Þjóðviljinn - 17.12.1983, Blaðsíða 26

Þjóðviljinn - 17.12.1983, Blaðsíða 26
26 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 17.-18. desember 1983 Fjármálaráðherra leggur fram 2 frumvörp á alþingi Stórfelld skattalækkun hjá eignamöimum og fyrirtækjum Fjármálaráðherra lagði í gær og um breytingu á tekju- og þykkti tiilögu ráðherra að lækka fyrir alþingi frumvörp um frádrátt eignaskattslögum, stóreignar- skattaálögur á eigendur verslunar- frá skattskyldum tekjum manna mönnum til mikilla hagsbóta, auk og skrifstofuhúsnæðis. - vegna fjárfestingar í atvinnurekstri þess sem efri deild þingsins sam- „Þessi frumvörp ríkisstjórnar- S »rmi nnKYNWffi pm „BJORTU HLIÐARWAR" „Björtu hliðarnar” heitlr ný bóK eftir Gylfa Gröndal. Þetta er ævisaga Siguijónu t Jakobsdóttur, ekkju Þorsteins M. Jónssonar skólastjóra og bókaút- gefanda.----------------- Þetta er áttunda ævisaga Gylfa Gröndals, en í fyrra gaf Setberg út eftir hann „Æviminningar Kristjáns Sveinssonar augnlæknis", sem varð metsölubók. „Björtu hliðamar" er uppórvandi og lærdómsríkur lestur. Það er unun að fá að njóta frásagnargáfu og lifsgleðl þessarar merku konu sem þó háði svo oft harða lífsbar- áttu. Morgunblaðið, 30. nóv. 1983: „Gylfi Gröndal hefur sýnt það í ýmsum bókum, að honum er lagið að laða fram góða frásógn... Titlll bókarinnar er mikið réttnefhi. Svona bók er gott að lesa og dálítið mannbætandi." Jóhanna Kristiónsdóttir. Bókin er 208 blaðsíður auk ira mynda. ..A VINAFUWDI" Komin er út bókin „Á vina fundi" effcir Guðmund Daníelsson. Þetta eru bráðlifandi samtöl við sautján islendinga úr öllum lands- hlutum.------------------- Frásegjendur eru: BJÖRN GUÐ- MUNDSSON, VIGDÍS MAGNÚS- ÐÓTTIR, GISSURÆVARR JÓNSSON. JÓN ÞORKELSSON SMIÐUR, JÓN VÍDALÍN SÓLVEIGARSTÖÐUM, JÓN INGVARSSON SKIPUM, RUT í SÓLVANGI, SÉRA STEFÁN LÁRUS- SON í ODDA, MARKÚS EINARSSON FORSTJÓRIÁ LITLA HRAUNI, ANDRÉS JÓNSSON BÓNDI OG VERKAMAÐUR, KRISTÍN JÓNS- DÓTTIR FRÁ GEMLUFALLI, HAR- ALDUR JÓNSSON Í MIÐEY, ÓLAFUR JÓNSSON EYSTRA-GELDINGAR- HOLTI, KRISTMANN GUÐMUNDS- SON SKÁLD, BJÖRN GUÐMUNDS- SON SLEÐBRJÓTSSELI, ANNA MARGRÉT OG FRIÐRIK PÉTURS- SON, JÓNAS MAGNÚSSON VERK- STJÓRI OG BÓNDl í STARDAL. Morgunblaðið, 6. des., 1983: ,Á vina fundi er hollur lesfcur . .. Ég get ekki ímyndað mér að aðrar þjóðir geti státað af alþýðlegum frásögnum af því tagi sem finna má í „Á vina fundi." Jóhann Hjálmarsson. „Á vina fundi" er 202 blaðsíður, auk mynda. ... GUÐMUrv'DUR DAN/ELSSON FUNDI SAUTJÁIM SAMTÖL SETBERG Freyjugötu 14 innar ættu ekki að koma neinum á óvart, pólitískt eðli hennar er á þann veg sem við mátti búast. Álögur á eignamenn eru stórlækk- aðar á meðan almennir launþegar þurfa að bera gífurlegar kjara- skerðingar“, sagði Ragnar Arnalds m.a. við umræður um þessi mál á þingi í gær. Helgi Seljan sagði að þessi frumvörp væru lögð fram til að auðvelda eigna- og hátekju- mönnum að auka gróða sinn. Fjár- málaráðherra sæi ekki út fyrir Arn- arhólinn hvernig ástatt væri orðið hjá hinum almenna launamanni, en hann hefði gott yfirlit til sinna brjóstmylkinga eftir þessum frum- vörpum að dæma. Eiður Guðna- son sagði að ríkisstjórnin vissi greinilega ekkert hvað væri að ger- ast í þjóðfélaginu. Hún væri ríkis- stjórn fyrirtækjanna en ekki fólks- ins í landinu. í frumvarpinu um frádrátt frá skattskyldum tekjum manna vegna fjárfestingar í atvinnurekstri er ein- stakling heimilt að draga frá skatt- skyldum tekjum sínum allt að 20 þúsund krónur og hjónum 40 þús. kr. Helgi Seljan upplýsti að þetta þýddi beina skattalækkun hjá ein- staklingi uppá 8.500 kr. og hjá hjónum uppá 17.000 kr. „Á sama tíma og eignarmenn fá þennan skattafrádrátt þarf almenningur samkvæmt boði stjórnarinnar að borga 6000 krónur fyrir að