Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1905, Side 61

Eimreiðin - 01.01.1905, Side 61
6i sést báturinn með gufuvél, eltivél og lyftivél. Uppi á bakkanum — til hægri á myndinni — sést safnkassinn og undir rönd hans steypivagn á sporvegi. Vélar þessar eru einkar hentugar, þar sem vatninu verður ekki veitt frá, og ef mjög þykt mólag liggur undir vatnsfleti, á vel við að hafa móstunguvélar í sambandi við þær. Á einum stað, sem jeg sá svona lagaða vél við vinnu, var mólagið 3—4 m. á þykt. Af því voru liðlega 2 m. fyrir ofan vatnsflöt. Neðri partur mólagsins var tekinn líka, nema smá-vatnsbakkar, sem skilja varð eftir. Fyrir vél, sem hefur mótór með tveggja hesta afli, þarf bát- urinn að vera 3 m. á breidd og 3,6 m. á lengd, og hlutfallslega stærri fyrir stærri vélar. Vélin eltir að jafnaði 3 m3. af mó á klukkutímanum fyrir hvert hestafl sem mótórinn hefur. Við tveggja hesta vél er því nóg að hafa einn mann í mógröfinni, við fjög- urra hesta vél tvo o. s. frv. Flutningurinn frá vélinni er, eins og áður var sagt, líkur því er gerist við föstu vélarnar. Við tveggja hesta vélar yrði nokkuð kostnaðarsamt að leggja sporvegi og brúka steypivagna, enda mætti vel komast af með 1—2 kerrur eins og þær, sem nefndar voru hér að framan á bls. 57. í Sparkær kostaði mór, sem unninn var með fljótandi eltivél, aðeins 2 krónur smálestin þur á þurkvelli, og er það talsvert minna en gjörist við aðrar vélar. Mér þykir ekki ólíklegt, að þær yrðu notaðar á stöku stað heima, ef voteltan reynist yfirhöfuð hentug og viðeigandi fyrir loftslag vort og aðrar ástæður. (Framhald í næsta hefti). Kanpmannahöfn, í janúar 1905. ÁSGEIR TORFASON. Þrjú kvæði. Eftir GUÐMUND FRIÐJÓNSSON. I. NIELS R. FINSEN. Á ljóskonungsins dánardag er dapur maður hver, sem hefir reynt að helga sér þann heimsmenningar brag, er gáta ráðin gefur þeim, sem girnist meira ljós og litarfegri lilju og rós en lifa í vorum heim.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.