Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1902, Qupperneq 48

Eimreiðin - 01.09.1902, Qupperneq 48
2o8 Fáir kappar Forna mættu á fundi þenna dag; heyja sinna gildir gættu garpar sér í hag. Doktor Forna féllust hendur fyrir sólar-brá; hann varð þá að steini’ og stendur stór við Kötlugjá. En vér verðum að láta hér staðar numið með tilvitnanir og vísa í rímurnar sjálfar, og munu menn þá skjótt finna margt, sem ekki er minna bragð að en því, sem hér hefir verið tilfært. Er ekki laust við, að þær séu sumstaðar nokkuð nærgöngular við einstök nöfn og per- sónur, þó það sé alt græskulaust gaman og gert til að vekja hlátur. En af þess konar vísum er hér ekkert tilfært. Rímurnar enda svo: Allir mæna’ á Albertí, Ás hins nýja siðar; ætla’ að renni’ upp öldin ný, öldin ljóss og friðar. Allir höndum taka tveim tfð, er stríð er þrotið; en sumum hætta þrætum þeim þykir súrt í brotið. Kom þú svo með Fróða-frið, fögur tímans stjarna; skín þú broshýr vöggu við vorra ungu barna. Sé ég þú í skýjum skín, skærust undir daginn. — f>á er harpan þögnuð mín, þakkið þið, stúlkur, braginn. Rímurnar kosta ekki nema 85 au. óinnbundnar, en 1 kr. bundnar, og munu menn trauðla geta aflað sér betri skemtunar, en þær hafa að bjóða, fyrir jafnlítið verð. V. G. ALDAMÓT XI. Winnipeg 1902. Þessi árg. Aldamóta, sem er fyrir árið 1901, byrjar með »Aldaróð«, kvæði eftir síra Valdimar Briem, þar sem hann minnist hinna helstu framfara 19. aldarinnar bæði í hinum mentaða heimi yfirleitt, en þó sérstaklega að því er ísland snertir. Kvæðið er mjög snoturt og vel kveðið, en vantár þær eld- ingar, er slái niður í brjóst manna og gagntaki og hrífi hugann. Þá kemur fyrirlestur eftir síra Jón Bjarnason'. ♦f’rándur í Götu«, sem byijar með lýsing á Færeyjum og útdrætti úr Færeyingasögu, en ein af höfuð- persónunum í henni var, eins og kunnugt er, Þrándur gamli, blendinn og slægvitur karl, sem fanst hverjum eiga að vera heimilt að hafa sína »kreddu« fyrir sig. En þetta er aðeins texti, sem höf. hefir valið sér til að leggja út af. Annars er aðalritgerðin um þá sundrungamáttúru og sérkreddutilhneiging, sem komi svo hraparlega fram í öllu þjóðlífi íslendinga og verði þar »Þrándur í Götu« fyrir sönnum framförum cg þjóðþrifum. f’etta komi fram í bókmentunum, stjórnmálum, kirkjumál- um o. fl. og verði hvervetna til hins mesta hnekkis. Meðal annars fær blaðið vf’jóðólfur* þar svo látandi vitnisburð: xÞað er á undan öllu öðru og öllum öðrum Þrándur í Götu, aðalþröskuldurinn á vegi ís- lenzkra þjóðlífsframfara..........Hann er það, sem beitir allri orku til þess, að deyða sérhverja ræktartilfinning hjá oss til íslands. En hann er það og, sem að öðru leyti hefir ritað á stjórnmálamerki sitt þá ömur- legustu trúarjátning, er til getur verið, — helbera neitan allra framfaratil- rauna landi og lýð til viðreisnar, — það að vilja ekkert og gjöra ekk-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.