leggjast inn á sjúkrahús", sagði Helgi. í frumvarpinu um breytingu á tekju- og eignarskatti býður fjár- málaráðherra að arður af hlutab- réfum verði skattfrjáls allt að 25 þús. kr. hjá einstaklingi og 50 þús kr hjá hjónum. Hlutabréf og inni- stæður á stofnfjárreikningum verði frádráttarbær allt að 250 þús. kr. hjá einstaklingi og 500 þús. hjá hjónum, og að fyrirtæki megi ráð- stafa allt að 40% af skattskyldum hagnaði sínum í svonefnda fjárfest- ingarsjóði og kemur þetta í stað ákvæða sem heimila félögum að leggja 25% af skattskyldum ágóða í varasjóð. Heimild til myndunar fjárfestingarsjóða á að ná til allra aðila sem atvinnurekstur stunda. Eyjólfur Konráð Jónsson lýsti því yfir að tilgangur þessara frum- varpa væri m.a. að gera fólki með miðlungstekjur og vonandi einnig þeim með lágar tekjur þegar fram í sækir kleift að gerast þátttakendur í atvinnulífinu. Það væri ekki verið að hygla hátekjumönnum, heldur stefnt að því sem kallað hefði verið „auðstjórn almennings", sem væri eina stjórnarformið sem gæti gengið hér á landi. -Ig- Harðar deilur um fiskveiðistefnu- frumvarp sjávarútvegsráðherra Varað við ofur- valdi ráðherra Miklar umræður hafa staðið yfir í neðri deild alþingis síðustu daga um frumvarp sjávarútvegsráð- herra um fiskveiðistefnu á næsta ári, en í frumvarpinu fer ráðherra fram á einskorðað vald í sínar hendur varðandi alla stefnumótun og stjórn fiskveiða hér við land. Fjölmargir þingmenn jafnt úr stjórn sem stjórnarandstöðu hafa lýst andstöðu sinni við frumvarpið og varað við þeim miklu völdum sem það mun færa sjávarútvegs- ráðherra í hendur, auk þess sem fjölmörg hagsmunasamtök í sjá- varútvegi; félag botnvörpuskipa- eigenda, stjórn BÚR og sambands- stjórn ASÍ hafa samþykkt ályktan- ir þar sem varað er við því ein- skorðaða valdi til ráðherra sem frumvarpið boðar. Garðar Sigurðsson þingmaður Alþýðubandalagsins hefur lýst yfir stuðningi við frumvarp sjávarút- vegsráðherra og stendur að meiri- hlutaáliti sjávarútvegsnefndar neðri deildar sem mælir með sam- þykkt frumvarpsins. Halldór Blöndal skrifar undir meirihlutaá- litið með fyrirvara og Guðmundur H. Garðarsson hefur lýst yfir and- stöðu við frumvarpið. Svavar Gestsson lýsti yfir harðri andstöðu við frumvarpið við 2. um- ræðu þess í neðri deild í gær sem og Ólafur R. Grímsson. Steingrímur J. Sigfússon, Geir Gunnarsson og Hjörleifur Guttormsson hafa lagt fram breytingartillögu við frum- varpið þar sem lagt er til að Alþingi hafi með að gera mótun fiskveiði- stefnu sem fyrr, en afsali valdi sínu ekki í hendur sjávarútvegsráð- herra, og svipuð breytingartillaga hefur verið lögð fram af Kjartani Jóhannssyni, Guðmundi Ein- arssyni og Kristínu Halldórsdóttur. -Ig- Skiptar skoðanir í þingflokkum í gær sló í brýnu milli Ólafs Ragnars Grímssonar og Garðars Sigurðssonar við umræður um frumvarp sjávarútvegsráðherra um fiskveiðistefnu, fyrir næsta ár. Garðar Sigurðsson hefur einn þingmanna Alþýðubandalagsins lýst fyrir stuðningi við frumvarpið um allt vald í hendur ráðherra og stendur hann að meirihlutaáliti sjávarútvegsnefndar neðri deildar ásamt þingmönnum Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks. í mörgum þingflokkanna eru mjög skiptar skoðanir um fisk- veiðistefnufrumvarpið og hafa margir Sjálfstæðisþingmenn t.d. varað við því valdi, sem sjávarút- vegsráðherra óskar eftir. Hefur verið boðað til sérstaks þingflokksfundar hjá Sjálfstæðis- flokki nú árla í dag til að ræða þetta frumvarp og þær breytingartillögur sem þrír þingmenn Alþýðubanda- lagsins hafa lagt fram við frum- varpið þar sem m.a. er lagt til að Alþingi fjalli um mótun fiskveiði- stefnu og ákveði þá stefnu með þingsályktun. -Ig-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.