Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1905, Qupperneq 35

Eimreiðin - 01.01.1905, Qupperneq 35
35 Aður en ég sný mér að aðalefni þessarar greinar, nefnilega að lýsa helztu móvinnuaðferðum, er nú tíðkast, og notkun mós á ýmsum stöðum, skal ég fara nokkrum orðum um mómýrar og mó yfirleitt. MÓMÝRAR. I Danmörku og víða annarsstaðar er mýrum skift í tvo aðal- flokka: hámýrar og lágmýrar. Hver af þessum flokkum er svo greindur í marga undirflokka, en sú skifting er nokkuð á reiki, svo ég sleppi henni hér. Oft er hámýra- og lágmýramyndunin blönduð saman í sömu mýrinni, svo að vart er hægt að skera úr, hvort hún eigi fremur að teljast til hámýra eða lágmýra. Hámýrarnar liggja ætíð svo hátt, að jarðlögin undir þeim eru hærri en yfirborð nálægra lækja og vatna. Aðaljurtagróður- inn er ýmsar mosategundir og lyng. Hið þykka mosalag hindrar mjög uppgufun úr mýrinni og' mosaleifarnar, sem hrúgast upp ár frá ári, eru lausar í sér og fullar af smáholum. Mýrin helzt því full af vatni og veldur því hárpípuafl jarðvegsins. Hvað ytra útlit snertir, er það einkennilegt fyrir hámýrarnar, að þær éru allajafna hæstar í miðjunni. Kemur það af því, að við jaðrana veitir vatni betur frá, og mýrin verður hálfþur. Lífsskilyrðin verða því lakari fyrir mosategundirnar á þeim stöðum, svo minni jurtaleifar safnast þar fyrir en lengra inn í mýrinni, þar sem hárpípuafl jarðvegsins neytir sín betur og mýrin því er rakari. Ennfremur rotna og eyðast jurtaleifarnar seinna, þar sem mýrin er full af vatni. Lágmýrarnar eru svo láglendar, að jarðlögin undir þeim eru lægri en ár þær og lækir, sem þær myndast við. Venjulega eru þær svo láglendar, að vatn flóir yfir þær í vatnavöxtum. Helzti jurtagróðurinn er ýmsar tegundir hálfgrasa og nokkrar gras- tegundir og oft kjarr. í Danmörku eru báðar myndanir algengar, en oft eru þær ekki glögt greindar hver frá annarri. í sömu mýrinni er oft bæði hámýra og lágmýra myndun. Er þá títt, að neðstu lögin eru lág- mýri, en efri lögin hámýri. Kemur það af því, að þegar mólagið í hinni upphaflegu lágmýri var orðið svo þykt, að vötn hættu að flóa yfir mýrina, urðu lífsskilyrðin lakari fyrir hálfgrös og aðrar lágmýrajurtir. Pær dóu því smámsaman út, en í stað þeirra komu mosategundirnar ein eftir aðra og mýrin varð á endanum að hámýri. l’annig eru t. d, flestar mýrar við Sparkær í Danmörku myndaðar. o ♦ Ó
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.