Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1902, Side 72

Eimreiðin - 01.09.1902, Side 72
232 Ef bregður hún hörðum höndum þá hýrnar á arni glóð, og höllin dunar af hergný og hamrömum guðamóð. Á hjarni til húss er gengið á hvítu sjást blóðug spor, þar marrar í harðri heiðni og hlunkar ið grimmasta þor. Par ýrir úr drífunni dreyri, og djúpunum rísa frá þær kempur, sem gátu kappa, og konur, sem ólu þá. Par vörðust þeir Vanir og Æsir og vildu’ ei ganga úr kór; hver svanni var Sjöfn eða Freyja, hver sjafni var Freyr eða Pór. Par skiftist á högg og hending og hlátur þraut og neyð, þar hata menn, þegar þeir hata, og halda trygðir að deyð. Far greru þær gömlu frægðir, sem geymt hefir norrænt kyn: að fella með rögg sinn fjandmann, og faðma með trygð sinn vin. Pví komum, oss kallar saga, og kveikjum inn forna þrótt þar hverinn hvæsir um daga og Hekla logar um nótt! Matth. Jochumsson þýddi.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.