Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1898, Blaðsíða 27

Eimreiðin - 01.05.1898, Blaðsíða 27
107 í Fornmannasögunum (II, 222—8) er þriðja frásögnin um annað óáran, er varð 10 árum seinna (985), og svipar henni mjög til hinna. Er þar fyrst sagt, að þá hafi gerzt svo mikið hallæri á íslandi, að fjöldi manns hafi dáið af sulti. Því næst er sagt frá því, að mikilsháttar maður einn í Skagafirði, er hjet Svaði, hafi einn morgun kallað saman rnarga fátæka menn og boðið þeim að gera eina mikla gröf og djúpa skammt frá almannaveg. Urðu hinir fátæku þessu mjög fegnir, þvi þeir vonuðust eptir að fá svo mikið fyrir vinnu sína, að þeir gætu slökkt hung- ur sitt. En um kveldið, er þeir höfðu lokið grafargerðinni, leiddi Svaði þá alla í eitt lítið hús, og byrgði siðan húsið og sagði þeim að næsta morgun skyldi þá drepa og jarða i þeirri miklu gröf, er þeir hefði sjálfir gert (sem líklega á að skiljast svo, að hann ætlaði að grafa þá lifandi og láta þá deyja í gröfinni). Þetta fór þó á annan veg en ætlað var, því svo bar til, að Þorvarður hinn kristni Spakböðvarsson fór sömu nóttina um hjeraðið að erindum sínum; og lá leið hans snemma um morguninn fram hjá húsi því, er hinir fátæku menn vóru i innibyrgðir; 'heyrði hann þá kveinstafi þeirra og spurði, hvað þeim væri að angri. En er hann varð hins sanna vis af þeim, bauðst hann til að frelsa þá og fæða þá alla á búi sínu meðan hallærið stæði, ef þeir vildu taka kristni og trúa á sannan guð. Pað kváðust hinir fátæku gjarnan vilja, og tók þá Þorvarður slagbrandana frá dyrunum og hafði fátæklingana heim með sjer og ljet þar skira þá og kenna þeim heilög fræði. »A þeim sama tíma, sem nú var áðr frá sagt, var þat dæmt á samkvámu af héraðsmönnum, at fur sakir sultar ok svá mikils hallæris var leyft at gefa upp gamalmenni ok veita enga björg, svá þeim, er lama váru eðr at nökkuru vanheilir, ok eigi skyldi herbergja þá«. Og þetta skyldi jafnt gilda um foreldra og nánustu ættingja, sem aðra, er þeir vóru svo hrumir, að þeir gátu ekki framar álitizt að vera til gagns fyrir mannfjelagið. Og þegar þetta var samþykkt, »gnúði á hin snarp- asta hríð með gnístandi frostum«, svo auðsætt var, að þessir hjálpar- lausu veslingar ættu dauðan visan, er þeir vóru þannig reknir út á gadd- inn. En er belzti höfðinginn i sveitinni, Arnór kerlingarnef, kom heim af samkomunni, gekk móðir hans, Puríður, fyrir hann og hjelt yfir hon- um þrumandi ræðu, og leiddi honum fyrir sjónir, »hversu úheyrileg og afskapleg úmennska þat var, at maðr skyldi selja í svá grimman dauða föður ok rnóður eðr aðra náfrændr«. Pessi ræða kerlingar hafði svo mikil áhrif á Arnór, »at hann sendi sína heimamenn á næstu bæi at samna saman öllu gamalmenni ok þvi, er út var rekit, ok flytja til sín, ok lét þá næra með allri líkn«. Daginn eptir stefndi hann svo aptur til fundar og hjelt þar langa ræðu fyrir bændum, þeim er hann hafði yfir að ráða, og kvað þá skyldu sæta afarkostum af sinni hálfu,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.