Morgunblaðið - 28.12.1990, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 28.12.1990, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990 ATVIN N U RÍKISSPÍTALAR Reyklaus vinnustaður frá 1. jan. 1991 Geðdeild Landspítalans Starfsmenn óskast við hinar ýmsu deildir geðdeildar Landspítaians. Starfið felur í sér aðstoð við umönnun sjúklinga. Um er að ræða fulla vinnu, vaktavinnu og hlutastarf á næturvakt. Nánari upplýsingar gefa hjúkrunarfram- kvæmdastjórar í síma 602700. Reykjavík Hjúkrunarfræðingar - sjúkraliðar -starfsfólk Okkur vantar hjúkrunarfræðinga á heilsu- gæslu á kvöld- og helgarvaktir. Einnig vantar hjúkrunarfræðinga á stakar vaktir á hjúkr- unardeildir. Spennandi verkefni eru framund- an með tilkomu hjúkrunarskráningar. Sjúkraliðar Sjúkraliða vantar til starfa í janúar í 100% starf. Starfsfólk Starfsfólk óskast til aðhlynningar í fullt starf og til afleysinga í janúar. Athygli er vakin á að Hrafnista rekur barna- heimili fyrir starfsfólk. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri, ída Atladóttir, í síma 35262, og hjúkrunarfram- kvæmdastjóri, Jónína Níelssen, í síma 689500. Kennarar Kennari óskast við Gagnfræðaskólann á Selfossi frá 1. janúar 1991. Upplýsingar veitir skólastjóri í símum 98-21256 og 98-21273 og yfirkennari í símum 98-21970 og 98-21765. Skólastjóri. Traustur lögmaður óskast sem meðeigandi að fasteignasölu í borginni með áratuga reynslu að baki og góða starfsaðstöðu. Algeng málflutnings- og innheimtustörf fyrir viðskiptamenn. Fjárframlag eftir samkomulagi. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir kl. 16.00 3. 'janúar merkt: „Trúnaðarmál - 8199“. LANDSPÍTALINN Reyklaus vinnustaðurfrá 1. jan. 1991 Öldrunarlækninga- deild Læknaritari óskast til starfa á öldrunarlækn- ingadeild Landspítalans, Hátúni 10b. Um er að ræða 50-75% stöðu og vinnutími er eftir samkomulagi. Læknaritarinn sinnir öllum venjulegum læknaritarastörfum ásamt ritvinnslu. Góð íslensku- og vélritunarkunn- átta áskilin. Umsóknarfrestur er til 15. janúar 1991. Upplýsingar veitir læknafulltrúi öldrunar- lækningadeildar í síma 602250. HÚSNÆÐIÍBOÐI Landspítalinn óskar eftir að taka á leigu 3ja-4ra herb. íbúðir í Hlíðunum eða Norðurmýri. Tilboð sendist Starfsmannahaldi ríkisspítala, Þverholti 18, 105 Reykjavík. TILSÖLU KENNSLA l&nskólinn í Reykjavík Kvöldnám Meistaranám: Rafeindavirkjun, tölvubraut tækniteiknun, grunndeild rafiðna. Almennt nám: Enska, íslenska, stærðfræði, tölvufræði, vélritun. Innritun 2. og 3. janúar 1991 kl. 17.00 til 19.00. íbúð í Danmörku 4ra herb. íb. með svölum í Helsingör er til sölu í góðu ástandi á góðu verði. Traust húsfélag. Vel staðsett. Stutt í búðir, strætó, lestir, skóla og dagheimili. Ennfremurerstutt til Svíþjóðar (20 mín.) og Kaupmannahafnar (45 mín.) svo hægt er að stunda þar vinnu eða skóla. Tilvalið fyrir félagasamtök. Upplýsingar í síma 98-61129. TILKYNNINGAR Tilkynning til launaskattsgreiðenda Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því, að gjalddagi launaskatts fyrir desember er 2. janúar nk. Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til innheimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík toll- stjóra, og afhenda um leið launaskatts- skýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið. Rafvirkjar - rafverktakar Próf í fagtæknilegum áföngum til löggilding- ar í rafvirkjun verður haldið í Tækniskóla ís- lands mánudaginn 7. janúar 1991 kl. 13.00 til 14.30. Þátttakendur leggi fram staðfest gögn um að þeir hafi lokið námskeiðunum eða sam- bærilegu námi. Rafmagnseftirlit ríkisins. KVÓTI Kvóti til sölu 24 tonn þorskur. Upplýsingar í síma 93-13375. Kvóti Tilboð óskast í 100 tonn af þorski og ýsu fyrir árið 1990. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt: „Kvóti - 8617“. Matreiðslumaður Óska sem matreiðslumaður eftir starfi til lands, sjávar eða á fjarlægum slóðum. Hef tilskylda menntun. Svör óskast send auglýsingadeild Mbl. fyrir 10. janúar merkt: „MP - 8616“. Sölumaður óskast til starfa hjá gamalgróinni fasteigna- sölu í borginni. Leitum að vel menntuðum, traustum- og duglegum sölumanni með framtíðaratvinnu í huga. Eiginhandarumsókn, með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist auglýs- ingadeild Mbl. fyrir kl. 15.00 2. janúar merkt: „Sölumaður - 8183“. Laus ritarastaða Flensborgarskólinn óskar að ráða skólaritara í hálft starf frá og með upphafi vorannar. Umsóknarfrestur er til 4. janúar nk. Allar nánari upplýsingar veitir skólameistari í síma 650400 eða 50560. Skólameistari. SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA REYKJAVÍK Þroskaþjálfun Þroskaþjálfi óskast til starfa á samþýli fyrir fatlaða í Reykjavík. Ennfremur er óskað eftir stuðningsaðila með einum íbúa sambýlisins frá kl. 11.30-16.00 virka daga. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 79978. SJÁLPSTÆDISFLOKKURINN Föstudagsrabb í dag, föstudaginn 28. desember, verður rabbfundur í Hamraborg 1, 3. hæð, kl. 21.00. • Gestur fundarins verður dr. Þór Whitehead, sagnfræðingur. Efni umræðunnar verður aðdragandinn að inngögnu íslands í Nató og varnarliðssamn- ingurinn. Verið velkomin. Týr, félag ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi. FÉLAGSLÍF Hjálpræðis- herinn Kiikjustrætl 2 [ dag, föstudag 28. desember, kl. 15.00: Jólafagnaður aldr- aðra. Hugvekja: Séra Frank M. Halldórsson. Eldsjoginn syngur. Sunnudaginn 30. desember kl. 14.00: Jólafagnaður sunnu- dagaskólans. Öll fjölskyldan mæti. Verið velkomin. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533 Sunnudagur 30. des. Brottför kl. 16.30 frá Sprengisandi Stutt og skemmtileg fjölskyldu- ganga til að kveöja gott feröaár. Það vantar rétt innan við 100 upp á að fjöldi þátttakenda í dagsferðum ársins nái 4000. Mætið því vel ( gönguna svo því takmarki verði náð. Ekkert þátt- tökugjald, en blys seld á kr. 150. Mæting við veitingastað- inn Sprengisand, Bústaðavegi 153, og genginn hringur um dalinn. Áætlaður göngutími 1,5 til 2 klst. Ath. breytta tímasetn- ingu frá því sem auglýst er í nýútkomnu fréttabréfi Ferðafé- lagsins. i fréttabréfinu eru kynnt- ar fyrstu ferðir ársins. Það hefur verið sent öllum féiagsmönnum, en þeir, sem ekki eru félags- bundnir, geta fengið það pósts- ent. Fyrsta ferð nýja ársins er þrettándaganga á álfa- og huldu- fólksslóðum sunnudaginn 6. jan- úar. Ferðafélag íslands óskar félagsmönnum, þótttakendum í Ferðafélagsferðum og öðrum velunnurum farsæls komandl árs og þakkar gott starf á árinu sem er að líða. Takið þátt í starfi Ferðafélags- ins á nýju ári. Velkomin í hópinn! Ferðafélag íslands

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.