Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1905, Page 60

Eimreiðin - 01.01.1905, Page 60
Séð frá hlið. 15. mynd. Séð ofan frá. 60 víöa heima, þar sem þarf að taka upp mó að nokkru ráði og mórinn er ekki svo góður, að hann sé hentugur til móskurðar. Auk þessara áður nefndu móeltivéla, er ein tegund enn, sem er talsvert frábrugðin, nefni- lega fljótandi móeltivélar. Pær eru uppfundnaraíRitmester Rahbek, og hafa reynst svo vel, að nú eru 13 slíkar vélar hér í Danmörku. Munurinn á þeim og föstu vélunum er, að elti- vélin og aflvélin — gufuvél eða öllu heldur steinolíumótór — | eru á grunnum, flatbotnuðum i bát (pramma) er flýtur í mó- gröfinni. Með þessari tilhögun sparast flutningurinn á mónum til eltivélarinnar, mónum er kastað beint í eltivélina. Á 15. mynd sést aðalútbúnaður- inn. Á hliðarmyndinni sést að lyftivél, af sömu gerð og tíðk- ast við föstu vélarnar, lyftir mó- leðjunni frá eltivélinni upp í safnkassa á bakkanum. Safn- kassinn er tæmdurí steypivagna á sama hátt og lýst er við föstu vélarnar. Safnkassinn verður auðvitað að vera hreyfanlegur, enda sést á myndinni að hann er á hjólum. Aflvélin er ekki á myndinni, en henni er ætlað rúm þeim megin á bátnum, sem frá bakkanum snýr; vegur hún þá á móti lyftivélinni. Flutn- ingur frá vélinni og mótun mós- ins er eins og við föstu vélarnar. Á 15. mynd sést slík vél við vinnu. Til vinstri á myndinni

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.