Þjóðviljinn - 17.12.1983, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 17.12.1983, Blaðsíða 9
r t-H >S GEFUM GÓDAR BREKAR ^ SAf/ífTírjt . ^ ftáð M ^uw óndttW tAVtWj^Att ®3|g^- fe, • ^sJöXíi F^iShiS? Lögreglumord ».'«vv*b .%H-.V' flis«s«.!KWJU!V<W?W - A0 Helgin 17.-18. desember 1983 ÞJOÐVILJINN - SÍÐA 9 Ólafur Jóhann Sigurösson Drekar og smáfuglar ( þessari miklu skáldsögu leiöir höfundur til lykta sagnabálk sinn af Páli Jónssyni blaöamanni sem hófst meö Gangvirkinu (1955) og hélt áfram meö Seiði og hélogum (1977). Einn örlagaríkasti tími í sögu þjóðarinnar er hér magnaður fram í andstæðum fortíðar og nútíðar, þjóðhollustu og svika. Einar Kárason Þar sem Djöflaeyjan rís Sögusviðið er „Gamla húsið" í braggahverfi í Reykjavík um og eftir 1950, og aðal söguhetjurnar eru strákarnir: Fyrst útsmogin hrekkjusvín, ósigrandi í fótbolta, síðan svalir og brilljantíngreiddirgæjar í támjóum skóm sem eiga Vetrargarðinn. Bráðlifandi frásögn af bragga- og blokkafólki sem þegar hefur fengið geysigóðar viðtökur. Þetta er önnur skáddsaga Einars. Sú fyrri hét ÞeMa eru asnar, Guðjén. Mállttog menning Heinrich Böll og sagði ekki eitt einasta orð Fyrsta skáldsaga Böll sem út kemur á íslensku. Viðfangsefnið er, líkt og í mörgum öðrum bókum skáldsins, mannlíf í örbirgð og uppgjöf í Þýskalandi á árunum eftir síðari heimsstyrjöldina. En í gegnum fátækt og niðurlægingu brýst mannleg reisn og þrautseigja og þeir sem minna mega sín eiga aifa samúð höfundar. Böðvar Guðmundsson þýddi. Sigurður A. Magnússon Jakobsglíman Þriðja bindi uppvaxtar- sögunnar sem hófst með metsölubókinni Undir kalstjörnu. Jakobsglíman lýsir þremur átakaárum í lífi drengsins, Jakobs, tilraunum hans til að komast að heiman, mennta sig og ná fótfestu í KFUM. Togstreitu og viðkvæmu skeiði í Iffi Reykjavíkur- unglings í umróti stríðsáranna er hér lýst af fágætri stílsnilld. Einar Olgeirsson Jón Guðnason Kraftaverk einnar kynslóðar Þetta er annað bindi endurminninga Einars Olgeirssonar sem Jón Guðnason skráir. Hér er sjónum m.a. beint að verkalýðsbaráttunni og vaknandi vitund verkafólks. Umbrotatím- um í íslensku þjóðlffi og atvinnulífi er hér lýst frá sjónarhóli manns sem stóð f fylkingarbrjósti og akildi samtíð sfna dýpri skifningj en flestir aðrir út ffá þelfri hugsjón sem hann helgaði Iff sitt. William Heinesen Ráð við illum öndum Sjöunda bókin í ritsafni Heinesen í snilldarþýð- ingu Þorgeirs Þorgeirs- sonar. í bókinni er stutt skáldsaga, Ijóðrænar endurminningar og smásögur. Sögusviðið er Færeyjar, nema í síðustu sögunni, „Flugurn", sem gerist í Suður-Frakklandi. Þorgeir Þorgeirsson endurskapar skáld- skaparheim Heinesen, líkt og í öðrum bókum ritsafnsins, á svo einstakan hátt að engu er líkara en sögurnar séu frumsamdar á íslensku. P.C. Jersild Eftir flóðið Sagan segir frá ungum manni sem berst fyrir lífi sínu í óbyggilegum heimi og lýsir fjörbrotum deyjandi mannkyns. Þetta er ógleymanlegt listaverk um langtfma afleiðingar kjarnorku- styrjaldar og tvfmæla- laust ein brýnasta skátdsaga síðari ára í oktear heimshluta. Mjérður P. Njarðvík þýddi. Hans-Jorgen Nielsen Fótbolta- engillinn Frands og Franke voru vinir í æsku og léku fótbolta saman fram á unglingsár. Þá skildust leiðir: Frands valdi menntabrautina en Franke varð frægur atvinnumaður í knattspyrnu. Mörgum árum síðar hittust þeir aftur með voveiflegum afleiðingum . . . Spennandi bók fyrir karlmenn, sem konur ættu líka að lesa. Kristján Jóh. Jónsson þýddi. Sigurður A. Magnússon Við elda Indlands 2. útgáfa. Hér segir Sigurður frá rúmlega þriggja mánaða ferð sinni um Indland þar sem hann kynnti sér land og þjóð, siði, trúarbrögð, menningu og daglegt líf fólks. Hann bregður upp Ijóslifandi myndum af því sem hann upplifir og leitast við að skilja og greina það sem mætir honum í fjarlægu og framandi landi. Fjöldi Ijósmynda prýðir þessa nýju útgáfu. Ólafur Haukur Símonarson Vík milli vina Þessi nýja skáldsaga Ólafs Hauks segir frá hópi fólks sem haldið hefur saman síðan á árunum blómlegu í kring- um 1968. Hvað er orðið um stóru hugsjónirnar og áætlanirnar? Hvert hefur einstaklingana borið í leit að Iffs- hamingju? Jakobína Sigurðardóttir Kvæði Hér er á ferðinni ný útgáfa Ijóðabókar Jakobínu sem kom fyrst út árið 1960. Sú bók hefur notið mikilla vinsælda meðal baráttuglaðra karla og kvenna og er fengurinn að þessari nýju útgáfu þyí meiri að aukið er í hana Ijóðum sem Jakobína hefur ort síðastliðna tvo áratugi. Meðal þeirra eru bæði baráttukvæði og mörg persónuleg Ijóð. Maj Sjöwall og Per Wahlöö Lögreglumorð Níunda bókin í hinum vinsæla flokki Skáld- saga um glæp. í þessari næstsíðustu bók flokksins kemst friðsælt sveitaþorp í fréttirnar þegar kona finnst myrt. Almenningur finnur fljótt sökudólg, en þá er framinn nýr glæpur - lögregfumorð. Ólafur Jónsson þýddi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.