Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1905, Síða 34

Eimreiðin - 01.01.1905, Síða 34
34 ýmsar móvélar. Árið 1901—02 nam það fé, sem Svíar veittu til móiðnaðar, því nær 100,000 kr. og sama ár veittu þeir ix/a miljón króna að láni gegn lágum vöxtum, til að stofna móverksmiðjur. Móiðnaðarfélagið danska, sem ekki er nema nokkurra ára gamalt, fékk þetta ár 4000 kr. styrk úr rtkissjóði og hefur fengið loforð fyrir 8000 kr. næsta ár. Á Hollandi hefur stjórnin og sveitafélögin í sameiningu kostað mörgum tugum miljóna til að ræsa mýrar og á þann hátt létta bæði móvinnuna og flutning mósins. Líkt þessu hefur verið farið að í ýmsum öðrum löndum. Vér íslendingar erum eftirbátar annarra þjóða í móiðnaði, líkt og í öðrum verklegum efnum. Petta er þeim mun sorglegra, sem vér hvorki höfum skóga né kol svo neinu nemi. Auk þess er svo afar erfitt að ná í útlent eldsneyti upp til sveita, að þar verða menn að nota það eldsneyti, sem fyrir hendi er, en það hefur víða hvar verið áburðurinn — skán og klíningur. Pessi áburðar- brensla hefur verið og er ennþá til ómetanlegs tjóns fyrir land- búnað vorn, og er auk þess í augum annarra þjóða vottur um slíkt mentunarleysi og ónytjungshátt, að varla væri öðrum en skrælingjum ætlað. Á seinni árum hafa kröfur þjóðarinnar um rúmbetri, bjartari og loftbetri húsakynni aukist að miklum mun. Timburhúsunum fjölgar ár frá ári. Pessi breyting á byggingarlagi hlýtur að hafa í för með sér stórum aukna eldsneytiseyðslu, því þótt margt megi segja torfbæjunum tii foráttu, þá eru þeir samt hlýir. Krafan um ódýrt og gott eldsneyti sverfur því sífelt fastar og fastar að, og liggur við að segja megi, að velferð þjóðarinnar bæði í heilsulegu og hagsmunalegu tilliti sé í veði, ef ekki er að gjört. Svo vill vel til, að viða um landið, og það sjálfsagt miklu víðar en menn vita, er allgóður mór, sem með nokkurri framtaks- semi og hagsýni gæti verið hið ákjósanlegasta eldsneyti, meira að segja miklu handhægra og þægilegra en hin marglofuðu steinkol. Heima virðist nú vera að vakna áhugi á þessu velferðarmáli, og er það mest og bezt að þakka Guðmundi héraðslækni Björns- syni, sem í ritgjörðum sínum hefur brýnt kröftuglega fyrir þjóð- inni nytsemi mósins. Búnaðarfélag ísiands hefur einnig tekið málið að sér; gengist fyrir rannsóknum á mó, og veitt höfundi þessarar greinar ferðastyrk til að kynna sér móiðnað og notkun mós hér í Danmörku.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.