Morgunblaðið - 28.12.1990, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 28.12.1990, Blaðsíða 48
FOSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990 VERÐ I LAUSASOLU 100 KR. Banaslys um borð í Tý BANASLYS varð um borð í varð- skipinu Tý síðdegis í gær. Sig- urður Bergmann 47 ára háseti lést, þegar hann varð fyrir vinnukrana á þyrludekki. Hann lætur eftir sig dóttur og aldraða móður. Siysið átti sér stað skömmu eftir að skipið lét úr höfn í Reykjavík . Skipverjar voru við vinnu í þyrlu- skýli varðskipsins og á þyrludekki. Vinnukrani á þyrludekkinu féll á höfuð Sigurðar með þeim afleiðing- um að hann lést samstundis. Orsak- ir slyssins eru ekki Ijósar, en unnið er að rannsókn málsins. Laxveiðin 1991: Spónveiði leyfð í fyrsta sinn í Norðurá Á KOMANDI laxveiðivertíð verð- ur í fyrsta sinn leyfilegt að veiða með spæni í Norðurá í Borgar- firði. Að sögn Friðriks Þ. Stefáns- sonar varaformanns Stangaveiði- félags Reykjavíkur, sem hefur ána á leigu, er ekki lengur litið á spón sem húkktæki og hugmyndin með spónveiðinni sé að nýta betur ákveðin svæði árinnar. Friðrik sagði að menn hefðu eink- um verið með svæðið fyrir ofan foss- inn Glanna í huga. Laxateljari í Laxfossi sýndi oft mikla fiskför inn á dal eins og kallað er, en stórt svæði nýttist ilia, það væri eins og laxinn hyrfi þar í stórum og djúpum hylj- um. í ágúst yrði því spónveiði leyfð ofan Glanna. „Annars eru reglurnar ekki fullmótaðar enn þá. Spónveiði- bannið hefur verið vegna tilmæla veiðifélagsins, en við erum nú sam- mála um að aflétta þessu að ein- hveiju leyti. Það má vel vera að við leyfum spóninn fyrir neðan Laxfoss í júní til dæmis,“ sagði Friðrik enn fremur. Norðurá er ein þeirra áa sem hækka í verði milli ára. Meðaitals- hækkun á veiðitímum sem Islending- um bjóðast er um 20 pró'sent. MorgunDiaoio/Fiinar r alur JafntefH gegn hehnsmeistiinmuni íslenska landsliðið í handknattleik jafnaði á síðustu stundu, 22:22, gegn heimsmeisturum Svía í vináttu- landsleik í Laugardalshöll í gærkvöldi. Sigurður Bjarnason var atkvæðamestur í íslenska liðinu, gerði fimm mörk og hér er eitt þeirra á leiðinni. Nánar á íþróttasíðu bls. 47. Mannfjöldi 1. des. Landsmönn- um fjölgaði um 2.355 MANNFJÖLDI á íslandi var 1. desember síðastliðinn 255.855 manns, samkvæmt bráðabirgða- tölum Hagstofu íslands. Fjölgunin á einu ári er 2.355, eða 0,93%, sem er nokkru meiri fjölgun en varð í fyrra, þá fjölgaði landsmönnum um 1.810, eða 0,72%. í yfirliti Hagstofunnar kemur fram að karlar voru 1. desember síðastlið- inn 128.381 talsins og konur voru 127.474, eða 907 færri en karlar. Fólksflölgun á árinu varð mest á höfuðborgarsvæðinu, 1,8%. I Reykjavík fjölgaði um 940 manns, eða 1%, sem er svipað og í fyrra. I öðrum sveitarfélögum á höfuðborg- arsvæðinu ijölgaði um 2,8% samtals, mest um 13,9% í Bessastaðahreppi. Á Suðurlandi fjölgaði um 0,8%, á Suðurnesjum um 0,7%_ og á Norður- landi eystra um 0,1%. I öðrum lands- hlutum fækkaði fólki, um 1,0% á Vesturlandi, um 0,5% á Vestijörðum, um 0,2% á Norðurlandi vestra og um 0,05% á Austurlandi. Fæðingum ijölgar enn og hefur sú þróun verið samfelld frá 1986. Horfur eru á að á árinu fæðist um 4.800 lifandi börn og er sú tala um 3.000 hærri en tala látinna. Um 4.100 manns fluttu af landinu á ár- inu, en um 3.400 til landsins, mis- munurinn er um 700 manns. A Atta skip fara til loðnumælinga eftir áramót: Sjávarútvegsráðuneytíð aftíir- kallar öll leyfi til loðnuveiða Vanhugsuð ákvörðun, seg’ir framkvæmdastjóri LIU SJAVARUTVEGSRAÐUNEYTIÐ hefur afturkallað öll leyfi til loðnuveiða og verður afstaða til frekari veiða tekin þegar niður- stöður iiggja fyrir úr mælingum tveggja rannsóknarskipa og sex loðnuveiðiskipa, sem hefjast strax eftir áramót. Kristján Ragnars- son framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna segir þessa ákvörðun