Morgunblaðið - 11.01.1997, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 11.01.1997, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ 6 LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997________________________ FRÉTTIR Morgunblaðið/Þorkell BÖÐVAR Bragason lögreglustjóri, Stefán Hirst skrifstofustjóri, Guðmundur Guðjónsson yfirlög- regluþjónn, Geir Jón Þórðarson aðalvarðstjóri, Haraldur Johannessen varalögreglusfjóri, Magnús Einarsson yfirlögregluþjónn í Kópavogi og Hilmar Þorbjörnsson aðstoðaryfirlögregluþjónn voru hinir ánægðustu með nýja hverfislögreglustöð í Völvufelli. Ný lögreglustöð opnuð við Völvufell í Breiðholti Lögreglan nær fólkinu LÖGREGLAN í Reykjavík tók í gær í notkun nýja hverfislög- reglustöð í Breiðholti. Starfsemi hverfislögreglunnar þar verður aukin, auk þess sem þrír rann- sóknarlögreglumenn verða á stöðinni og er þeirra hlutverk að aðstoða við rannsóknir mála í Breiðholti og Grafarvogi, Árbæ og Mosfellsbæ, þar sem einnig eru hverfislögreglustöðvar. Geir Jón Þórisson, aðalvarð- stjóri, er yfirmaður á nýju lög- reglustöðinni, sem er við Völvu- fell. „Aukin starfsemi hér er í samræmi við breytingar sem verða þegar Rannsóknarlög- regla ríkisins verður lögð niður um mitt árið og rannsókn brota- mála færist til lögregluembætt- anna. Þá var einnig þörf á að bæta aðstöðu lögreglunnar í Breiðholti. Hverfislögreglu- stöðvar hafa sannað gildi sitt og við viljum halda áfram á þeirri braut að færa lögregluna nær fólkinu." Nítján starfsmenn Geir Jón segir að 19 starfs- menn séu á nýju stöðinni. „Sjö starfsmenn eru í föstum stöðum, en átta lögreglumenn og fjórir varðstjórar skipta með sér vökt- um, sem nú eru allan sólarhring- inn.“ Lögreglustöð var fyrst opnuð í Breiðholti í ágúst 1989, í kjöl- far kvartana verslunareigenda vegna tíðra rúðubrota, innbrota og íkveikja. Sú lögreglustöð var tij húsa í verslunarmiðstöðinni við Drafnarfell. Lögreglan var ánægð með reynsluna af rekstri stöðvarinnar, enda voru marg- falt fleiri afbrot í hverfinu upp- lýst eftir að henni var komið á laggirnar. Fimm stjórnendur af Stöð 2 ráðnir til Stöðvar 3 „Styrkir liðsheildina“ Stöð 3 hefur ráðið fímm stjómendur frá keppinauti sínum, íslenska útvarpsfélag- inu, þar á meðal Magnús E. Kristjánsson sem sjónvarpsstjóra. Stjómarformaður Stöðvar 3 segir að mennimir séu komnir til starfa hjá Stöð 3 en stjómarformaður Stöðvar 2 segir að þeir séu bundnir af þriggja mánaða uppsagnarfresti og félagið íhugi hvemig mögulegt sé að bregðast við mæti þeir ekki til vinnu á mánudag. MAGNÚS E. Kristjánsson sem verið hefur framkvæmdastjóri markaðs- sviðs íslenska útvarpsfélagsins hf. og átt sæti í framkvæmdastjórn fyr- irtækisins, hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri íslenskrar margmiðl- unar hf. og sjónvarpsstjóri Stöðvar 3. Fjórir aðrir stjórnendur Stöðvar 2 og Bylgjunnar flytja sig yfir á Stöð 3 með Magnúsi, dagskrárstjóri Bylgjunnar og auglýsingastjóri, tæknistjóri og framleiðslustjóri ís- lenska útvarpsfélagsins. Þeir hafa allir hafið störf á nýja vinnustaðnum. Einar Kristinn Jónsson hefur ver- ið starfandi stjórnarformaður Is- lenskrar margmiðlunar hf. og sjón- varpsstjóri frá því félagið tók við rekstri Stöðvar 3 hinn 1. nóvember sl. Hann segir að stjórnin hafi frá þeim tíma leitað að framkvæmda- stjóra og ýmislegt komið upp í þeim efnum. „Við heyrðum af því að Magnús E. Kristjánsson kynni að vilja skipta um starfsvettvang og könnuðum það eins og annað. Við- ræðurnár leiddu til þeirrar niður- stöðu sem nú er orðin,“ segir Einar