Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1898, Page 73

Eimreiðin - 01.05.1898, Page 73
i53 kom út 1876 (96 bls.), en hið annað á árunum 1879—85 (XX -j- 639 bls.). En í þessi söfn vóru að eins tekin orð, sem komu fyrir í bók- um fram að 1700. Þetta nýja, þriðja safn, sem komið hefir út á ár unum 1890—97, er bæði mest þeirra allra (XIII —j— 1392 bls.) og að þvi leyti líka merkilegast, að það nær yfir bókmenntir vorar allt fram á hinn síðasta áratug þessarar aldar, og tilfærir því nær eingöngu orð, sem fyrir koma í bókum eptir 1700. f*að er þvi í raun rjettri ný-islenzk orðabók. Og á slikri bók var sannarlega þörf, bæði fyrir útlenda og og innlenda- Allir munu þvi kunna höf. hina mestu þökk fyrir hana, og það þvi fremur, sem bókin er í alla staði svo vel úr garði ger, sem vænta mátti af honurn, sem vafalaust er fróðastur allra núlifandi manna í tungu vorri. Það er óhætt að reiða sig á það, sem í henni stendur, og hún er þvi ágæt það sem hún nær. En ef menn halda, að með henni sje fengin fullkomin orðabók yfir nýja málið, þá skjátlast mönnum herfilega. Að svo er ekki, er höf. sjálfum lika fullljóst, því hann tekur það fram með skýrum orðum i formála sínum. I nýja mál- inu er sægur af orðum, sem sjaldan eða aldrei koma fyrir í bókum, og af þeim eru sárfá i safninu. En það er ekki nóg með það, heldur vantar i safnið mikinn fjölda orða, sem fyrir koma í bókum, og jafn- vel fjölda orða, sem fyrir koma í sömu ritunum, sem orð eru þó til- færð úr. Og þetta á sjer meira að segja stað með helztu rit vor og höfunda. Oss hefir reyndar furðað töluvert á þessu, en vjer höfum fyllilega gengið úr skugga um, að svo er, og skulum vjer nú færa sönnur á mál vort með nokkrum dæmum. Einn af helztu nútiðarhöf- undum vorum er óneitanlega Jónas Hallgrimsson, og vjer h}rggjum, að mörgum útlendingi, sem vildi kynnast nútíðarbókmenntum vorum, mundi verða einna fyrst fyrir að lesa »Grasaferðina« hans. (Hann mundi byrja á lesmálinu á undan kvæðunum). Vjer höfum nú ekki lesið »Grasa- ferðina« mjög nákvæmlega, en vjer höfum þó fundið mörg orð i henni, sem vantar í orðasafnið, t. d. anza, bera (sig, e-ð við), berjamór, dúk- skyrta, dofna, flekkur (um grös), firtast, fífublettur, fara (með e-ð = hafa e-ð yfir), hárband (= b. úr hári), herma (eptir e-m), hranna, hvarf (fara á h.), kaf (upp úr miðju k.), kankbrosandi, lalli, meinyrði, muna (e-n um e-ð), patti, rindi, rósavetlingur, sauma (fyrir, upp um sig), skeið (= hjalli ?), skýjadrög, skotta, skúfur (um grös), smáhrúga, sólskinsblettur, stóreflis-bjarg, sona, stuðlaföll, tína (nafnorð), tínupoki, tó (= grastó). Öll þessi orð vantar i orðasafnið, og ekkert af þeim mun heldur koma fyrir i sömu merkingu í þeim eldri orðabókum, sem safnið á að vera viðbætir við, nema hið siðasttalda (tó) og kannske orðin anza og dofna. Eitt af vorum allrahelztu ritum eru og sPjóðsögurnar*. Ur þeim er, eins og vera ber, mikið tilfært í orðasafninu, en þó vantar þar sæg

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.