Morgunblaðið - 28.12.1990, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 28.12.1990, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990 011 Kfl 0107A LÁRUS Þ' VALDIMARSSON framkvæmdastjóri L I I v)U’t I0/U KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. löggiitur fasteignasali Til sýnis og sölu meðal annarra eigna: Á góðu verði á Nesinu í þríbhúsi séríb. 4ra herb. um 110 fm á jarðh./kj. 3 svefnherb. Allt sér (-inng., -hiti, -þvottah.). Eignaskipti möguleg. Fyrir smið eða laghenta meðal annars 5 herb. séríbúð I Túnunum. Tilboð óskast. Ennfremur góða 3ja herb. kjallaraíbúð I Vogunum á vægu verði. Steinhús í Garðabæ Nýtt og glæsil. m/4ra-5 herb. ib. á tveimur hæðum, ekki fullg. Góður, frág. bílsk. Ræktuð lóð m/hitapotti. Sólskáli. Húsnlán kr. 4,5 millj. Skipti æskil. á góðri 3ja herb. ib. í borginni eða nágrenni. Fjöldi fjársterkra kaupenda Sérstaklega óskast góðar 3ja, 4ra og 5 herb. íbúðir og ennfremur einb- hús og raðhús í borginni eða nágr. Margs konar eignaskipti mögul. • • • Opið á morgun laugardag. Kynnið ykkur laugardags- auglýsinguna. ____________________________ LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 AIMENNA FASTEIGNASALAH SVERRIR KRISTJÁNSSON HÚS VERSLUNARINNAR 6. HÆÐ BALDVIN HAFSTEINSSON HDL. If lf FJÁRFESTING Fyrirtæki með ca 70 millj. kr. uppsafnað tap og ca 750 fm nýlegt hús rétt við miðbæinn til sölu. Traustur kaup- andi getur keypt eignina á langtímalánum. Fyrirtækið er starfrækt með verslun. inn- og útflutning, rekstur fasteigna og lánastarfsemi. Upplýsingar gefur Sverrir í síma 31800 eða 622226. Verð aðeins kr. 3.200,- Aðgangseyrir og kvöldverður. Borðapantanir og miðasala á Hótel Islandi kl. 9.00-17.00 alla daga í síma 687111. Húsið opnað öðrum en matargestum kl. 23.30 Kr. 1.000,- Pétur Jónasson Ómar Eva Mjöll Ingólfsdóttir Glæsilegur nýársfagnaður Veraldar á Hótel íslandi 4. janúar Hemmi Veröld þakkar viðskiptavinum sínum og velunnurum frábærar móttökur á afstöðnu ferðaári og býður ferðaþyrstum listunnendum á glæsilegan nýársfagnað á Hótel íslandi þann. 4. janúar, fylltan dansi, söng, gleði, gríni og glensi, ásamt glæsilegri veislumáltíð að suðrænum hætti. ÚR DAGSKRA NYARSFAGNAÐAR Húsið opnað kl. 19.00 Veislutríóið gefur rétta hátíðarstemmningu. Ómar Ragnars, Hemmi Gunn og Haukur Heiðar rifja upp sumarstemmningu frá síðasta sumri á Spáni. Glæsilegt ferðahappdrætti. MYNDASÝNING - Ferðalög um víða Veröld. FLAMINGO - Dansarar frá Madrid með glæsilegan, spænskan dans. GÍTARLEIKUR Á HEIMSMÆLIKVARÐA -Pétur Jónasson. HEILLANDIKLASSÍK - Eva Mjöll Ingólfsdóttir. Hljómsveitin Stjórnin leikurfyrir dansi. Veislustjóri: Hermann ÍfTTEL fáPIÁND ♦O Matseðill kvöldsins FordrykkurEl Cordobes. Rjómalöguó sjávarréttaveisla Zarzuela Teinagrillub lambapipar- steik ab hcetti andalúsískra abalsmanna. Svíþjóð: Alþjóðlegt skákmót ungmenna GUÐFRÍÐUR Lilja Grétars- dóttir og Helgi Ass Grétars- son verða fulltrúar Islands á alþjóðlegu skákmóti 20 ára og yngri sem fram fer í Svíþjóð nú um áramótin. Keppendur á mótinu sem fram fer í Hallsberg verða frá fjölmörgum Evrópulönd- um. Einna fjölmennastir verða keppendur frá Austur- Evrópu og má því búast við sterku nióti. Guðfríður Lilja er 18 ára og fjórfaldur íslandsmeistari kvenna í skák og hlaut alþjóð- legan meistaratitil kvenna á svæða- og Norðurlandamótinu í skák í Finnlandi sumarið 1989. Skáksamband íslands styrkir Lilju til ferðarinnar. Helgi er 13 ára. Hann hefur sigrað á mörgum mótum og varð nú síðast Bikarmeistari Taflfélags Reykjavíkur. Þá varð hann í öðru sæti á Unglinga- meistaramóti íslands 20 ára og yngri i haust. Hann tók sl. sum- ar þátt í heimsmeistaramóti barna í skák í Bandaríkjunum og varð þar í 5.-7. sæti af 40 keppendum. Þrjú fyrirtæki styrktu Helga til þeirrar ferðar og þau gera það einnig nú, en það eru Slát- urfélag Suðurlands, Sjóklæða- gerð Islands og Ágúst Ármann hf. Morgunblaðið/RAX Helgi Áss Grétarsson og Guð- fríður Lilja Grétarsdóttir. Búið að salta í yfir 100 þús- und tunnur SALTAÐ hafði verið í tæpar 106 þúsund tunnur af síld fyrir jól, þar af 25.200 tunnur af flökum, aðallega roðlausum. Leyfilegt er að veiða síld út næsta mánuð og haldið verður áfram að salta síld upp í fyrirfram samninga eftir áramótin, segir í frétt frá Síldar- útvegsnefnd, en söltunarstöðv- arnar mega salta samtals 7 þús- und tunnur af síldarflökum í næsta mánuði, að sögn Benedikts Jóhannssonar frystihússtjóra Hraðfrystihúss Eskifjarðar hf. Samið hafði verið um að Sovét- menn keyptu héðan 50 þúsund tunnur af síld fyrir um 300 milljón- ir króna á þessari vertíð. Síld hefur verið söltuð á 18 stöðum á landinu á þessari vertíð en um síðustu helgi hafði mest verið saltað af síld á Eskifirði, tæpar 17 þúsund tunnur. Saltað hafði verið á 37 söltunar- stöðvum um síðustu helgi, mest á söltunarstöð Fiskimjölsverksmiðju Hornafjarðar hf., 10.685 tunnur. Seld voru samtals um '20.500 tonn af saltsíld fyrir um 1,250 millj- arða króna árið 1989, þar af um 13 þúsund tonn til Sovétríkjanna fyrir 668 milljónir króna, 2.700 tonn til Svíþjóðar fyrir 250 milljónir, tæp 2.800 tonn til Finnlands fyrir um 200 milljónir, tæp 1,300 tonn til Póllands fyrir 70 milljónir, tæp 500 tonn tií Danmerkur fyrir 40 milljón- ir og 140 tonn til Vestur-Þýska- lands fyrir 11 milljónir króna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.