Morgunblaðið - 28.12.1990, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 28.12.1990, Blaðsíða 47
mokgunbLaðið- ÍÞRÓ t llR rnoi.\jayp;>:i.'>i.-: FOSTOBAGGK 28. ÐESBMBBR 1990 it. HANDKNATTLEIKUR / VINATTULANDSLEIKIR Strákarnir stóðuí Japönum I Steinþór Guöbjartsson skrifar slenska U-21 landsliðið í hand- knattleik sýndi enga snilldar- takta, en stóð engu að síður í A- liði Japan í Laugardalshöll í gær- kvöldi. Japanir voru langt því frá að vera sannfærandi, en sigruðu með einu marki, 18:17, eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik. Mistök voru einkennandi á báða bóga, sendingar gengu oft mótheija á milli og fátið og fumið var óþarf- lega mikið, einkum í fyrri hálfleik. íslensku strákarnir áttu einna helst í erfiðleikum með staða vöm Jap- ana, sem lék framarlega, og Hashi- moto, markvörður, var þeim þránd- ur í götu. Þeir gerðu aðeins fjögur mörk fyrir utan og gegnumbrot, sem virtust svo auðveld, sáust vart. Vamarleikurinn var ágætur á köfl- um, en markvarslan slök. Sóknarnýting íslendinga var að- eins 25% í fyrri hálfleik, en þeir bættu um betur eftir hlé og vom þá með 44% nýtingu. Mestu mun- aði um fyrstu 10 mínúturnar, en þá gerðu þeir sex mörk án þess að Japanir næðu að svara fyrir sig í átta sóknum í röð. Þeir létu samt ekki slá sig út af laginu og tryggðu sér sigur á síðustu mínútunum. Morgunblaðið/Einar Fa'ur Kristján Arason hefur ekki leikið með landsliðinu síðan í Heimsmeistara- keppninni í Tékkóslóvakíu í mars, en var liðinu mikill styrkur og átti frábæra sendingu undir lokin, sem Patrekur Jóhannesson nýtti. Óvænt endalok ÍSLENDINGAR sýndu sínar bestu og verstu hliðar er þeir gerðu jafntefli við Svía í Laugardalshöllinni í gærkvöldi, 22:22. Patrekur Jóhannesson gerði jöfnunarmarkið á síðustu sekúndunni, sem var reyndar býsna löng. Fæstir áttu von á slíkum úrslitum eftir hræðilega byrjun og í raun ótrúlegt að íslendingar skildu ná að jafna. B: i Logi Bergmann Eiðsson skrifar yrjunm var hræðileg. Aigjör- lega vonlaus. Svíarnir gerðu fullt af mistökum og hefðu átt að vera undir, en það var öðru nær. íslendingar virðast ekki mega sjá sænskan markmann án þess að fara á taugum og svo var einnig nú. Tomas Svensson átti frá- bæran leik og bókstaflega hló uppí opið geðið á íslendingum í dauða- færum. Skotin voin reyndar mörg ótímabær en það á ekki að geta gerst að íslenska landsliðið hafí ekki gert mark þegar 20 mínútur eru búnar. En þannig var það og þá var staðan reyndar 8:0 fyrir Svía, sem voru að sjálfsögðu kampakátir. Svo kátir að þeir héldu að sigurinn væri í höfn. En þá fór Eyjólfur að hressast. lslandU-21 — Japan 17:18 Laugardalshöll, vináttuleikur í handknattleik, fimmtudaginn 27. desember 1990. Gangur leiksins: 1:0, 1:2, 2:2, 2:4, 4:4, 5:5, 5:7, 6:9, 12:9, 12:12, 14:12, 14:14, 15:15, 15:17, 16:18, 17:18. ísland: Finnur B. Jóhannsson 3, Jóhann Ásgeirsson 3, Róbert Rafnsson 3/1, Magnús Sigurðsson 3/1, Björgvin Þór Rúnarsson 2, Gunnar Andrésson 2, Óskar Sigurðsson 1, Jón Erlingsen, Friðleifur Friðleifsson, Sveinberg Gíslason. Varin skot: Áxel Stefánsson 3, Hallgrímur Jónasson 3 (þar af tvö, er boltinn fór aftur til mótheija). Utan vallar: 6 mínútur. Japan: Kawahara 4, Tamamura 4, Saito 3, Shudo 2, Yamamura 2/2, Takuchi 1, Fotsuta 1, Nakayama 1, lwanoto. Varin skot: Hashimoto 15/2 (þar af 5/1, er boltinn fór aftur til mótherja), Akiyoshi. Utan vallar: 4 mínútur. Áhorfendur: Um 150. Dómarar: Hákon Siguijónsson og Guðjón L. Sigurðsson. Island-Svíþjód Laugardalshöllin, vináUulandsleikur í handknatlloik, fimmtudaginn 27. desember 1990. Gangúr leiksins: 0:8, 1:8, 1:9, 6:9, 8:9, 9:11, 12:12, 12:11, 14:16, 16:16, 16:19, 17:20, ,19:22, 22:22. Mörk íslands: Sigurður Bjarnason 5/1, Patrekur Jóhannesson 4, Konrað Olavson 4/2, Jakob Sigurðsson 3, Kristján Arason 3, ValdimarGrímsson 2, Geir Sveinsson 1. Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 17. Hrafn Margeirsson. Utan vallar: 4 mínútur. Mörk Sviþjóðar: Erik Hajas 8/1, Staffan Olsson 6, Per Carlén 4, Ola Lindgren 3, Magnus Wislander 1. Varin skot: Tomas Svensson 18/1. Patrik Asward 1/1. Utan vallar: 10 mínútur. Dómarar: Danskir og dæmdu ágætiega. Áhorfendur: Rúmlega 1.400 greiddu aðgangseyri, en Höllin var þétt setin. KNATTSPYRNA Lothar Mattháus Matlhaus útnefndur LOTHAR Matthaus, fyrirliði heimsmeistara Þýskalands í knattspymu, var kjörinn knatt- spyrnumaður ársins hjá franska blaðinu France Fottball. Matthús fékk 137 atkvæði af 145 möguleg- um, en íþróttafréttamenn frá 29 þjóðum tóku þátt í valinu. Matthus er fjórði Þjóðveijinn, sem hlýtur þessa nafnbót. Hinir eru Gerd Miiller, Franz Beckenbauer og Kari-Heinz Rummenigge. Salvatore Schillacci frá Ítalíu hafnaði í öðm sæti með 84 stig. Andreas Brehme, Þýskalandi, fékk 68 stig, Paul Gascoigne, Englandi, 43, Franco Baresi, Ítalíu, 37, Jurg- en Klinsmann, Þýskalandi, og Enzo Scifo, Belgíu, 12 stig hvor, Roberto Baggio, Ítalíu, 8, Frank Rijkaard, Hollandi, 7 og Guido Buchwald, Þýskalandi, 6 stig. KORFUBOLTI / LANDSLEIKUR Ótrúleg mistök gegn Dönum ÍSLENSKA landsliðinu í körfuknattleik voru mislagðar hendur í Stykkishólmi í gærkvöldi. Það gerði ótrúleg mistök gegn Dönum, sem léku hins vegar mjög vel og unnu örugglega, 90:80, eftir að hafa verið stigi yfir í hálfleik. Liðin leika aftur í kvöld og síðan á morgun og verður ekki öðru trúað en landinn taki sig á. ÆT | slendingar byrjuðu mjög illa, en Maria Guönadóttir skrifar náðu góðum kafla um miðjan fyrri hálfleik. Munaði mest um frá- bæran leik Teits Orlygssonar og sérstaklega Magn- úsar Matthíassonar. Liðið var hins vegar heillum horfið síðustu þijár mínút- urnar og missti þá niður forskotið. Strákarnir voru hreint út sagt lélegir í seinni hálfleik; aðeins Pétur Guðmundsson sýndi góða kafla í sókninni. Þeir fóru almennt illa með bolta, voru slakir í vörn og hittu illa. Þeir kórónuðu frammistöðuna með því að misnota tvær troðslur á síðustu mínútunni. Liðið var langt því frá að vera sannfærandi og sumir leikmannanna virtust jafnvel ekki vera í nægjanlega'góðri æf- ingu. Danir spiluðu mjög vel, voru sterkir í vörn og léku agað í sókn. Þeir gerðu fá mistök og leikur þeirra var yfirvegaður. Þeir voru ákveðnir og fengu alls 31 villu, en Islendingar aðeins 15 villur. Þá nýttu þeir vítin vel, en sama er ekki hægt að segja um heimamenn. Island — Danmörk 80 : 90 íþróttahúsið í Stykkishólmi, vináttulandsleikur í körfuknattleik, fimmtudaginn 27. desember 1990, Gangur leiksins: 0:2, 10:14, 20:21, 32:30, 42:36, 44:45, 47:55, 52:64, 59:69, 67:73, 72:82, 80:90. ísland: Pétur Guðmundsson 20, Magnús Matthíasson 18, Teitur Örlygsson 13, Guðjón Skúlason 11, Pálmar Sigurðsson 8, Sigurður Ingimundarson 4, Guðmundur Bragason 2, Jón Amar Ingvarsson 2, Albert Óskarsson 2, Falur Harðarson, Jón Kr. Gíslason. Stig Damerkur: Flemming Danielsen 22, Joakim Jerchow 18, Lars Bekke Jensen 12, Steffen Reinliolt 11, Henrik Norre Nielsen 8, Sten Sörensen 6, Henrik S. Hans- en 5, Ole Stampe 4, Jens D. Olsen 2, Larse Meilsöe 2. Áhorfendur: 300. Dómarar: Helgi Bragason og Kristinn Óskarsson. ÍÞRÓmR FOLK U KRISTJÁN Arason og sam- heijar í Teka tryggðu sér sæti í Evrópukeppni félagsliða í hand- knattleik, IHF-keppninni, á næsta tímabili, er þeir unnu Valencia, 30:29, um helgina í úrslitakeppni fjögurra efstu liða í forkeppninni um sætið. ■ HUGO Sanchez, miðheiji Real Madríd, var gert að greiða tæplega 80.000 ISK fyrir ósiðsamlega fram- komu