Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1997, Page 11
MANUDAGUR 11. AGUST 1997
11
Fréttir
íslenski dansflokkurinn:
Fluttur í Borgarleikhúsið
- gleöiefni, segir
Samningar hafa tekist á milli
Borgarleikhússins og íslenska dans-
flokksins um að hann fái æfinga- og
sýningaaðstöðu í Borgarleikhúsinu
í framtíðinni. Samningaviðræður
hafa staðið yfir alveg síðan í fyrra-
vor. Dansflokkurinn hefúr frá því
hann missti aöstöðu sína í Þjóðleik-
húsinu ekki haft viðunandi starfs-
aðstöðu.
„Ég er mjög ánægð með að fá ís-
lenska dansflokkinn hingað inn.
Mér finnst hann gera okkar prófíl
betri og ég er viss um að við getum
styrkt hann listrænt séð og án vafa
getinn við stofnað til einhverra
merkishluta saman,“ sagði Þórhild-
ur Þorleifsdóttir, leikhússtjóri Borg-
arleikhússins, í samtali við DV.
Hún sagðist alveg frá því hún
byijaði sem leikhússtjóri hafa verið
fylgjandi því og unnið að því að ís-
lenski dansflokkurinn fengi aðstöðu
í Borgarleikhúsinu.
Þórhildur Þorleifsdóttir leikhússtjóri
Guömundur Valgeir Jóhannesson á
göngu á Flateyri þar sem hann hef-
ur alið allan sinn aldur.
DV-mynd R.T.ó (
92 ára öldungur:
Bíð eftir
álitlegri
ráðskonu
DV, Flateyri:
„Ég labba meðan lappimar hanga
undir mér. Ég verð þó að fara mjög
varlega," segir Guðmimdur Valgeir
Jóhannesson, 92 ára öldungur, sem
gengur daglega kílómetra á Flateyri
þar sem hann hefúr alið allan sinn
aldur. Hann segist fara reglulega
tvisvar á dag í gönguferðir auk þess
að fara í heita pottinn.
„Það þýðir ekkert að gefast upp
og ég geri það ekki meðan ég er ekki
orðinn hundrað ára. Ég fæ mikið út
úr hreyfingunni og svo fer ég
tvisvar til þrisvar í viku i heita pott-
inn,“ segir hann.
Guðmundur er vistmaður á Elii-
heimilinu Sólborg á Flateyri. Hann
á þó sitt eigið hús þar sem hann er
enn til heimilis. Hann segist vera
imdir nokkrum þrýstingi að færa
heimilisfang sitt á elliheimilið.
„Þeir hafa verið að rifast i mér að
flytja mig. Ég hef gefið þeim þá
skýringu að ég sé að bíða eftir álit-
legri ráðskonu. Maður missir aldrei
áhugann á kvenfólkinu,“ segir Guð-
mundur Valgeir og glottir. -rt
Renía Tent
-Tjíldaleigan
Skemmtilegt hf.
Krókháls 3, 112 Reykjavik
Sími 587-6777
Þórhildur segir að það hafi aðeins
orðið að breyta húsaskipan í leik-
húsinu vegna þessa.
„Dcmsflokkurinn fær sýningaað-
stöðu, eina kortasýningu á ári og
eina sýningu á stóra sviðinu og aðra
á minna sviði. Einnig fær flokkur-
inn stórt stúdíó til umráða auk álmu
fyrir búninga- og skrifstofuaðstöðu.
Hann mun að sjálfsögðu greiða leigu
fyrir þá aðstöðu sem hann fær hér í
húsinu. Og það er rétt, okkur munar
um hvern eyri sem kemur í kass-
ann,“ sagði Þórhildur.
Hún segir að í Evrópu sé mjög
vaxandi áhugi fyrir nútímadansi.
Hann virðist höfða til ungs fólks
ekki síst vegna hins mikla áhuga
sem er fyrir líkamsrækt og líkams-
styrk hjá ungu fólki nú til dags.
„Þess vegna er farið að nota
þetta form mjög dramatískt og mér
sýnist ég sjá teikn á lofti um að ís-
lenski dansflokkurinn sé að færast
í þessa átt og þess vegna tel ég list-
rænan ávinning að þvl að fá hann í
húsið," sagði Þórhildur Þorleifs-
dóttir. S.dór
Utsa la
Sumarúlpur - heilsársúlpur
Stuttar kápur áðurkr. 16.900 núkr.
Síðar kápur
10 '6
HU5ID
Mörkinni 6
sími 588 5518
FAÐU ÞER PIZZU
FYRIR ÞÚSUNDKALL
í tilefni af fjögurra ára afmæli
Domino’s Pizza á (slandi þann
16. ágúst býöst öllum pizzuunnendum
einstakt afmælistilboð þessa viku. Þú hringir
eöa kemur, parrtar draumapizzuna þína meö
allt að fjórum áleggstegundum og borgar
aöeins þúsund krónur fyrir.
Njóttu afmælisveislunnar meö
Domino’s og fáðu þér pizzu fyrir
þúsundkall. Afmælisveislan hefst í dag og
lýkur að kvöldi afmælisdagsins þann 16.
ágúst. Tilboðið gildir ekki í Kringlunni.
GRENSÁSVEGI 11 • HÖFÐABAKKA 1 • GARÐATORGI 7 • KRINGLUNNI • SÍMI 58-12345