Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1902, Blaðsíða 40

Eimreiðin - 01.09.1902, Blaðsíða 40
'200 sem gerðar eru til smjörsins sem verzlunarvöru í stærri stíl, eða til út- flutnings, og leiðir ljós rök að því, hve vel vér að mörgu leyti stönd- um að vígi með að framleiða gott smjör, og hver séu aðalskilyrðin fyrir því, að íslenzkt smjör geti komist í viðunanlegt verð á heims- markaðinum. Hann gerir og grein fyrir því, hvernig heimsmarkaðin- um er háttað, að því er smjörið snertir, og bendir á líklegustu aðferð- ina til, að íslenzkt smjör geti átt þar athvarf; hann nefnir og hinar helztu tilraunir, sem gerðar hafa verið á sfðustu árum með sölu á ís- lenzku smjöri erlendis. Að lokum kemur höf. með nokkrar gagnlegar athugasemdir um útbúnað og geymslu á smjöri, sem á að senda til útlanda. 3. »Útrýming fjárkláðans f Noregi«, eftir Ole Myklestad, með eftirmála eftir amtmann Pál Briem. f’etta er mjög skilmerki- leg og ljós skýrsla um útrýming fjárkláðans í Noregi, og sést þar greinilega, að kláðanum verður ekki útrýmt nema með töluverðum kostnaði og góðum vilja allra hlutaðeigenda. Af skýrslunni sést, að út- rýmingin í Noregi hefir staðið yfir í 30 ár, því fyrstu 10 árin tel ég ekki; þau vóru að eins dýrkeyptur reynslutími, sem vér getum verið alveg lausir við. Á ritgerðinni er mjög mikið að græða, og sérstak- lega ættu þeir að lesa hana með athygli, sem álíta fjárkláðann ólækn- andi, eða stafa af leyndardómsfullum orsökum, sem ekki verði ráðið við. Aðalatriðin viðvíkjandi útrýming fjárkláðans verða í fám orðum: 1. það er hægt að útrýma honum með lækningum. 2. Útrýmingin verður að (vera undir umsjón þess opinbera, og vera framkvæmd af æfðum mönnum, sem eru starfinu vaxnir. 3. Fjáreigendurnir verða að skilja nauðsyn útrýmingarinnar og styðja hana af fremsta megni. 4. Innkaup baðlyfsins verða að vera undir umsjón þess opinbera, svo vissa sé fyrir, að það sé nægilega sterkt og ósvikið. 4. »Um skóga«, eftir Einar Helgason. Þessi ritgerð er aðeins örfáar blaðsíður, þar sem höf. lýsir skógarleifunum, sem eftir eru íj Árnes- sýslu, og Hallormstaðaskógi, og gefur nokkrar bendingar, hvernig helzt ætti að forðast eyðing þeirra. Það er annars skaði, að ekki skuli vera til í einni heild stutt yfirlit yfir þær litlu skógarleifar, sem enn eru eftir í landinu; það gæfi miklu gleggri hugmynd um ástand þeirra, en að þurfa að tína það saman hér og þar. 5. »Ferð um Norðurland«, eftir Sigurb Sigurbsson. Höf. segir ferðasögu sína frá Reykjavík norður í Eyjafjörð sumarið 1900. Aðal- tilgangur ferðarinnar var, að kynnast jarðabótum í þeim héruðum á Norðurlandi, sem leið hans lá um, og jafnframt at líta eftir, hvar til- tækilegast væri að gera jarðabætur í stærri stíl. Miklar jarðabætur getur höf. um hjá mjög mörgum, en hjá hverjum þær séu mestar eða beztar, er vandséð. Af jarðabótafyrirtækjum í stærri stíl, sem hann álítur framkvæmanlegar, er helzt að geta framræslu Vatnsflóðsins í Vatnsdal, sem muni kosta 3—10,000 kr.; en landið, sem við það muni koma upp og verða að engi eftir 5—10 ár, telur hann 200—- 250 engjadagsláttur. Höf. hefði getað verið nokkru fáorðari sum- staðar, einkum um viðtökurnar á bæjunum, án þess efni ritgerðarinnar hefði beðið nokkurn halla af. 6. sHúsagjörð úr innlendum tiglsteini«, eftir Björn Kristjánsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.