gagnvart áhorfendum eftir 1:0 sigur gegn Barcelona í spænsku meistarakeppninni í byij- un mánaðarins. ■ RAYMOND Goethals, fyrrum landsliðsþjálfari Belga í knatt- spyrnu, var ráðinn þjálfari franska liðsins Marseille um jólin og tekur við starfinu af Franz Beckenbauer 2. janúar. Beckenbauer verður tæknilegur ráðunautur Belgans, serh er 67 ára. Ikvöld HANDBOLTI Flugleiðamótið í handknattleik hefst í Laugardalshöll i dag. Kl. 18 leika Svíþjóð og'Japan og kl. 20 ís- land og Noregur. Norðurlandamót stúlkna heldur áfram í Kaplakrika. ísland og Sviþjóð keppa kl. 14 og Noregur og Dan- mörk kl. 16. KÖRFUBOLTI ísland og Danmörk leika vináttu- landsleik í Njai-ðvík í kvöld og hefst viðureignin kl. 20. Með mikilli baráttu og góðri vörn og markvörslu fór loks eitthvað að ganga. Sigurður Bjarnason gerði fyrsta markið úr þriðja vítakasti íslendinga og í kjölfarið fylgdu sex mörk til viðbótar. Staðan skyndi- lega 8:9 og Svíar vissu ekki sitt ijúkandi ráð. En aftur kom slæmur kafli og Svíar komust í 19:16 með þremur mörkum í röð. Þeir höfðu þriggja marka forskot þegar rúm ein og hálf mínúta var eftir. Geir skoraði úr hraðaupphlaupi og Sigurður minnkaði muninn í eitt mark eftir að varamarkvörður Svía hafði varið vítakast Konráðs. Svíar fengu bolt- ann en Guðmundur varði frá þeim þegar rúmar tíu sekúndur voru eft- ir. Kristján fékk boltann þegar um þijár sekúndur voru eftir og hann átti glæsilega sendingu á Patrek sem skoraði af öryggi af línunni og tryggði íslendingum ótrúlegt jafntefli. „Eg veit ekki hvort leikurinn var búinn enda gat ég ekki fylgst með því. Ég kallaði bara á boltann og hugsaði um að skora," sagði Pat- rekur. „Það var gott að ná jafn- tefli eftir þessa byrjun. Við vorum hræddir á fyrstu mínútunum og hann [Svensson] varði eins og vit- leysingur. Síðari hálfleikurinn var góður en þetta var ekki fullkomið." Vörnin var góð í leiknum þótt línumenn Svía hafi fengið full fijáls- ar hendur. Skytturnar fengu litlu áorkað en helmingur marka Svía kom úr hraðaupphlaupum er íslend- ingar voru of seinir í vömina. Guð- mundur var frábær í markinu og gaf þeim Svensson þeim sænska ekkert eftir. Sigurður Bjamason átti góðan leik. Hann er gríðarlega sterkur leikmaður en er oft of bráð- látur. Patrekur átti einnig mjög góðan leik og þeir unnu vel saman í vöminni ásamt Geir. Kristján Ara- son kom inní liðið eftir langa tjar- vem og lék ágætlega. Homamenn- imir Jakob og Valdimar byijuðu illa, eins og reyndar allt liðið, en náðu sér á strik í síðari hálfleik. Konráð kom inní nýja stöðu sem leikstjómandi og stóð sig vel, þrátt fyrir slæm mistök í lokin. „Taugaveiklun" „Við höfum aldrei náð að stilla upp sömu leikmönnum fyrir utan og því hefur sóknin ekki fengið nægan tíma. Við þetta bættist taugaveiklun og virðing fyrir Svíum auk þess sem Svensson varði mjög vel,“ sagði Þorbergur Aðalsteins- son, þjálfari íslenska landsliðsins. „Vörnin var góð og Guðmundur varði mjög vel en við gerðum mis- tök í sókninni. Menn verða að gera sér grein fyrir því að þegar svona staða ke,mur upp er það ekki ein- staklingur sem vinnur leik heldur heilt lið.“ Hvar var Alfreð? í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins í gær var sagt að Alfreð Gíslason myndi leika með. Fréttastofa út- varpsins fékk póstfax frá skrifstofu HSI seint í fyrrakvöld þar sem sagt var að hann myndi leika með. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins var það ljóst í snemma í fyrrakvöld að Alfreð yrði ekki með. Engu að síður var ekkert gert til að leiðrétta frétt útvarpsins og er það býsna undarlegt og engu líkara að hug- myndin hafi verið að fá fólk í Höll- ina á fölskum forsendum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.