Morgunblaðið - 09.12.1995, Page 5

Morgunblaðið - 09.12.1995, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1995 5 Myrkranna á milli Það ríkir ávallt mikil eftiiyænting þegar konungur spennusagnanna, Sidney Sheldon, sendir frá sér nýja bók. A því var engin undantekning þegar þessi bók kom út í Bandaríkjunum fyrr á þessu ári. Myrkranna á milli spannar vítt sögusvið, allt frá fagurri strönd ítölsku Rívíerunnar ril tískuhúsanna í París. Söguþráðurinn er haglega ofinn gegnum móðu og mistur, og endalokin koma á óvart eins og Sheldons er von og vísa. Mundu mig Mary Higgins Clark hefur skrifað ellefu spennusögur sem allar hafa orðið metsölubækur um gjörvallan heim. I þessari bók dragast sögupersónurnar inn í ógnvekjandi og undarlegan vef sem ókunn öfl virðast spinna þeim. Mary Higgins Clark bregst ekki lesendum nú frekar en endranær og heldur þeim í magnaðri spennu allt til síðustu blaðsíðu bókarinnar. Morð í þremur þáttum Þau eru orðin mörg sakamálin sem Hercule Poirot hefur leyst allt frá því að fyrsta bók Agöthu Christie, Hús leyndardómanna, kom út árið 1920. Síðan hafa milljónir lesenda um allan heim notið snilligáfu þessa litla belgíska einkaspæjara. Morð í þremur þáttum er sígild, fyrsta flokks leynilögreglusaga með spennandi söguþræði, óvæntum atburðum, grunsamlegum persónum og síðast en ekki síst sögulokum sem koma öllum á óvart... nema Hercule Poirot. Andlit öfundar Jóhanna er ung stúlka, sem er búsett í Reykjavík. Hún er gædd dulrænum hæfileika, fjarskyggni, sem gert hefur henni lífið leitt en hún telur sig hafa losnað við. Hún bjargar litlu barni frá drukknun og fyrr en varir er hún flækt í ótrúlega atburðarás, þar sem hún fær engu ráðið. Lífi hennar er stefnt í hættu. Þessi þrettánda skáldsaga Birgittu er spennandi saga um afbrot og ástir. Enn á ný kemur Birgitta skemmtilega An planma yrði enginn matur á jörðinni, engin dýr af nokkru tagi, ekkert líf. Þær lifa þó lengstum í sínum eigin heimi, og við vitum sáralítið um hvað þar gerist. I þessari stórbrotnu bók opnar David Attenborough okkur heim náttúrunnar svo ljóslega og af slíkum áhuga að fáir rithöfundar og kvikmyndagerðarmenn hafa leikið það eftir. Bækur hans og sjónvarpsmyndir eru í fremstu röð og hafa reynst einn mesti fróðleiksbrunnur á seinni hluta 20. aldar. Einkalíf plantna er þungamiðja í verkum hans, gnmmirinn að öllu sem hanti hejur rannsakað hingað til. Hestar og menn 1995. Glæsileg árbók þar sem sagt er frá hestamönnum og hestum þeirra á ferðalögum og í keppni. Bókin er prýdd fjölda ljósmynda, bæði litmynda og svarthvítra. íslensk knattspyma 1995 í bókinni er að finna upplýsingar um allt það helsta sem gerðist í knattspyrnu á Islandi árið 1995. Litmyndir af öllum meistaraliðum ársins og áberandi einstaklingum. ^irenoorough Skjaldhorg h£ Ármúla 23, Reykjavík © 588-2400 Fax 588-8994 Akureyri: Furuvellir 13 © 462-4024

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.