Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1898, Blaðsíða 77

Eimreiðin - 01.05.1898, Blaðsíða 77
157 láta læra það. Hefði óefað mátt sýna allt hið sama á helmingi minna rúmi, og þó miklu ljósar og greinilegar, ef efnið hefði verið framsett í stuttum, gagnorð- um reglum, og kennaranum svo ætlað að bæta upp, það sem þyrfti frekari skýr- ingar við. Oss virðist það, sem er um skipun orða og málsgreina í »Islenzkri mállýsingu« eptir Halldór Briem, miklu hentugra til kennslu en þetta kver. Ym- islegt er og að athuga við kver þetta. Þannig er stundum tilfærð forn orða- skipun, sem nú er úrelt (t. d. ef fyrir hvort á bls. 31 o. s. frv.). Það virðist og fremur tilgangslaust, að vera að kenna, hvernig hagað sje orða- og setninga- skipun f óvönduðu máli (sbr. 32 og 37), jafnvel þó það væri gert til viðvörunar. Það virðist nægilegt, að kenna, hvernig málið á að vera; hitt mætti æra óstöð- ugan að læra líka, hvernig það getur verið, þegar það er skælt og afbakað. Sumstaðar virðast dæmin ekki koma vel heim við skýring þeirra, t. d. á bls. 51: »Þegar hann er vfsifornafn, þá þýðir hann: hinn fyrnefndi, sem hér: vert þú kyr; hinir mega fara.« Hjer er ekkert »hann« í dæminu, enda vitum vjer ekki til að það orð sje nokkurntíma vísifornafn. Þetta er því sjálfsagt óþægileg prent- villa, en ekki er hennar þó getið í prentvillunum aptan við bókina. Á bls. 53 stendur: »Stundum stendur kynleysismyndin með karlkynsorði, sem hér: það er likt honum .« Oss er nú spurn: Hvar er karlkynsorðið, sem lýsingarorðið likur gæti lagað sig eptir, í þessu dæmi? Hvernig gœti setmngin verið öðruvísi en hún er, úr því að »það« er frumlag? Reglan bendir þó á, að það sje ekki nema »stundum«, að kynleysismynd lýsingsrorðsins sje höfð í sona dæmi. Á bls. 55—6 er skyldi og hafi látið vera boðháttur, en hvorugt er rjett. Af sögninni »skulu« er enginn boðháttur til, og af »hafa« er boðháttur ekki til nema í 2. pers. eint. og 1. og 2. pers. fleirt. Hvortveggja orðmyndin er viðtengingar- háttur, eða í hinum tilfærðu dæmum öllu heldur hvatarháttur (hortativus) eða óskarháttur (optativus). Á bls. 39 er sagt, að hvorugur sje samansett orð af hvor og neitunarorðinu eigi. En þetta er eigi rjett. Hinn sfðari samsetningar- liður er neitunarorðið -gi (í fornmálinu hvdrigr og hvdrgi, uppr. hvdrr-gi). Á bls. 50 er talað um orðið hvaövetna, en þá orðmynd könnumst vjer ekki við. í nútíðarmáli mun þetta orð varla koma fyrir nema í þáguf. (hvívetna), en kæmi það fyrir í nefnif. eða þolf., mundi sama myndin höfð og í fornmálinu (hvat- vetna, sbr. atferli, atlaga o. s. frv.). Á bls. 23 stendur: »Þær vanta hvorki frum- lag né sögn.« Hjer er »vanta« líklega prentvilla fytir »vantar«, því hitt væri ekki rjett mál (nema kannske í Winnipeg og þá f annari merkingu). í kennslu- bókum ætti jafnan að leggja mikla áherzlu á samkvæmni f rjettritun, en þessa er ekki ætíð gætt nógu vel. Þannig er t. d. ritað hverskonar á bls. 21, en hvers konar á bls, 40. Á bls. 40 er og ýmist ritað hvorttveggja eða hvortveggja á sömu blaðsíðunni, og er þó hvorugkyn á báðum stöðum. — Vjer vonum að þetta verði allt lagað, ef höfundinum auðnast að gefa bókina út í annað sinn. BJARNI SÆMUNDSSON: UM FISKIRANNSÓKNIR 1896 (Sjerprentun úr »Andvara« 1897). Ritgerð þessi skiptist í þrjá kafla: I. Silungsvötn og silungs- veiðar, II. Laxveiðar og III. Fiskiveiðar í sjó — allt á Suðurlandi og fram með suðurströnd landsins, frá Ingólfshöfða og allt vestur á Mýrar. Fróðleg ritgerð. sem margt má af læra. MINNINGARRIT FIMMTÍU ÁRA AFMÆLIS PRESTASKÓLA ÍSLANDS. Rvík 1897. í nokkrum inngangsorðum er stuttlega farið yfir sögu skólans, en
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.