Morgunblaðið - 30.01.1996, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 30.01.1996, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996 37 AÐSENDAR GREINAR Nýskipan í fisk- veiðistjórnun Sigurður Ingólfsson Hvers vegna að kalla yfir sig öll þessi vandamál? DAGLEGA megum við íslendingar sitja undir fréttum af vandamálum og vand- ræðum í stjórnun á auðlind okkar, þ.e. fiskveiðunum. Vest- firðingar vilja eitt stjómunarkerfið á meðan Norðlendingar vilja annað, togaraút- gerðir vilja kerfi sem er þeim hagstætt, bá- taútgerðir annað sem kemur betur út fyrir þær og smábátaútgerðir enn eitt sem gefur þeim meira. Frystihúsin vilja kerfi sem gefur þeim hlutdeild í auðlegðinni og sveitarfélög og landshlutar vilja kerfi sem tryggir þeim hlut í auðlindinni. Svona er endalaust hægt að telja upp aðila sem vilja fá nokkuð í sinn hlut og ekki er ráðherra öfundsverður af því að reyna að hanna kerfi þar sem öllum þessum kröfum er fullnægt. Og takið eftir eigendur auðlegð- arinnar, þú og ég, við erum ekki spurðir. A meðan hagsmunaaðilar bítast um eign okkar er ekki talað við okkur. Og hver er svo útkoman? Jú, fisk- veiðistjórnun sem allir eru óánægð- ir með nema sægreifarnir sem sóp- að hafa eign okkar til sín í formi veiðiheimilda, mest gefins en til viðbótar með kaupum á eign okkar frá öðrum sem hana fengu gefna. Hveijum er þetta til hagsbóta? Jú, fáeinum aðilum sem safna til sín öllum veiðiheimildunum eða megninu af þeim í krafti stærðar sinnar og styrks og munu innan skamms tíma stjórna þessari auð- lind okkar að vild af sömu ástæðu. Þetta er ekki til hagsbóta fyrir eigendurna, þig og mig, við munum aldrei fá neina leigu fyrir afnot af eign okkar, við okkur er ekki einu sinni talað. Þetta er ekki til hagsbóta fyrir minni aðila í fiskveiðum, þeir munu engan kvóta fá, hann verður ekki á lausu, og þeir munu hverfa af sviðinu. Þetta er ekki til hagsbóta fyrir landsbyggðina. Einstök byggðarlög munu ekki hafa bolmagn til að hafa áhrif á hvar verður byggð og hvar ekki, það verður í valdi þeirra fáu sem eiga kvótann. Þeir munu jafnvel geta nýtt aðstöðu sína til að þvinga byggðarlög til sérstakra vildarsamninga við sig, gegn því að koma með einhveija starfsemi á svæðið. Ég vil bjóða út afnot af eign minni! Af hveiju í ósköpunum hefur útboðsleiðin ekki verið rædd? Að bjóða út veiðiheimildir kallar fram raunverulegt markaðsgjald, gjald sem bæði kaupandi og seljandi sætta sig við. Það uppfyllir þannig þær kröfur sem flestir eru sammála um að séu þær eðlilegu í viðskiptum í dag. Með því að bjóða út veiðiheimild- irnar hafa allir sömu möguleika á að eignast afnotaréttinn hvort heldur eru trillukarlar, útgerðir togara, sveit- arfélög, Vestfirðingar, Sunnlendingar eða þú og ég. Þannig beinir markaðurinn veiði- heimildunum til þeirra sem borga best og hafa væntanlega að jafnaði bestu afkomuna og eru veiðarnar þannig að jafnaði stundaðar þar sem þær gefa best af sér. Veiðiheimildirnar má framleigja og getur þannig myndast um þær markaður með sitt eigið breytilega gengi. Ég vil leigja til afmarkaðs tíma! Með því að leigja út afnotin til ákveðins afmarkaðs tíma fæst stöð- ugt rétt leigugjald. Með því að leigja afnotin til afmarkaðs tíma er aldrei vafi á því að við eigum fískinn í sjón- um, þú og ég, þ.e. íslenska þjóðin, Enginn skaði væri af því þó að leigjandinn væri erlendur, eigninni yrði skilað að leigutíma loknum og tekjur kæmu inn í landið. Engin áhætta þyrfti að fylgja því, þar sem leigjandinn getur sett þau skilyrði sem hann vill, fyrir leigunni, svo sem þau að landa afla hér á landi o.