Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1902, Síða 39

Eimreiðin - 01.09.1902, Síða 39
i99 kemur inn fyrir brekkubunguna undan miðjum tindinum, sést þriðji aðalhluti bæjarins. Sá heitir BÚÐAREYRI. Bar er bygging mest, næst Öldunni, og bryggjur stórar. Par ríkti Ottó Wathne, og þar er íbúðarhús hans uppi í hallanum, prýðisfallegt hús með grasfleti girtum um kring og ber hátt. Búðará fellur um eyrina. Afhenni er nafnið. Baðan er strjálbygt inn með höfninni en þó nokkurn veginn samanhangandi bygð inn að Öldunni. Bar inst við Ölduna fellur Fjarðará innan úr dalnum og út á leiruna og er trébrú yfir. Hún er æðistór og sést langt að. Inn af firðinum er dalur nál. ú2 mfla að lengd. I honum er einn bær, Fjarðarsel. Fjarðará rennur í bugðum eftir dalnum á eyrum eða milli grasbakka. [Framhald síðar]. Þorsteinn Erlíngsson. Ritsj á. BÚNAÐARRIT. Utgefandi: Búnabarfélag íslands. 2. (15.) ár. Rvík 1901. Efnið í þessum árgangi er, sem hér segir: 1. »Sigurður Pétursson og byggingarannsóknirnar«, eftir Þórhall Bjarnarson. Höf. minnist stuttlega á fyrstu hreyfingar ( húsahótamál- inu, og hve dýrt vér höfum orðið að kaupa þá litlu reynslu, sem enn er fengin í þvl máli; því næst getur hann tildraganna til þess, að Sig. heitinn Pétursson var ráðinn til að taka að sér byggingarannsóknirnar, og að lokum minnist hann í fám orðum æfiatriða hans, sérstaklega að því er snertir byggingarannsóknirnar þennan stutta tíma, sem honum entist aldur til að vinna að þeim. Þessi stutti kafli úr æfisögu Sig. heitins sýnir ljóslega, hveiju ósérplægni og einlægur vilji geta komið til leiðar, og hefir ekkert meiri vekjandi áhrif á hina uppvaxandi kynslóð, en þannig löguð dæmi úr daglega lífinu. Þar að auki skýrir ritgerðin glögg- lega frá, hvemig því fé, sem lagt var til rannsóknanna, hefir verið varið. Ritgerðin hefir líka þann mikla kost, að hún er stutt og gagnorð. 2. »Um sölu á smjöri til útlanda«, eftir Sigurl5 Sigurbsson. Pað er allgagnorð ritgerð um skilyrðin fyrir ábatavænlegri sölu á smjöri til útlanda. Höf. sýnir í fám orðum, hvernig ástandinu með smjör- gerð og smjörsölu er varið í landinu nú sem stendur, hve smjörgerð- inni er ábótavant og lítið útlit fyrir, að góður markaður fáist innanlands, fyrst um sinn að minsta kosti. Hann tekur fram hinar helztu kröfur,

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.