Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1898, Page 10

Eimreiðin - 01.05.1898, Page 10
90 fjelagsstjórn lof í lófa, sem ef til vill hver einstakur fjelagsmaður álítur að gangi hneyksli næst, að láta sitja að völdum; þessi dæmi, er vjer hjer höfum tilfært, getur hver maður auðveldlega gengið úr skugga um. A dögurn stjórnarbyltingarinnar miklu á Frakklandi, sátu á »þjóðþinginu«, er vann svo mörg blóðug og órjettlát hermd- arverk, vel menntaðir borgarar, er hver um sig var kunnur að friðsemi og mannúð; en þegar þeir voru komnir í hóp og undir- orpnir hinum undarlegu áhrifum, er vjer höfum minnzt á, hikuðu þeir sjer, þrátt fyrir allt, ekki við að láta hálshöggva þá menn, sem allir vissu að voru saklausir, eins og þeir, sjálfum sjer til skaða, voru hver upp á móti öðrum og ljetu taka af lifi nokkra af sínum eigin mönnum, þótt þeir hefðu sjálfir samþykkt, að þjóð- þingsmenn skyldu vera friðhelgir. En það er ekki aðeins í verknaðinum að einstaklingurinn verður allur annar í múgnum, en þegar hann er einn síns liðs. Áður en hann hefur misst sjálfstæði sitt, breytast hugmyndir hans og tilfinningar, og þessi 'oreyting er opt svo algjör, að hinn nízki verður eyðsluseggur, efunarseggurinn trúaður, rjettlátur maður bófi, löðurmennið hetja. Það hefur verið sagt, og er opt sagt enn þá, að sannleikun inn sje fólginn í því, sem þjóðin þá og þá álíti gott og gilt; get- um vjer nú samkvæmt því, sem sagt er hjer að framan, haldið því fram, að »rödd þjóðarinnar sje rödd guðs« ? Af því, sem hjer að framan er sagt, getum vjer dregið þá ályktun, að maðurinn stendur ætíð á lægra stigi, að því er vits- muni snertir, þegar hann er í múgnum, en þegar hann er einn. Á hinn bóginn skal það játað, að múgurinn er ekki ætíð áfellis- verður; það er allt undir þvi komið, hverju honum er blásið í brjóst-, og það nær engri átt, að skoða múginn sem flokk illræðis- manna, eins og sumir höfundar hafa gjört. Að vísu getur múgur- inn opt hegðað sjer glæpsamlega, en hann getur líka stundum unnið afreksverk. Það er þrátt fyrir allt eitthvað mikilfenglegt í því, að slíkur múgur getur gengið i dauðann fyrir trúna eða frelsið. Eptir því sem sagt er hjer að framan, verðum vjer að álíta, að honum sje þetta ósjálfrátt; hann vinnur þess konar hreystiverk ósjálfrátt; en það eru þó þess háttar hreystiverk, sem mynda sög- una. Eins og hvert annað atriði, er lítur að hinu dularfulla sálar- lifi manna, hefur og þessi skýring á því, hvernig einstaklingurinn hverfur inn í múginn og nýjar lyndiseinkunnir myndast við það,

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.