þ.h. Auðveldar veiðistjórnun! Með því að hafa leigutímann til 5 ára, sem virðast að mörgu leyti eðlileg tímamörk, og þannig fyrir- komið að 20% gengju til baka ár- lega væru útboð stöðugt í gangi og má auðveldlega dreifa þeim nið- ur á árið þannig að stöðugt væru að koma inn heimildir sem væru þá að nýju settar á markað. Þetta tryggir að útgerðir ættu stöðugt möguleika á að afla sér nýrra heim- ilda í stað þeirra sem þær þyrftu að skila inn og þá á því verði sem markaðurinn byði upp á á þeim tíma. Veiðistjórnun færi fram í gegn- um þessi útboð þannig að þegar draga þyrfti úr veiðum kæmi minna á markað af heimildum en skilað væri inn, og þegar auka mætti heimildir væri meira boðið út. Vafa- laust myndi verðið á hveijum tíma eitthvað stjórnast af þessu fram- Ég vil leigja veiðiheim- ildir til afmarkaðs tíma, segir Sigurður Ingólfs- son, og nýta tekjurnar í þágu alþjóðar. boði, en það myndi þó fyrst og síð- ast taka mið af markaðsverði afurð- anna á hveijum tíma. Ég vil fá leigutekjur! Tekjur þær sem til verða vegna útboða á veiðiheimildum, e.t.v. að frádregnum kostnaði við eftirlit með veiðunum, á að nýta í þágu þjóðarinnar. Hvort það verður í formi lægri skatta eða á annan hátt skiptir e.t.v. ekki máli, en það verður að láta tekjurnar koma skýrt fram og það verður að ráðstafa tekjunum á sýnilegan hátt og í allra þágu. Hvað eiga hagsmunaaðilar og sljórnmálamenn þá að pexa um? Þeir geta ekki lengur rifist um hvort trillukarlar eiga að fá að róa þennan daginn eða hinn. Þeir hafa ekki lengur tækifæri til að rífast um hvort aflamark eða úthald eigi best við. Þeir geta ekki lengur rætt um réttlæti þess að binda kvóta við svæði eða sveitarfélög eða alls ekk- ert og ekki er lengur tækifæri til að hygla einhveijum þar sem hann fór svo illa út úr fiskveiðistjórnunar- kerfinu o.s.frv. Ekki verður heldur ástæða til að eyða eins miklu púðri í að deila um hversu mikið má taka af fiskinum i sjónum. Eitt verður þó ekki tekið frá þess- um aðilum, þ.e. þeir verða áfram að sjá um að umgengnin um eign- ina okkar, þinnar og minnar, sé í lagi, og það ætti að duga í þó nokkr- ar umræður og pex. Til að tryggja að umgengnin sé í lagi, þarf áfram að vera virkt eftirlit og reyndar miklu markvissara en nú er. Eftirlit- ið þarf að uppfylla ýtrustu kröfur, sem kalía á úthald eftirlitsaðila með tilheyrandi „útgerð" og það þarf að beita harðari refsingum, sem fyrst og fremst fælust í sviftingu veiðiheimilda eftir fyrirfram settum reglum sem væru háðar broti. Höfuadur er framkvæmdastjóri. Fyrirtæki - stofnanir Haldið verður sérstakt hraðlestramámskeið fyrir starfs- menn fyrirtækja og stofhana. Námskeiðið hefst n.k. þriðjudag, 30. janúar. Kennt verður þijá þriðjudaga í röð kl. 17:00-19:30. Skráning er í símum 564-2100 og 564-1091. Fax 564-2108 HRAÐI-ESTRARSHÓIJNN við hjálpum MEÐ ÞINNI hjálpj I ú getur tekið þátt í að viðhalda lífsvon karla, kvenna og barna í neyð með því að hringja í síma 562 6722 og gerast styrktarfélagi Hjálparsjóðs Rauða kross íslands. Weetab/x Myldu það bara - efþú vílt brjóta upp línurnar V Fislétt en samt gróft og hollt fyrir meltinguna. Weetabix - hjartans mál! í. Ei MiQíCiMWÍ pH?| .1 sTOtNán»« ...blabib - kjarni málsins! 'ramlög þín renna óskipt til hjálparstarfs Rauða kross íslands erlendis. | Þú færð reglulega upplýsingar um hvernig við verjum fénu. Þú ákveður hve mikið, hve oft og hvenær þú greiðir. + RAUÐI KROSS ISLANDS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.