Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1905, Síða 38

Eimreiðin - 01.01.1905, Síða 38
38 Til dæmis að taka fanst seint á öldinni sem leið í mýri á Jótlandi þvínær óskaddað kvennmannslík, og komust fornfræðingar að þeirri niðurstöðu, að það væri lík Gunnhildar kongamóður. Eftir því sem sögur segja var henni drekt í keldu. Á svipaðan hátt og mórinn hafa kolalögin myndast. Tau eru bara miklu eldri. Af kolunum ér surtarbrandur og brúnkol yngst, svo steinkolin og og elzt eru antracít- eða gljákolin. Hér á eftir fer tafla yfir samsetning lífrænuefnanna í nokkrum eldsneytisteg- undum. Á henni sést greinilega, í hvaða átt efnabreytingarnar fara. Tré Mór Brúnkol Steinkol Gljákol Kolefni 5°°/o 6o°/o 70°/o 82°/o 94°/o Vatnsefni 6°/o 6°/o 5°/° 5°/° 3 °/o Súrefni 43°/° 32°/o 24°/o 12°/o 3°/o Köfnunarefni i°/o 2°/o i°/o l°/o ögn Tölur þéssar eru téknar sem meðaltal af mjög mörgum rann- sóknum og geta breyzt mikið eftir atvikum. Til dæmis að taka rannsakaði ég í fyrra tvær danskar mótegundir, og var í annarri 57,ee °/o af kolefni og 5,51 °/o vatnsefni, en í hinni 63,57 °/o kolefni og 6,82 °/o vatnsefni. Pegar talað er um hitagildi (Brændeværdi) eldsneytis, er átt við, hve margar hitaeiningar (kalóríur) ein þyngdareining af því framleiði við fullkominn bruna. Hitaeining er sá hiti, er þarf til að hita eina þyngdareiningu af vatni um eitt hitastig á Celsíus hitamæli. Pýðingarmesta efnið í venjulegu eldsneyti er kolefnið, og hita- gildið fer aðallega eftir því, hve mikið er af kolefni í eldsneytinu. Tví kolefnismeira sem eldsneytið er, því hitameira er það. Að þessu sé þannig varið, sést greinilega af töflu þeirri, er hér fer á eftir. Bar er tilfærð samsetning og hitagildi lífrænuefnanna í nokkr- um eldsneytistegundum, sem ég rannsakaði í fyrravetur. Kolefni Vatnsefni Hitagildi Tré 50,34 °/o 6,08 °/o 4850 hitaein. Mór 57,66 °/o 5,51 °/0 5830 — sömul. 63,57 °/o 6,32 °/o 6610 — Steinkol 82,80 °/o 5,13 °/0 8210 — Auk kolefnisins hefur vatnsefnið í eldsneytinu mikla þýðingu, það er að segja sá hluti þess, sem ekki er samruna við súrefni.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.