Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1905, Side 55

Eimreiðin - 01.01.1905, Side 55
55 verði þar sem sú fremri var áður. fversporinu er ýtt fast að móta- grindunum, þær fyltar á ný og svo koll af kolli. Pví lengur sem mórinn liggur í mótinu, því betra er það; venjulega eru mótagrind- urnar teknar burt eftir io—15 mínútur. Til að fylla eina röð af mótagrindum — 166 grindur með 9130 móköglum — þarf hér um bil 75 vagnhlöss. í vagnlest- inni eru því annaðhvort 13, 15 eða 19 vagnar, eftir vegalengd- »inni, og þarf þá 6, 5 eða 4 lestir í hverja röð. Til að draga vagn- lestina þarf 1 hest fyrir hverja 7—8 vagna. Við móleðju-safn- kassann liggur sporið undir fremri röndinni (9. mynd) og á botni hans eru 10 hlemmar eða lokur, er skotið er frá með handfangi, svo leðjan rennur út um opin og fyllir vagnana, sem undir þeim standa, á örskömmum tíma. Pegar vagnarnir í lestinni eru fleiri en 10, eru 10 fremstu vagnarnir fyltir fyrst, lestinni svo ekið fram eftir þörfum og þeir aftari fyltir. I'aö tekur aðeins i'/a mínútu að fylla alla vagnana. Pegar þurkvöll.urinn er alþakinn mó öðrumegin við aðalsporið, eru mótagrindurnar og lausasporið flutt yfir á hinn hlutann og ganga til þess 2—3 tímar. Dagsverkið er með 11 tíma vinnu 50—65, mest 75 smáiestir af þurrum mó. Mannaflinn er: 2 menn taka rofið af og passa sporin í mógröf- inni, 8 menn grafa upp móinn og hlaða honum á vagnana, I full- orðinn maður og 1 drengur flytja móinn að eltivélinni og 2 menn eru við eltivélina og 1 passar gufuvélina. 1 fullorðinn maður og 2 drengir aka móleðjunni út, 3 jafna henni f mótagrindurnar og 2 flytja lausasporið og hjálpa til við flutning mótagrindanna. Alls 20 menn fullorðnir og 3 drengir. PURKUNIN. Til að þurka móinn eru hafðar konur og börn. Er þar tvent er gjöra þarf, að reisa móinn og hreykja honum. Mórinn er reistur strax þegar köglarnir eru svo þurrir að þeir halda sér. Eftir veðr- inu eru þeir það eftir 4—20 daga. Æft barn reisir 6000 mókögla á klukkutímanum. Pegar mórinn er orðinn svo þur, að hann þolir meðferð, er honum hreykt í 1,7 m. hrauka og í þeim situr hann þar til hann er fullþur. Stærð hraukanna er valin svo, að 8 hraukar eru vagnhlass eða 2500 móköglar. Æfð kona hreykir 2500 móköglum á klukkutímanum. Pegar bezt viðrar, þornar mór-

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.