja til tvö skip á næsta sumri,
„Bulldog“ og „Fox“ til þess að ann-
ast rannsóknir á þessari leið. Átti
„Bulldog“ að mæla sjávardýpi á
þeim slóðum, er síminn átti um nð
liggja, en „Fox“ skyldi rannsaka
hvar best væri að sæsímaspottinn
kæmi á land í Færeyum, íslandi cg
Grænlandi.
Danska stjórnin lofaði að leggja
til tvo menn í „Fox“-leiðangurinn,
og urðu fyrir valinu Th. Zeilau,
yfirliðsforingi og Arnljótur Ólafs-
son alþingismaður. Sennilega hef-
ir hann verið valinn vegna þess.
að Grímur Thomsen hafði komið
-honum í kynni við barón Blixen-
Finecke. Hafði Arnljótur verið
kennari sonar hans og fylgl þeim
feðgum suður í lönd.
Vorið eftir sendi danska dóms-
málaráðuneytið tilkynningu um
það hingað til lands (9. og 20.
júní) að von væri á þessum skip-
um og lagði i'yrir stiptamtmann og
amtmcnn að lúta leiðangursmönn-
uiu i tje „alla þa greiðvikni og
hjálp, sem þeim er unt við að koma
ug vió að kanna þa staði, þar sem
mætti koma þræðinum á land og
ákveða hver stefna væri hagkvæm-
ust fyrir þráðinn hjer á landi“.
Einhver kvittur hafði þó komið
upp um það, að Shaffner hefði þeg-
ar fyrirgert einkaleyfi sínu. Út af
því hafði fjármálaráðuneytið
danska birt yfirlýsingu um, að
þetta væri tilhæfulaust. Shaffner
hefði þegar afhent stjórninni
100.000 rdl. til varðveislu. Seinna
fekk stjórnin honum aftur þetta
fje til frjálsra afnota.
Fox-leiðangurinn.
Skipið „Fox“ var upphaflega
kappsiglingasnekkja, en svo keypti
frú Franklin það fyrir 2000 stpd. og
sendi það í leiðangur til að leita að
manni sínum, Sir John Franklin og
skipverjum hans, sem horfið
höfðu á rannsóknaför norðan við
Kanada. Var skipinu þá breytt
mjög, svo að það þyldi sem best
ferðalag og hnjask í íshafinu. Sigl-
ingakjölurinn var tekinn af því og
blýkjölur settur í staðinn, tvö
vatnsheld skilrúm gerð um skipið
þvert, settir voru í það nýir bitar
og öll skipsgrindin styrkt sem best,
en utan á byrðinginn voru settar
tvennar klæðningar af 3 þuml.
þykkum bjálkum.
Skipið átti að leggja á stað frá
Englandi hinn 16. júlí, en þá sýndi
Viktoría drotning þann áhuga á
fyrirtækinu að hún óskaði að fá að
skoða skipið áður cn það legði á
stað. Var því fyrst siglt til eyar-
innar Wight, þar sem drotning
dvaldist þá. Kom hún um borð í
„Fox“ ásamt Albert manni sínum
og prinsessunum Alice, Helene og
Louise. Voru þá allir yfirmenn
skipsins og fulltrúar dönsku stjórn-
arinnar kyntir fyrir drotningu, og
sýndi hún Arnljóti Ólafssyni þá
vij ðingu að spyrja hann um ýmis-
legt frá íslandi. Daginn eftii- voru
svo allir þessir menn i boði á
skemtisnekkju diotrungar. „Fox“