Morgunblaðið - 28.12.1990, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 28.12.1990, Blaðsíða 20
 20 0861 H3-flM2T33Q ,8S flOOA(TJT8Ö3 CFIQAJ3WJ030M MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAOUR 28. DESEMBER 1990 Orðrómur í Bagdad: íraksher verði senn kvaddur frá Kúvæt Bagdad, New York, Nikosíu. Reuter og Daily Telegraph. FULLTRUAR bandaríska sendiráðsins í Bagdad ræddu við talsmenn íraska utanríkisráðuneytisins á jóladag og voru það fyrstu formlegu viðræður deiluaðilanna í heila viku. Ríkin tvö hafa enn ekki náð samkomulagi um dagsetningu á væntanlegum ferðum utanríkisráð- herranna, James Bakers og Tareqs Aziz, til höfuðborga gagnaðil- ans. Orðrómur er nú á kreiki í Bagdad, höfuðborg Iraks, um að hernámsliðið verði senn kvatt frá Kúvæt og borið verði við að al- menningur í Irak hafi krafist þess. Það vakti vonir um að friðarum- leitanir væru komnar á nokkurn rekspöl er fréttist að stjórnvöld í Bagdad hefðu kallað 26 sendiherra heim til skrafs og ráðagerða. írakar hafa boðið Baker að koma til við- ræðna við Saddam Hussein forseta í Bagdad 12. eða hugsanlega 11. janúar en Bandaríkjamönnum finnst að þá verði of stutt í að frest- ur Sameinuðu þjóðanna til að hefja aðgerðir renni út en það gerist 15. janúar. ísraelskir fjölmiðlar og bandaríska sjónvarpsstöðin CNN héldu því fram á miðvikudag að náðst hefði samkomulag um að Baker færi til Bagdad 9. janúar en talsmaður bandarískra stjórnvalda vísaði þessum fréttum á bug. „Irak- ar hafa ekkert hnikað til afstöðu sinni varðandi dagsetningarnar," rM Oveður í Bretlandi yfirjóla- hátíðina St. Andrews, frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgun- blaðsins. ÓVEÐUR gekk yfir Bretland á jóladag og annan í jólum. Þús- undir heimila hafa ekki .enn getað eldað jólasteikina vegna rafmagnsleysis. Samkvæmt fréttum Reuters var enn slæmt veður í Bretlandi í gær. Hvassviðri með mikilli rigningu gekk yfir England og Skotland á jóladag. Óveðrið olli skemmdum á byggingum og í kirkju í Wiltskíri féll kirkjutum niður í gegnum þak kirkjunnar. Það er talin mikil mildi, að einungis fjórir kirkjugestir voru fluttir á slysavarðstofu. Mörg þúsund heimili urðu raf- magnslaus á jóladag í vesturhluta Englands, þar sem veðrið var verst, og sömuleiðis í Kent, Hampskíri, Staffordskíri og Jórvíkurskíri. Víða tókst að koma aftur á rafmagni á jóladag en mörg þúsund heimili voru enn rafmagnslaus í gær. Á þeim er jólakalkúninn enn ósteikt- ur. Á annan dag jóla gekk svipað veður yfir Norður-írland, Skotland og England með hvössum vindi og miklu vatnsveðri. Annan daginn í röð brotnuðu _ staurar með raf- magnslínum. Ár flæddu víða yfir bakka sína í Suðvestur-Skotlandi og Norðvestuu-Englandi. Talið er að tveir menn hafi látist af völdum veðursins. Veðurfræðingar spá ill- viðri um allt Bretland næstu daga. Fimm manns létust á aðfanga- dagskvöld vegna ofbeldisverka. Sum þeirra tengdust drykkjuskap, en aðfangadagskvöld í Bretlandi er eins og Þorláksmessukvöld á íslandi. .Jólahátíðin hefst ekki fyrr en á miðnætti aðfangadagskvöld. sagði hann. í Bagdad er á kreiki orðrómur um að verið sé að und- irbúa útifund þar sem Saddam verði hvattur til að kveðja herinn heim frá Kúvæt sem sé ekki styijaldar virði. Heimildarmenn telja mögu- legt að þetta sé gert með vilja Sadd- ams sem ætli síðan að segja að hann hafi látið undan kröfum al- mennings. Saddam sagðist á mið- vikudag reiðubúinn til viðræðna en mótmælti því sem hann kaliaði hroka Bandaríkjamanna, að sögn írösku fréttastofunnar INA. í gær sagði hann Bandaríkjamenn svívirða heilaga jörð múslima með því með hafa herlið í Saudi-Arabíu og sagði að reiði guðs myndi ljósta þá fyrir vikið. Hann ítrekaði fyrri hótanir sínar um að árás á Iraka yrði svarað með árás á helstu borg- ir ísraels, einkum Tel Aviv, enda þótt ísraelar tækju ekki þátt í að- gerðunum gegn írak. Ennfremur sagði forsetinn að írakar hefðu rétt til að nota efnavopn gegn óvinum sínum. Hann sagði að Palestínumál- ið væri kjami allra vandamála Mið- Austurlanda og tryggja yrði réttindi Palestínumanna. Yfirmaður breska herliðsins við Persafióa segir að alls ekki megi treysta því að Saddam Hussein bíði átekta til 15. janúar; forsetinn geri e.t.v. skyndiárás fyrir þann tíma. Dick Cheney, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir að herlið Bandaríkjamanna og stuðnings- manna þeirra verði reiðubúið til Reuter Li Peng, forsætisráðherra Kína, tekur á móti útlægum fursta Kú- væt, Sheik Jaber Al-Ahmed Al-Sabah, í Peking. Kínverjar hafa hvatt til harðari efnahagslegi-a refsiaðgerða til að þvinga íraka frá Kúvæt með friðsamlegum hætti. árásar fljótlega eftir 15. janúar. Bandaríska stórblaðið The New York Times sagði í gær að viðvaran- ir um að bandaríska herliðið við Persaflóa væri ekki enn reiðubúið myndu ekki hindra George Bush forseta í að gefa skipun um árás ef hann teldi það nauðsynlegt. Sir Peter de la Billiere, hershöfðingi og æðsti maður breska liðsins við Persaflóa, sagði á miðvikudag að næstu vikurnar yrði mikil spenha á svæðinu; Saddam Hussein væri nú að gera upp hug sinn. „Hann mun reyna að ná frumkvæðinu með ein- hveijum hætti og ef hann ákveður að það verði með styrjöld reynir að hann að verða fyrri til sem merkir að hann gæti gert árás fyrir 15. janúar. Sú dagsetning er ekki heilög í hemaðarlegu tilliti," sagði hers- höfðinginn. Þetta erum við hjónin fyrir 14 árum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.