Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1997, Síða 8
8
MÁNUDAGUR 11. ÁGÚST 1997
Útlönd____________________________________________________________
Dennis Ross, sendimaöur Bandaríkjastjórnar í Mið-Austurlöndum:
Milli steins og sleggju
í orðaskaki deiluaðila
Dennis Ross,
sendimaöur
Bandaríkjastjóm-
ar, var í miðju
orðaskaksins í
Mið-Austurlönd-
um í gær, á fyrsta
degi ferðar sinnar
þangað. Hann
mun reyna að
blása nýju lífi í
friðarviðræður ísraela og Palestínu-
manna. Mjög köldu andar milli
þeirra eftir' sjálfsmorðsárásir á
markaðstorg i Jerúsalem fyrir
skömmu.
Ross hitti Benjamin Netanyahu,
forsætisráðherra ísraels, og Yasser
Arafat, forseta Palestínumanna, að
máli i gær. Deiluaðilar era hins veg-
ar ekki á einu máli um hvort sátta-
umleitanir Ross snerust eingöngu
um öryggismál. ísraelar héldu því
fram að öryggismálin væru
aðalatriðið en Arafat var á öðru
máli.
„Mér finnst vera vilji til að þoka
málum áleiðis en það mun krefjast
mikillar vinnu," sagði Ross í viðtali
við ísraelska sjónvarpsstöð eftir
fund sinn með Weizman forseta.
Ross ræddi síðan við Netanyahu
öðru sinni og reiknað var með að
hann hitti Arafat einnig aftur að
máli í gærkvöldi.
Embættismaður Frelsissamtaka
Palestínu (PLO), sem vildi ekki láta
nafns síns getið, sagði að yfirmaður
leynilögreglu ísraels yrði á síðari
fundi Ross og Arafats í gærkvöldi.
Ross ræddi einnig við palestínska
embættismenn um hugmyndir sem
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, leggur hugs-
anlega fram í fyrstu ferð sinni til
Mið-Austurlanda í lok mánaðarins.
Clinton forseti og Albright sendu
Ross til að draga úr spennunni í
samskiptum ísraela og Palestínu-
manna í kjölfar sprengjutilræðisins
í Jerúsalem. Ross sagði að forsetinn
og ráðherrann vildu að hann legði
áherslu á öryggismál í viðræðum
sínum.
Hann sagði þó að Clinton og
Albright viðurkenndu að ræða
þyrfti pólitíska hlið deilunnar en
friðarferlið stæði þó og félli með
öryggismálunum.
Reuter
Taívan:
Sextán dóu
í flugslysi
Sextán manns fórust í gærmorg-
un þegar nítján sæta Domier flug-
vél í innanlandsflugi á Taívan fórst
á eyjunni Matsu. Flugvélin var á
leiðinni frá höfuðborginni Taípei
til Matsu.
Björgunarsveitarmenn fundu
eina konu á lífi eftir slysið en hún
lést á leiðinni í sjúkrahús.
Sjónarvottar sögðu að sprenging
hefði orðið í vélinni eftir að hún
hrapaði til jarðar og eldur kom upp
í flakinu. Að sögn sjónvarpsstöðvar
á Taívan voru líkin svo iÚa brunn-
in að þau voru óþekkjanleg.
Flugritar vélarinnar eru fundnir
og er rannsókn á orsökum slyssins
þegar hafin. Að sögn yfirvalda er
veðri ekki um að kenna.
Ættingjar syrgja ástvini sem létust
í flugslysinu á Taívan.
Símamynd Reuter
Skæruliðum
kannski sleppt
Bresk stjórnvöld létu að því
liggja í gær að þau kynnu að
íhuga að láta skæruliða IRA, sem
sitja í fangelsum, lausa ef þriggja
vikna gamalt vopnahlé hreyfmg-
arinnar heldur.
Það var Mo Mowlam, ráðherra
málefna Norður-írlands, sem
skýrði frá þessu í blaðaviðtali.
Þúsundir manna fóru 1 kröfu-
göngu í gær þar sem krafist var
að skæruliðum IRA yrði sleppt.
Reuter
Myndir sanna að Díana á nýjan kærasta:
Faðmaði og kyssti
Dodi á sundfötunum
Bresk dagblöð lýstu því yfir í gær
að ekki væri um að villast að Díana
prinsessa hefði loksins fundið sér
nýjan kærasta. Máli sínu til stuðn-
ings birtu þau óskýrar myndir þar
sem prinsessan er í innilegum faðm-
lögum við hinn 41 árs gamla Dodi
Fayed, son eiganda Harrod’s stór-
verslunarinnar.
Skötuhjúin voru faðmandi og
kyssandi hvort annað um borð í lúx-
ussnekkju á Miðjarðarhafi þegar
myndimar voru teknar, greinilega
að þeim óafvitandi. Bæði voru að-
eins klædd í sundfot. Þegar er farið
að tala um giftingu á vetri kom-
anda, hugsanlega í nóvember.
„Prinsessan finnur loks hamingj-
una í örmum elskhuga síns,“ sagði
blaðið Mirror í gær. Blaðið fjallaði
um þennan nýjasta þátt í hinni kon-
unglegu sápuóperu á 8 síðum.
Mirror þótti birta bestu myndim-
ar í gær en hin æsiblöðin létu sitt
ekki eftir liggja. Blaðið News of the
World fullyrti að Dodi Fayed hefði
sagt konu sinni fyrrverandi að hann
ætti í alvöru ástarsambandi við
Díönu.