Kristinn. Tók skaraman tíma Um það hvemig hinir fjórir starfs- menn Islenska útvarpsfélagsins hafi komið til skjalanna segir Einar Krist- inn að eftir að ljóst var að samning- ar tækjust við Magnús hafi hann leit- að til þessara samstarfsmanna sinna. Þeir hafi haft áhuga á starfmu og allir væru þeir komnir til starfa. Um er að ræða Jón Axel Ólafsson dag- skrárstjóra Bylgjunnar, Thor Ólafs- son auglýsingastjóra íslenska út- varpsfélagsins, Hannes Jóhannsson tæknistjóra ÍÚ og Magnús Viðar Sig- urðsson framleiðslustjóra ÍÚ. Einar Kristinn segir að ráðning Magnúsar hafi átt sér skamman aðdraganda og talaði um_ nokkra daga í því sambandi. Stjórn íslenskr- ar margmiðlunar samþykkti ráðn- inguna í fyrrakvöld og eftir funda- höld í fyrrinótt sögðu mennirnir upp störfum hjá Stöð 2 í gærmorgun og hættu samstundis. Endanlega var gengið frá málinu um hádegisbilið í gær, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins, og komu þeir þá til starfa á nýja vinnustaðnum. Magnús E. Kristjánsson segir al- gengast, enda væri það fullkomlega eðlilegt, að menn hætti strax við vistaskipti eins og hér um ræðir. Hann Ieggur áherslu á að þó þeir félagar hafi auðvitað rætt saman hafi þeir ekki tekið sameiginlega ákvörðun um að skipta um starf, þeir hafi orðið að ákveða það hver fyrir sig hvort þeir tækju þeirri áskorun sem fælist í því að fara til starfa á Stöð 3. Hafði hugsað mér til hreyfings „Mér hefur líkáð ákaflega vel hjá íslenska útvarpsfélaginu þar sem ég hef starfað með góðu fólki, bæði stjórn og starfsmönnum. Eg hef verið þarna í fímm ár og hafði hugs- að mér til hreyfings, var til í að tak- ast á við ný verkefni. Mér barst til- boð um að taka að mér þetta verk- efni hjá Stöð 3 og ákvað að slá til,“ segir Magnús þegar hann er spurður að því af hverju hann hefði ákveðið að hætta hjá Stöð 2. Magnús ségir að sér lítist vel á að taka þátt í að byggja upp þennan nýja gölmiðil. Hann segir að hug- myndir stjórnar fyrirtækisins um starfsemi Stöðvar 3 séu áhugaverðar og falli að mörgu leyti að hans eig- in. „Þetta er spennandi verkefni þó ég geri mér jafnframt grein fyrir því að það er erfitt. Ekkert er sjálf- gefið í fjölmiðlun og samkeppnin hörð,“ segir Magnús. Geta ekki gengið út Sigurður G. Guðjónssón, varafor- maður stjórnar íslenska útvarpsfé- Fimm boðin ráðn- ing í stöður rann- sóknarprófessora FORSÆTISRÁÐHERRA hefur boð- ið fimm umsækjendum ráðningu í tímabundnar stöður rannsóknarpró- fessora við Háskóla íslands til fimm ára. Er þetta í fyrsta sinn sem ráðið er í stöður rannsóknarprófessora, en þeim stöðum fylgir ekki kennslu- skylda. Á sviði hugvísinda er dr. Þór Whitehead prófessor við Háskóla Is- lands, boðin ráðning til að rannsaka tengsl íslendinga_ við útlönd og er- lenda menningu. Á sviði félagsvísinda er dr. Þorvaldi Gylfasyni prófessor við Háskóla íslands, boðin ráðning til að rannsaka áhættustjórnun í ís- lensku þjóðfélagi. Á sviði heilbrigðis- vísinda er dr. Einari Steingrímssyni sérfræðingi við National Cancer Inst- itute í Bandaríkjunum, boðin ráðning til rannsókna í erfðafræði. Á sviði raunvísinda er dr. Hjör- leifi Einarssyni lektor við Háskólann á Akureyri og aðstoðarforstjóra Rannsóknastofnunar fískiðnaðarins, boðin ráðning til rannsókna í mat- væla- og matvælaörverufræði. Á sviði verkfræði er dr. Þórði Runólfs- syni háskólakennara við John Hopk- ins University í Bandaríkjunum, boð- in ráðning til rannsókna í upplýs- inga- og tölvuverkfræði. í frétt frá forsætisráðuneytinu kemur fram að stöðurnar voru stofn- aðar af menntamálaráðherra sam- kvæmt