Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1898, Page 4

Eimreiðin - 01.05.1898, Page 4
84 þvíumlíkt, þá er engu líkara en hin sjerstaka lyndiseinkunn þeirra og manngjörvi máist af eða hverfi, og þeir hverfi inn í hópinn; það er eins og þeir missi hina persónulegu ábyrgðartilfinningu og verði ópersónulegir liðir í hinum ábyrgðarlausa hóp. Þetta er líka atriði, sem hefur vakið afarmikla athygli víða um heim, og er það af góðum og gildum ástæðum, þar sem svo mörg mikilsvarðandi málefni eru á vorum dögum lögð undir úr- skurð múgsins. Slíkan múg eða margmenni má að nokkru leyti skoða sem sjerstaka, lifandi veru, gædda sálareiginleikum, og eru sumir þeirra hinir sömu og hjá einstökum mönnum, en aðrir eru alveg sjerstakir fyrir múginn. Látum oss nú virða þessa sjerstöku eiginleika nokkru nánar fyrir oss. Fyrst og fremst teljum vjer eptirfylgjandi staðreynd, sem að. nokkru leyti liggur til grundvallar fyrir hinum öðrum einkenn- um: Af hvaða tægi sem þeir einstaklingar eru, sem mynda hóp, hve ólíkir sem þeir eru sín í milli, að því er snertir stöðu, lifn- aðarhætti, starfa, lyndiseinkunn og gáfnafar, þá er það svo, að blátt áfram af því, að þeir eru nú einu sinni komnir saman, þá ríkir sami andi hjá þeim og gjörir það að verkum, að tilfinningar þeirra, hugsanir og athafnir verða allt öðruvísi en tilfinningar, hugsanir og athafnir hvers einstaklings mundu verða, væri hann ekki með í hópnum. Það eru til hugsanir og geðshræringar, sem aðeins koma í ljós og brjótast út í verknað hjá einstaklingunum, þegar þeir eru í annara manna hóp. Slíkur hópur eða múgur er eins- konar stundarvera, mynduð af ýmislegum frumefnum, er um stundarsakir renna saman í eitt; öldungis eins og frumhylfi þau, sem lifandi líkami er samansettur af, sameinast og mynda veru, gædda eiginleikum, sem eru gagnólíkir þeim, er hvert einstakt frumhylfi hefur. Múgnum mætti líkja saman við efnablöndun; efnafræðingurinn blandar saman ýmsum ósamkynja efnum, og úr því verður ekki einföld blöndun, heldur myndast nýtt efni, með allt öðrum einkennum, en efni þau, sem notuð voru. Það er ofurauðvelt að sýna fram á, að hóp manna er allt öðruvísi varið en einstökum manni; aptur á móti er það ekki jafnauðvelt að sýna, hvernig á þessum mismun standi. Hjer er þá fyrst þess að minnast, að sálarfræði seinni tima hefur gjört þá þýðingarmiklu uppgötvun, að skynsemi vor eða meðvitundarlíf og hinn svonefndi frjálsi vilji er hvorki svo meðvita nje frjálst, sem vjer hingaðtil höfum ætlað. Hugsanir vorar og athafnir ákvarðast

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.