Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Page 45
47
biskup lögmanni »að hafa fjögra eða 5 álna löng tré af rekanum á
Skeiði, er liggur fyrir utan Ölfusá«. (Varla þó af Hafnarskeiði).1)
Aftur er dæmt um rekann á Skeiði 1564, að hann skuli vera
æfinleg eign Skálholts- og Arnarbæliskirkna. Enn verða málaferli um
reka þennan árin 1632—3, og ganga þá til hæstaréttar. Gísli biskup
skrifar þangað, að faðir sinn, Oddur biskup Einarsson, og aðrir biskup-
ar í Skálholti, hafi haldið rekanum af Skeiði til stólsins »nu hartt at
offuer 200 aar«.
Skömmu eftir þetta, 30/5 og 15/6 1636, er bókfærð talsverð runa
af rekatrjám, sem skift var á Skeiðinu. Hefur þá Hraun heldur unnið
á aftur, því það fær a. m. k. 3A af öllum trjám að 5 — 6 álna fyrir
austan Miðöldu.
Arnarbæli virðist fá af öllu þar, en Skálholt 3U af lengri
trjánum. En fyrir vestan Miðöldu fá staðirnir og sU af öllu saman.
10 árum hér á eftir, 1646, eru enn málaferli og dómar út af sama
reka. Eru þeir samhljóða skiftunum, nema að því leyti sem rekaréttur
Hrauns er dæmdur til konungs úrskurðar. — Einhver Oddur Brands-
son vitnar það, að faðir sinn hafi búið 27 ár á Hrauni. Hafi hann þá
hirt minni tré og 6 álna á margnefndum stað, og aðrir fleiri er þar
hafi búið. Fyrir þessum dómi lágu vitnisburðir fjögra vitna á sjötugs
og áttræðrsaldri. Vitni þessi höfðu heyrt eftir eldri mönnum, að út-
fall Ölfusár hefði verið við Miðöldu einhverntíma fyrir þeirra minni.
Og sum vitnin höfðu heyrt kallaðan Skerðingarhólma fyrir austan
þetta útfall.2) — Af öllum þessum vitnisburðum og dómum er aug-
ljóst, að þegar fyrir siðaskiftin eru glataðar skriflegar frumheimildir
Skálholtsstóls fyrir rekanum á Skeiði, ef þær hafa nokkru sinni verið
til. Enginn þeirra biskupa, sem nefndír voru, getur rakið þessa heimild
lengra aftur í liðinn tíma, en á 14. öld. Eignaheimildin að rekanum
á Hraunsskeiði, hvíldi því á hefð, vitnisburðum og dómum. Og hún er
þá að vísu orðin séreignarkvöð í Hraunslandi — rétt eins og algengt
er um fjörur kirkna á bændaeignum.
Hraun var ekki stólsjörð. Skálholtskirkja hélt því reka þessum
1) Sjá Fbrs. XI 447, 472, 481; og XII. 307: 1551 seldi Erlendur lögmaður
jörðina Hraun, með öllum gæðum »að undanteknum öllum stórtrjám á Hrauns-
rekum 6 álna löng og stærri«, Ögmundi »bónda« Eyjólfssyni. — Feðgarnir
höfðu átt jörðina í 50 ár.
2) Bréfabækur Gísla biskups I. bls. 43, 364, II. bls. 242 o. fl. stöðum —
Talsvert bar á trjástuldi af rekanum á þessum árum, og það svo frekt, að ferju-
manni (Jóni Þorbjörnssyni) í Nesi var bannað að flytja rekatré yfir Ölfusá, nema
þar með fylgdi sönnun fyrir eignarheimild.