heijnild í lögum um Rann- sóknarráð íslands og voru stöðurnar auglýstar til umsóknar í júní 1995. í mars 1996 vék menntamálaráð- herra sæti og var forsætisráðherra settur til að taka við í hans stað samkvæmt stjórnsýslulögum vegna tengsla menntamálaráðherra við umsækjendur. Skipuð var sérstök dómnefnd, þar sem áttu sæti þeir Sveinbjörn Björnsson rektor Háskóla íslands, Sigmundur Guðbjarnason formaður Rannsóknarráðs íslands og Rögn- valdur Hannessön prófessor við Verslunarskólann í Björgvin í Nor- egi. Er ákvörðun forsætisráðherra tekin í samræmi við niðurstöður nefndarinnar. Klippt af bifreiðum LÖGREGLAN í Reykjavík klippti númer af tuttugu og tveimur bifreið- um í fyrrinótt, vegna þeirra bíla sem hafa ekki skilað sér til skoðunar á liðnu ári. Þetta á einnig við um eigendur þeirra ökutækja, sem fengu frest til lagfæringa á seinasta ári, en hafa ekki sinnt tilmælum þar að lútandi, svo og þá bifreiðaeigendur sem hafa ekki greitt bifreiðagjöld eða lög- bundin tryggingaiðgjöld. Lögreglan klippir númer af bif- reiðum, hvar svo sem þær kunna að vera staddar, og er umtalsverður kostnaður fyrir bifreiðaeigendur að endurheimta númerin til að geta ekið um götur að nýju. y . - *. lagsins, segir að starfsmennirnir fimm hafi afhent uppsagnarbréf um hádegisbilið í gær. En þótt þeir hafi tæmt vinnuaðstöðu sína og ekki mætt til vinnu eftir hádegið eigi þeir að mæta á mánudagsmorg- unn. Leggur Sigurður áherslu á að starfsmennirnir séu bundnir þriggja mánaða uppsagnarfresti og geti ekki gengið út á miðjum vinnudegi enda hafi hvorki þeir né nýr vinnu- veitandi þeirra samið um að þeir gætu lokið störfum fyrr en samn- ingar kveða á um. „Við munum að sjálfsögðu skoða stöðu okkar félags í ljósi ákvæða samkeppnislaga sem leggja bann við því að menn sem hafa komist yfír atvinnuleyndarmál á réttmætan hátt í starfi sínu fari með þau og hagnýti sér hjá sam- keppnisaðila," segir Sigurður um það hvað ætlunin sé að gera í mál- inu. Sigurður telúr ekki að það þurfí að vera áhyggjuefni fyrir íslenska útvarpsfélagið þó að fimm yfírmenn hætti störfum. Menn hafi áður hætt hjá íslenska útvarpsfélaginu, Ríkis- útvarpinu og Sýn, án þess að himin og jörð færust. „íslenska útvarpsfé- lagið heldur sínu striki,“ segir hann. „Þegar menn hafa unnið lengi hjá fyrirtæki er það vísbending um að þeir hafi reynst góðir starfsmenn," segir Sigurður þegar hann er spurð- ur að því hvort hann sjái eftir um- ræddum starfsmönnum. Vindur í seglin Ekki hefur verið gengið frá starfs- heitum fjórmenninganna á Stöð 3 en í fréttatilkynningu fyrirtækisins kemur fram að þeir muni starfa með framkvæmdastjóra að sérverkefnum við uppbyggingu Stöðvar 3. Fyrir er fólk í ýmsum stjórnunarstöðum á Stöð 3, sumum svipuðum og fjór- menningarnir gegndu hjá Stöð 2. Einar Kristinn telur ekki að ráðning mannanna fjögurra raski störfum þeirra sem fyrir eru. Tekur hann það sérstaklega fram að starfsfólkið hafi tekið tíðindunum vel í gærmorgun og að almenn ánægja væri með að fá nýja menn til liðs við hópinn. „Við höfum haft úrvals starfsfólk hjá Stöð 3 og það hefur unnið vel að undirbúningi starfseminnar. Þeir menn sem nú koma til liðs við okkur styrkja liðsheildina." Spurður um aukin útgjöld hjá tekjulitlu fyrirtæki segir Einar Krist- inn að þegar félagið tók við rekstri fyrirtækisins hafi verið gerðar ákveðnar áætlanir um reksturinn sem þurfi að halda. Ráðning mann- anna ein og sér hafi ekki í för með sér breytingar á fjárhagsáætlun. •+ * i ( C i i c < i € í ( C C I I «
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.