„Þetta er ekki eitthvað út í loftið,
ég lofa þér því. Þetta er alvarlegt,"
ku Dodi hafa sagt við fyrrum eigin-
konu sína, bandaríska fyrirsætu að
nafni Suzanne.
Ef svo færi að Díana og Dodi
gengju í það heilaga yrði það föður
brúðgumans algjör himnasending.
Búðareigandinn hefur jú oft átt í
útistöðum við breska kerfið.
Á meðan bresku blöðin velta
vöngum yfir ástarlifi prinsessunnar
er hún sjálf í Bosníu að reka áróður
fyrir því að notkun jarðsprengna
verði bönnuð. Þar hefur hún ekki
sagt eitt einasta orð um Dodi. Vinir
hennar segja hana þó tilbúna til að
gifta sig aftur.
„Ég á von á að fá trúlofunarhring
næst þegar ég sé hann,“ segir
Sunday Mirror að Díana hafi sagt
vinum sínum. Reuter
Fjármálaráðherra Þýskalands í blaðaviðtali:
Kohl stokki upp í rlkisstjérninni
Helmut Kohl Þýskalandskanslari
ætti að skipta um nokkra ráðherra í
stjórn sinni áður en baráttan fyrir
kosningamar á næsta ári hefst.
Þetta er álit Theos Waigels, fjár-
málaráðherra Þýskalands og dyggs
stuðningsmanns Kohls, og hann lét
það í Ijós í viðtali við þýsk blöð í
gær. Hann sagöi marga ráðherra
ekki hafa áhuga á öðru en aö halda
störf sín fram að kosningum. Ekki
er nema tæpur mánuður síðan Kohl
sagðist sjálfur ekki ætla að stokka
upp fyrir kosningarnar þar sem
engin þörf væri á því. Reuter
Óskalisti
brúðhjónanna
Gjafaþjónusta fyrir
brúðkaupið
(Q) SILFURBÚÐIN
VXy Kringlunni 8-12 • Sími 568 9066
- Þarfœröu gjöfina -
Díana prinsessa huggar fulloröna konu sem hún hitti í kirkjugarði í Sarajevo í Bosníu í gær. Díana hefur verið í
þriggja daga einkaheimsókn í Bosníu til að reka áróður fyrir banni gegn jarösprengjum. Á meðan ætlar allt að ganga
af göflunum í Bretlandi vegna nýs kærasta prinsessunnar. Símamynd Reuter
Stuttar fréttir dv
Indland klofnar
Þriðji hver Indverji telur að
landið muni klofna upp í margar
þjóðir á næstu fimm áratugum,
að því er fram kemur í skoðana-
könnun. Landið fagnar 50 ára
sjálfstæðisafmæli í vikunni.
Bardögum linnir
Bardagar í Dusjanbe, höfuð-
borg Tadsjikistans, fjöruöu út í
gær þegar vopnaður hópur hafði
náð undir sig norðurhverfi borg-
arinnar.
Dáist aö Maggie
Perúski rithöfundurinn Mario
Vargas Llosa er einn fárra úr
þeirri stétt sem
lega lýst yfir
aðdáun sinni á
Margaret
Thatcher, fyrr-
um forsætis-
ráðherra Bret-
lands, sem
fékk viöur-
nefnið járnfrú-
in. Rithöfundurinn bauð sig
fram til forseta i heimalandi
sínu árið 1990.
Bardagar færast
í aukana
Bardagar færðust í aukana á
vígstöðvunum norður af Kabúl,
höfuðborg Afganistans, í gaer-
morgun. Her Talebana sagðist
hafa unnið land.
Breskir vel settir
Breskir verkamenn bera að
jafnaði meira úr býtum en flest-
ir félagar þeirra í Evrópusam-
bandinu, þar með talið í Þýska-
landi.
Hátíð í Edinborg
Edinborgarhátíðin, stærsta
listahátíð í heimi, hófst í gær og
stendur til ágústloka.
Prodi gagnrýndur
Romano Prodi, forsætisráð-
herra Ítalíu, sætti gagnrýni
stjórnmálamanna og saksóknara
í gær eftir að
hann hafði tek-
ið upp hansk-
ann fyrir
Giulio
Andreotti,
fyrrum forsæt-
isráðherra.
Andreotti er
nú fyrir rétti, ákærður um tengsl
við mafiuna.
Dökkar horfur
Illa horfir í væntanlegum við-
ræðum um sameiningu Kýpur
eftir að leiðtogi Tyrkja á eynni
neitaði aö gefa nokkuð eftir.
Nakin í járnum
Lögreglan í Köln í Þýskalandi
kom til hjálpar pari sem ætlaði
að njóta ásta í handjámum en
gat svo ekki losað sig. Hjúin
voru kviknakin og vandræðaleg.
í biöröð eftir börnum
Mikil eftirspurn er nú í
Bandaríkjunum eftir að ættleiða
stúlkuböm frá Kína.
Hætta á sjúkdómum
Þýsk yfirvöld sögðu í gær að
hætta væri á að sjúkdómar bryt-
ust út á flóðasvæðunum við
landamærin aö Póllandi.
Kofi til Norðurlanda
Kofi Annan, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, hóf
ferðalag sitt um Norðurlönd í
Stokkhólmi í
gær. Þar er
gert ráð fyrir
að hann fái
stuðning frá
svokölluðum
Carlsson-hópi
16 landa við
umbótaáætl-
anir sínar. Hópurinn varð til að
undirlagi Ingvars Carlssonar,
fyrrum forsætisráðherra Sví-
þjóðar.
hefur opinber-