vanhugsaða og tekna gegn vilja allra hags- munaðila. Loðnukvótinn á þessari vertíð er 600 þúsund tonn, og þar af hafa verið veidd um 85 þúsund tonn, að sögn Kristjáns Ragnars- sonar. Kvótinn var ákveðinn miðað við mælingar og afla á síðasta Bankaráðsfundur í Landsbankanum í dag: Nafnvaxtahækkun um 1% til 1,5% á dagskrá Fjallað um ráðningu nýs bankastjóra BANKARÁÐ Landsbanka íslands kemur saman til fundar kl. 11 í dag, þar sem vaxtamál verða á dagskrá og samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var í gær talið líklegast, að niðurstaða bankaráðsins yrði hækkun nafnvaxta inn- og útlána um 1% til 1,5%. Einnig hermdu heimildir Morgunblaðsins, að sumir bankaráðsmenn telji að nafn- vaxtahækkun fyrir tímabilið desember 1990 til 1. febrúar 1991 þurfi að vera um 3% til 3,5%. Bankaráðið mun á fundi sínum Landsbankans í stað Vals heitins í dag væntanlega taka ákvörðun Arnþórssonar. Fulltrúi Framsókn- um ráðningu nýs bankastjóra arflokksins í bankaráði Landsbank- ans, Kristinn Finnbogason, mun gera tillögu um nýjan bankastjóra Landsbankans, og er talið fulivíst að tillaga hans verði samþykkt. Valið mun standa á milli þeirra Geirs Magnússonar, bankastjóra Samvinnubankans, og Halldórs Guðbjarnasonar, fyrrum banka- stjóra Útvegsbankans. Sjá Af innlendum vettvangi bls. 19. ári, en niðurstöður bergmálsmæl- inga í nóvember sl. og ieiðangurs rannsóknarskipsins Árna Friðriks- sonar fyrr í þessum mánuði benda til að hrygningarstofninn nú sé aðeins um 350 þúsund tonn. Fiski- fræðingar miða við að hrygningar- stofninn sé 400 þúsund tonn og var því beint til útgerðarmanna loðnuskipa að skipin hættu loðnu- veiðum tii áramóta. Nú hefur verið ákveðið að 2. janúar fari rannsóknarskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmunds- son, ásamt sex loðnuskipum til frekari mælinga á stærð hrygning- arstofnsins. Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra sagði við Morgunblaðið, að jafnframt hefði verið ákveðið að loðnuflotinn færi ekki af stað fyrr en niðurstöður iiggi fyrir úr þeim leiðangri, og svo geti farið að um engar frekari loðnuveiðar verði að ræða, ef fyrri mælingar verði staðfestar. „Það má búast við að skipunum takist að komast yfir svæðið á viku til 10 dögum, ef veður verður bærilegt. En það getur breyst ef veðrið er vont. Það hefur einnig oft komið fyrir að loðna hefur ekki fundist í byijun janúar þótt hún hafi komið fram síðar, þannig að þar er engin leið að segja neitt fyrir um niðurstöður á þessu stigi,“ sagði Halldór. Kristján Ragnarsson sagði að á fundi í gærmorgun hefðu útvegs- menn, sjómenn og verksmiðjueig- endur lýst sig andvíga hugmynd- um sjávarútvegsráðherra um veiðibann. „Við teljum að í skýrslu fiskifræðinganna séu það margir fyrirvarar að það sé ekki réttlæt- anlegt að stoppa loðnuveiðarnar við þessar aðstæður,“ sagði Krist- ján. Hann sagði að í fyrra hefði haustleiðangur gefið til kynna 50 þúsund tonna stofn, en í janúar hefði stofninn mælst 800 þúsund tonn og í janúar og febrúar hefðu verið veidd 600 þúsund tonn, 300 þúsund tonn hvorn mánuð. „Það er því mikili ábyrgðarhluti í þessari óvissu að stoppa veiðarn- ar. Við vildum fara þá leið að skera heildarkvótann niður um þriðjung, sem hefði þýtt að við hefðum aldr- ei veitt meira en 200 þúsund tonn. Það lá fyrir að 17 bátar hefðu ekki farið strax á veiðar, þannig að við töldum engu hætt með því að leyfa flotanum að halda áfram þar til séð yrði hvernig ástandið er,“ sagði Kristján. Halldór Ásgrímsson sagði, að ákvörðun um kvótann hefði á sínum tíma byggst á svipuðum mælingum og nú væru að hefjast og reynst hefðu allgóðar þegar upp var staðið í fyrra. „En útlitið er að því leyti verra nú, að í haust voru bærileg skilyrði til mælinga en svo var ekki á sama tíma árið áður,“ sagði Halldór Ásgrímsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.