Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1902, Side 26

Eimreiðin - 01.09.1902, Side 26
unni, sem staðhæfir, aö í oss finnist ekkert gott, og að vér séum af náttúrunni einungis illir og til ills lagaðir; að yfirnáttúrleg frelsis- hjálp fyrir trú gjöri oss til góðs hæfa, og ekkert annað. sPetta er að baktala og rógbera manneðlið,« sagði hann, »ég þekki það af eiginni reynslu og eftirtekt.« Honum sárnaði (sagði hann) mest að sjá, að sjálf trúarbrögðin skyldu þannig byggja aðalkenning sína á misskiluingi á manneðlinu, á rógi og lasti um það. Hann sá og glögt, hversu þessi háskakenning hefir valdið miklu volæði hjá þjóðunum, með því að niðurníða og vantreysta kröftum manns- ins, en innræta skinhelgi, hræsni og ódrengskap í öllum stéttum. I ritum sínum sannar Kj. meistaralega þessa trúargrein vorra daga, að matineðlið geymi í sér fremur góðan og göfgan vísi, en hið gagnstæða, og mætti tilfæra margar málsnjallar setningar eftir höf- und þennan því til sönnunar. En til þess er hér ekki rúm, enda þarf þess ekki; nálega allir hugsandi menn eru hættir að leggja nokkra áherzlu á syndafalls- og spillingarkenninguna eftir bókstafnum heldur reyna að skoða hana og skilja á líkingarfullan hátt — al- veg eins og fleiri fornlega trúarlærdóma. »Manneðlið er« — segir einn af lærisveinum Kjannings — »líkt grenikönglinum; hann er ekki greniviður, heldur er hann vísir til greniviðar.« Eessi sann- leiki liggur og einmitt í kenningu Jesú, hvort sem eigin orð hans eru bókstafrétt tilfærð, eða rituð í og eftir atida hans — eins og guðspjall Jóh., þar setn t. d. hann talar um greinar á hinum sanna vínviði, eða það, að hafa lífið í sér. Kristur meinti kjarnann, hin sönnu útsæðiskorn, guðsmyndina, það að maðurinn ætti að verða guðs- barn, eða guðs son, í líking við hann sjálfan. Eessa kenning kall- aði Kj. afbakaða af slæmri trúarfræði. Hann skorar sí og æ á menn, að leggja hönd á plóginn, betran sína. »Trúið á náðarkraft guðs í yður sjálfum,« segir hann. Sú bezta bót og iðran er starf- semi guði til lofs og dýrðar og meðbræðrunum til blessunar. Tómt trúar- og iðrunartal eða réttlæting fyrir yfirnáttúrlega hjálp stoðar ekki — vekur menn ekki framar, sannfærir ekki framar. Vér megum aldrei gleyma því, að þó vér syndugir séum og breyskir, þá er margs konar ófullkomleiki áskapaður eðli voru, og frjálsræði vort, vitsmunir og tækifæri mjög svo takmarkað. Og enn síður megum vér gleyma hinu — hverju? Pví, að vér, þó breyskir séum, erum börn guðs, en ekki reiðinnar. »Enga betr- unar-örvinglun!« kallaði dr. Kj. »Rís þú upp úr volæði þínu, maður! Pú ert ekki getinn til ills og ófara, heldur til frelsis guðs-

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.