Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1898, Blaðsíða 79

Eimreiðin - 01.05.1898, Blaðsíða 79
159 ing á landbúnaði vorum og kvikfjárrækt, húsaskipun í ýmsum sveitum landsins og að lokum langur kafli um ýmsar fornmenjarannsóknir (bæjarústir, hofa o. fl.). Bókin er skemmilega rituð og í henni rnikill fróðleikur fyrir útlendinga, og má furðu kalla, hve mikillar þekkingar höf. hefur getað aflað sjer á jafnskömmum tíma. í bókinni eru nálega 200 myndir til skýringar og auka þær eigi alllítið gildi hennar. — Um þessa bók hafa þrír íslendingar ritað ritdóma: Dr. porv. Thoroddsen (í »Petermanns Geogr. Mitteilungen« 189% bls. 188—9), Pdlmi Pdls- son skólakennari (í »Nationaltidende« 1897, nr. 7756) og cand. mag. Bogi Melsteð (í »Berl. Tidende« 1897), og hafa þeir allir gert góðan róm að henni. Um hana hefur og verið ritað í franska tímaritið »Le Tour du Monde« (okt. 1897) og enn víðar. UM ÍSLENZKAN SPJALDVEFNAÐ hefur fröken M. Lehmann-Filhés skrifað mjög fróðlega grein í i>Illustrirte Frauen-Zeitung« 1897 (nr. 20—22), og lýsir hún þar bæði spjöldunum og hvernig þeim sje beitt eða farið að vefa með þeim, og fylgja góðar myndir til skýringar. Hefur hún fundið þetta af hugviti sínu með því að rekja upp spjaldofna bandspotta frá Islandi, og má það kalla vel gert. Vefur hún nú bönd af ýmsri gerð og hefur vakið svo mikinn áhuga fyrir spjaldvefnaðinum, að ungar hefðarstúlkur í Berlín eru nú teknar að læra hann hjá henni og þykir mikill ffami í. 25. febr. þ. á. sýndi hún og í þjóð- fræðafjelaginu í Berlín (»Verein fur Volkskunde«), hvernig væri farið að vefa með spjöldum, og þótti mikið til koma. Nýlega hefur hún sent oss spjaldofið band með íslenzku letri, er hún sjálf hefur ofið og stendur á því: ELDGAMLA ÍSAFOLD. — En hvernig líður spjaldvefnaðinum hjá hefðarmeyjunum í höfuð- stað íslands? Er hann að deyja út eða hvað? Sje svo, þá viljum vjer ráða þeim að ná sjer í ritgerðina í »111. Frauen-Zeitung« á Landsbókasafninu og læra af henni. UM NÝÍSLENZKAR BÓKMENNTIR hefir M. phil. C. Kuchler ritað ýmis- legt á næstliðnu ári, ekki að eins í þýzk, heldur og í norsk og dönsk tímarit. I »Zeitschrift fur vergleichende Litteraturgeschichte* hefir hann ritað alllanga grein um íslenzkan leikritaskdldskap; rekur hann þar sögu þessa skáldskapar og telur upp flest, ef ekki öll, þau leikrit, sem rituð hafa verið (bæði prentuð og óprentuð) og leggur dóm á þau. Er ritgerð þessi að mörgu leyti mjög ffóðleg og skýrir frá mörgu, sem fæstum mun nú orðið kunnugt um, og sýnir slíkt eigi litla elju hjá höfundinum, að honum skuli hafa tekizt að grafa það upp. Dómar hans um íslenzka leikritagerð munu og rnjög nærri sanni. — Aðra grein hefir hann ritað í norska tímaritið »Kringsjaa« (IX, 9) um endurfœðing íslenzkra hókmennta, þriðju i mánaðarritið »Der Bote fúr deutsche Litteratur*: Skdldþjóð við heim- skautsbauginn og hina fjórðu í danska vikublaðið »De tusinde Hjem« (nr. 9): Nýislenzkar bókmenntir. Eru tvær hinar síðast töldu mestmegnis um bók Poes- tions »íslenzk nútíðarskáld«, en þó jafnframt um bókmenntir íslendinga yfirleitt. Á höf. mikla þökk skilið fyrir allar þessar ritgerðir og viðleitni á að vekja eptir- tekt þriggja útlendra þjóða á bókmenntum vorum. SKEMMTIFERÐALEIÐIR Á ÍSLANDI (»Turistrouter paa Island«) heitir alllöng ritgerð, sem höfuðsmaður Daniel Bruun hefir ritað f »Den danske Turist-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.