Morgunblaðið - 30.01.1996, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 30.01.1996, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996 35 AÐSENDAR GREINAR Eru ráðamenn þjóðarinnar loks að vakna af vondum draumi - eða hvað? ER ÞAÐ tilfellið að ráðamenn þjóðarinnar séu að átta sig á vandamáli unglinganna vegna fíkniefnavandans, sem nú veður yfir landsbyggðina. Það er mjög gleðilegt í byrjun nýs árs, þó seint sé í rassinn grip- ið. Það er svo langt síðan ég og fleiri hafa varað við eitrinu, án árangurs. Fjölmiðlar hafa tekið við sér og er það gott mál. Það hlaut eitthvað að gerast þegar dauðsföll unglinga vegna eitursins koma upp á yfirborðið og foreldrar farn- ir að tjá vandræði sín opinberlega. Það finnst mér að hefði mátt koma fyrr. Einnig eru fyrrverandi fíkni- efnaneytendur farnir að tjá sig. Þetta vandamál „Eitrið“ hefur verið í felum hjá mörgum fjöl- skyldum. Verið að leyna vandan- um í lengstu lög. Það hefur verið vandamálið. Foreldrar skammast sín kannski fyrir eiturefnanotkun barna sinna og halda að allt lagist með aldri og þroska, en því miður er það ekki þannig með eitur- neyslu, frekar aukning, þegar eitr- ið hefur verið notað í nokkurn tíma ánetjast unglingarnir. Þessi eitur- efni sem nú eru í tísku valda árás- arhneigð, án þess að unglingarnir geri sér grein fyrir hegðun sinni fyrr en kannski eftir á. Ég held að allar þessar árásir, sem eru hryllilegar og valda næstum dauða, séu vegna fíkniefnanotkun- ar. Foreldrarnir finna kannski lykt af víni þegar unglingarnir koma loks heim undir morgun illa á sig komnir, en fatta ekki að eitrið er með í spilinu. Þettá' hefur lengi verið vitað um eiturnotkun fdllorð- inna. Brennivínið „blóraböggull" til að fela vímuna af eitrinu og árásargirnina. Þetta þurfa lögregl- an og aðrir að athuga. Nú reynir á dómsmálaráðuneyt- ið. Það verður að efla lögregluna, en ekki að fækka í henni eins og hefur verið gert. Sérstaklega þarf að fjölga í fíkniefnalögreglunni og gefa henni tíma til að rannsaka mál niður í kjölinn til að ná þeim sem skaffa peningana til að kaupa eitrið í Hollandi og víðar. Það get- ur tekið langan tíma að ná til þeirra. Það verður að auka fjármagn til lögreglunnar. Já, og tollvarð- anna, því allt þetta eitur kemur með flugvélum. Það er löngu vit- að, en ekkert gert til að stöðva fyrir alvöru innflutninginn á eitr- inu. Ströng gæsla á Keflavíkur- flugveili er númer eitt. Það verður að fjölga mikið tollvörðum þar og einnig þurfa að vera þar menn frá fíkniefnalögreglunni. Leita miklu betur á fólki og í farangri þess. Farþegar verða bara að sætta sig PARKETSLIPUN Sigurðar Ólafssonar Við gerum gömlu gólfin sem ný Sími: 564 3500 - 852 5070 við að tefjast vegna leitar að eitr- inu, þar sem þetta er að verða þjóðarböl. Maður reiknar með að almennilegt fólk sætti sig við það, þótt hvimleitt sé. Það þarf að auka athvarf fyrir vímuefnasjúklinga, en ekki að leggja slík heimili niður. Veita miklu meira fé til þessara mála Fíkniefnavandinn veður yfír landið, segir Sveinn Björnsson, og mál er að vakna til varnar. og sjá ekki eftir þeim peningum til að vernda æskuna í land- inu. Nú loksins virðast augu ráðamanna hafa opnast fyrir vandan- um og er það vel. Það þarf að láta hendur standa fram úr erm- um. Nú er lag, eins og sagt var. Allir virðast fúsir til aðgerða, en síðan fór í verra með yfirlýsingu dómsmála- ráðherra í gær, sem hefur skipað nefnd vegna vandans af eitr- inu. í henni er fólk sem veit hvað um er Sveinn Björnsson að vera í þessum mál- um, en á ekki að skila skýrslu sinni fyrr en í júní. Það finnst mér langur tími og sýnir að dómsmálaráðherr- ann skilur ekki vand- ann. Nóg væri að þessi nefnd fengi þrjá mánuði eða enn skemmri tíma til að skila skýrslu sinni, þar sem hún veit allt um þessi mál. Svona seinagangur gengur ekki. Höfundur er fyrrver- andi rannsóknarlög- reglumaður. Námskeið sem borgar sig frá fyrsta degi: UmsjónTölvuneta Ef þú vilt minnka rekstrarkostnað við tölvunetið þitt er þetta námskeið fyrir þig. Námskeið fyrir þá sem vilja sjá um rekstur tölvuneta! 36 klst námskeið, kr. 44.900,- stgr. Námskeið á þriðjudögum og laugardögum Tölvu- og verkfræðiþjónustan Tölvuráögjof • námskeið • utgáta Grensásvegi 16 • sími 568 8090 hk 95094 Raögreiðslur Euro/VISA NISSAN Rúmgóði fjölskyldubíllinn Nissan Almera er hlaðinn auka- og öryggisbúnaði eins og: - Innbyggðri þjófavöm - Loftpúða í stýri (SLX gerðir) - Hemlaljósi á kistuloki - Stereó hljómflutningstækjum og auðvitað er bíllinn afgreiddur á vetrardekkjum með hlífðarmottum á gólfi. . 'w.jr • >c f f . # 3 miið og reynsluakið bíl með einstaka akstursei, og sannfœrist um kosti nýju fjölliðafjöðrunarinnar MkS. Bílasýning laugardag og sunnudag kl. 14-17 3 UfS '■, Ingvar Helgáson Sœvarhöfða 2 Sími 525 8000

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.